{"id":1949,"date":"2008-09-10T10:49:49","date_gmt":"2008-09-10T10:49:49","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=1949"},"modified":"2008-09-10T10:49:49","modified_gmt":"2008-09-10T10:49:49","slug":"forleikur-og-jleik-keikhns","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/forleikur-og-jleik-keikhns\/","title":{"rendered":"Forleikur og \u00edsbj\u00f6rn \u00e1 n\u00fdju leik\u00e1ri K\u00f3med\u00eduleikh\u00fassins"},"content":{"rendered":"<p>Leik\u00e1r K\u00f3med\u00eduleikh\u00fassins er b\u00e6\u00f0i ferskt og klass\u00edskt. Alls ver\u00f0a sex s\u00fdningar \u00e1 fj\u00f6lum leikh\u00fassins \u00e1 n\u00fdju leik\u00e1ri \u00fear \u00e1 me\u00f0al frums\u00fdnir K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 n\u00fdjan \u00cdslenskan einleik,\u00a0 Au\u00f0un og \u00edsbj\u00f6rninn, sem er bygg\u00f0ur \u00e1 samnefndum \u00cdslendinga\u00fe\u00e6tti sem er \u00e1n efa s\u00e1 besti og vanda\u00f0asti \u00cdslendinga\u00fe\u00e1tta. \u00cd Au\u00f0un og \u00edsbj\u00f6rninn halda Elfar Logi og Soff\u00eda Vagnsd\u00f3ttir \u00e1fram fars\u00e6lu samstarfi s\u00ednu en \u00e1\u00f0ur hafa \u00feau unni\u00f0 a\u00f0 tveimur vins\u00e6lum K\u00f3med\u00eduleikjum. Tveir kunnir listamenn vinna einnig a\u00f0 s\u00fdningunni en \u00fea\u00f0 eru \u00feau Hr\u00f3lfur Vagnsson sem semur t\u00f3nlist s\u00e9rstaklega fyrir uppf\u00e6rsluna og Marsibil G. Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir sem gerir leikmynd og b\u00faninga. B\u00e6\u00f0i hafa \u00feau \u00e1\u00f0ur unni\u00f0 fyrir K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 me\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rum \u00e1rangri.  <!--more--> <\/p>\n<p> Seinni frums\u00fdning leik\u00e1rsins er Forleikur \u009209 sem er samstarfsverkefni vi\u00f0 Litla leikkl\u00fabbinn \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. H\u00e9r er \u00e1 fer\u00f0inni fersk og fj\u00f6rug syrpa af einleikjum. Fj\u00f6gur verk fr\u00e1 fyrri \u00e1rum ver\u00f0a einnig \u00ed bo\u00f0i \u00e1 leik\u00e1rinu. Einleikurinn P\u00e9tur og Einar var frums\u00fdndur \u00ed sumar vi\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rar undirtektir og ver\u00f0ur leikurinn s\u00fdndur \u00e1fram \u00ed Einarsh\u00fasi \u00ed Bolungarv\u00edk. J\u00f3lasveinar Gr\u00fdlusynir fara aftur \u00e1 stj\u00e1 \u00ed lok n\u00f3vember og ver\u00f0a \u00e1 fj\u00f6lunum b\u00e6\u00f0i fyrir vestan og sunnan. Dimmalimm hefur n\u00fa sitt fj\u00f3r\u00f0a leik\u00e1r og ver\u00f0a s\u00fdningar um land allt. S\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst ver\u00f0ur ver\u00f0launaleikurinn G\u00edsli S\u00farsson \u00e1 fj\u00f6lunum fimmta \u00e1ri\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0 en leikurinn hefur veri\u00f0 s\u00fdndur h\u00e1tt \u00ed 200 sinnum. <\/p>\n<p> K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 hefur \u00e1vallt sinnt einleiknum af mikilli \u00e1str\u00ed\u00f0u og \u00ed vetur mun leikh\u00fasi\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp\u00e1 einleikna leiklestra. Fluttir ver\u00f0a valinkunnir og \u00f3kunnir \u00edslenskir einleikir annan hvern m\u00e1nu\u00f0 \u00ed vetur. Fyrsti leiklesturinn ver\u00f0ur \u00ed n\u00f3vember en \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur fluttur einleikurinn Knall eftir J\u00f6kul Jakobsson en \u00ed \u00e1r eru 75 \u00e1r fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu leiksk\u00e1ldsins. \u00c1fram me\u00f0 lesturinn \u00fev\u00ed K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 mun halda \u00e1fram samstarfi s\u00ednu vi\u00f0 Safnah\u00fasi\u00f0 \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og bj\u00f3\u00f0a m\u00e1na\u00f0arlega upp\u00e1 Vestfirska h\u00faslestra \u00ed vetur. <\/p>\n<p> K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 hefur hasla\u00f0 s\u00e9r v\u00f6ll \u00ed hlj\u00f3\u00f0b\u00f3ka\u00fatg\u00e1fu og mun \u00e1 leik\u00e1rinu gefa \u00fat tv\u00e6r n\u00fdjar hlj\u00f3\u00f0b\u00e6kur en \u00f3h\u00e6tt er a\u00f0 segja a\u00f0 b\u00e6kurnar hafi slegi\u00f0 \u00ed gegn. Act alone leiklistarh\u00e1t\u00ed\u00f0in ver\u00f0ur haldin \u00ed sj\u00f6tta \u00e1ri\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0 1. \u0096 5. j\u00fal\u00ed 2009 og a\u00f0 vanda s\u00e9r K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 um listr\u00e6na stj\u00f3rnun h\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar. Fj\u00f6lmargt anna\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed bo\u00f0i hj\u00e1 K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasinu \u00ed vetur og \u00fev\u00ed um a\u00f0 gera a\u00f0 fylgjast vel me\u00f0 K\u00f3med\u00edunni \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u leikh\u00fassins www.komedia.is sem er opin allan s\u00f3larhringinn! \u00c1 heimas\u00ed\u00f0unni f\u00e6r\u00f0 \u00fe\u00fa allar uppl\u00fdsingar um leikh\u00fasi\u00f0 og s\u00fdningar okkar. \u00dear getur \u00fe\u00fa keypt mi\u00f0a e\u00f0a panta\u00f0 leiks\u00fdningu fyrir h\u00f3pa. Einnig getur \u00fe\u00fa versla\u00f0 hlj\u00f3\u00f0b\u00e6kur og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst lesi\u00f0 K\u00f3m\u00edskar fr\u00e9ttir reglulega. H\u00e6gt er a\u00f0 gerast \u00e1skrifandi a\u00f0 K\u00f3med\u00edufr\u00e9ttum og \u00fe\u00e1 missir \u00fe\u00fa af engu. K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 ver\u00f0ur semsagt \u00e1 fer\u00f0 og flugi allt leik\u00e1ri\u00f0 en a\u00f0 lokum m\u00e1 geta \u00feess a\u00f0 \u00feetta st\u00f3ra vestfirska leikh\u00fas s\u00fdnir yfir 120 s\u00fdningar \u00e1 \u00e1ri b\u00e6\u00f0i h\u00e9r heima og erlendis. <\/p>\n<p> Hl\u00f6kkum til a\u00f0 sj\u00e1 ykkur \u00ed leikh\u00fasinu <\/p>\n<p> <u>S\u00fdningar K\u00f3med\u00eduleikh\u00fassins 2008-9:<\/u><\/p>\n<p> <strong>Au\u00f0un og \u00edsbj\u00f6rninn<\/strong><br \/> H\u00f6fundar: Elfar Logi Hannesson, Soff\u00eda Vagnsd\u00f3ttir Leikstj\u00f3ri: Soff\u00eda Vagnsd\u00f3ttir Leikari: Elfar Logi Hannesson Leikmynd, b\u00faningar: Marsibil G. Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/> T\u00f3nlist: Hr\u00f3lfur Vagnsson<br \/> S\u00fdningart\u00edmabil: Frums\u00fdnt \u00ed mars\/apr\u00edl 2009 og \u00fat leik\u00e1ri\u00f0<br \/> S\u00fdningarsta\u00f0ur: Tj\u00f6ruh\u00fasi\u00f0 \u00cdsafir\u00f0i og um land allt<\/p>\n<p> Au\u00f0unar \u00fe\u00e1ttur vestfirzka er einn besti og vanda\u00f0ist allra \u00cdslendinga \u00fe\u00e1tta. H\u00e9r segir af b\u00f3ndastr\u00e1k a\u00f0 vestan sem leggst \u00ed v\u00edking og \u00e1 vegi hans ver\u00f0ur \u00edsbj\u00f6rn. Au\u00f0un \u00e1kve\u00f0ur a\u00f0 f\u00e6ra Danakonungi bj\u00f6rninn og hefst \u00fe\u00e1 \u00e6vint\u00fdralegt fer\u00f0alag piltsins og bjarnarins.<\/p>\n<p> <strong>Dimmalimm<\/strong><br \/> Eftir Mugg<br \/> H\u00f6fundar: Elfar Logi Hannesson, Sigur\u00fe\u00f3r A. Heimisson Leikstj\u00f3ri: Sigur\u00fe\u00f3r A. Heimisson Leikari: Elfar Logi Hannesson Leikmynd: Kristj\u00e1n Gunnarsson, Marsibil G. Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir, Sigur\u00fe\u00f3r A. Heimisson B\u00faningar: Alda Veiga Sigur\u00f0ard\u00f3ttir Br\u00fa\u00f0ur: Alda Veiga Sigur\u00f0ard\u00f3ttir, Marsibil G. Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir T\u00f3nlist: J\u00f3nas T\u00f3masson ofl.<br \/> S\u00fdningart\u00edmabil: Allt leik\u00e1ri\u00f0<br \/> S\u00fdningarsta\u00f0ur: Tj\u00f6ruh\u00fasi\u00f0 \u00cdsafir\u00f0i og um land allt<\/p>\n<p> Leikurinn er bygg\u00f0ur \u00e1 samnefndu \u00e6vint\u00fdri eftir Mugg og hefur noti\u00f0 g\u00edfurlegra vins\u00e6lda enda s\u00fdnt fj\u00f3r\u00f0a leik\u00e1ri\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0.<\/p>\n<p> <strong>Forleikur \u009109<\/strong><br \/> \u00cd samstarfi vi\u00f0 Litla leikkl\u00fabbinn<br \/> H\u00f6fundar: \u00ddmsir Leikarar: F\u00e9lagar \u00ed Litla leikkl\u00fabbnum Leikstj\u00f3rn: Elfar Logi Hannesson<br \/> S\u00fdningart\u00edmabil: Vetur og vor 2009<br \/> K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 og Litli leikkl\u00fabburinn halda \u00e1fram me\u00f0 samstarfi\u00f0 fr\u00e1 s\u00ed\u00f0asta leik\u00e1ri \u00feegar settir voru \u00e1 svi\u00f0 valdir einleikir. S\u00fdningin ber nafni\u00f0 Forleikur \u009209 og ver\u00f0a s\u00fdndir nokkrir stuttir einleikir. N\u00e1nari uppl\u00fdsingar um uppf\u00e6rsluna og s\u00fdningarsta\u00f0 liggur fyrir eftir \u00e1ram\u00f3tin \u00e1 heimas\u00ed\u00f0unni.<\/p>\n<p> <strong>G\u00edsli S\u00farsson<\/strong><br \/> H\u00f6fundar: Elfar Logi Hannesson, J\u00f3n Stef\u00e1n Kristj\u00e1nsson Leikstj\u00f3ri: J\u00f3n Stef\u00e1n Kristj\u00e1nsson Leikari: Elfar Logi Hannesson Leikmynd: J\u00f3n Stef\u00e1n Kristj\u00e1nsson<br \/> Leikmunah\u00f6nnun: Marsibil G. Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir B\u00faningar: Alda Veiga Sigur\u00f0ard\u00f3ttir<br \/> S\u00fdningart\u00edmabil: Allt leik\u00e1ri\u00f0<br \/> S\u00fdningarsta\u00f0ur: Tj\u00f6ruh\u00fasi\u00f0 \u00cdsafir\u00f0i og um land allt<\/p>\n<p> Ver\u00f0launas\u00fdningin og vins\u00e6lasta leikrit allra t\u00edma \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um ver\u00f0ur n\u00fa s\u00fdnt fimmta leik\u00e1ri\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0 en leikurinn hefur veri\u00f0 s\u00fdndur h\u00e1tt \u00ed 200 sinnum. <\/p>\n<p> <strong>J\u00f3lasveinar Gr\u00fdlusynir<\/strong><br \/> H\u00f6fundar: Elfar Logi Hannesson, Soff\u00eda Vagnsd\u00f3ttir Leikstj\u00f3ri: Soff\u00eda Vagnsd\u00f3ttir<br \/> Leikari: Elfar Logi Hannesson Leikmynd, br\u00fa\u00f0ur, gr\u00edmur: Marsibil G. Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir<br \/> Lj\u00f3sah\u00f6nnun: J\u00f3hann Dan\u00edel Dan\u00edelsson T\u00f3nlist: Hr\u00f3lfur Vagnsson<br \/> S\u00fdningart\u00edmabil: N\u00f3vember \u0096 desember 2008<br \/> S\u00fdningarsta\u00f0ur: Tj\u00f6ruh\u00fasi\u00f0 \u00cdsafir\u00f0i og um land allt<\/p>\n<p> H\u00e9r er \u00e1 fer\u00f0inni sprellfj\u00f6rugur leikur um g\u00f6mlu \u00edslensku j\u00f3lasveinanna og \u00fdmsum spurningum reynt a\u00f0 svara um \u00feessa skr\u00edtnu kalla. Hvers vegna er St\u00fafur minnstur j\u00f3lasveinanna? Af hverju er Stekkjastaur svona h\u00e1r til hn\u00e9sins? Var fj\u00f3rt\u00e1ndi j\u00f3lasveinninn til? Eru Askasleikir og Bj\u00fagnakr\u00e6kir tv\u00edburar? Allt \u00feetta og miklu meira f\u00e1um vi\u00f0 a\u00f0 heyra um \u00ed s\u00fdningunni um Gr\u00fdlusynina. \u00dev\u00ed inn\u00ed \u00e6vint\u00fdri\u00f0 fl\u00e9ttast allt anna\u00f0 \u00e6vint\u00fdri um n\u00fat\u00edma unglingspilt sem hefur veri\u00f0 sendur til fjalla a\u00f0 leita a\u00f0 k\u00fanni B\u00fakollu. J\u00f3lasveinar Gr\u00fdlusynir er br\u00e1\u00f0fj\u00f6rugur j\u00f3laleikur me\u00f0 miki\u00f0 af t\u00f3nlist og almennu j\u00f3lasveinasprelli a\u00f0 h\u00e6tti g\u00f6mlu \u00edslensku j\u00f3lasveinanna.<br \/> J\u00f3lasveinar Gr\u00fdlusynir hefur fengi\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rar vi\u00f0t\u00f6kur barna \u00e1 \u00f6llum aldri og er leikurinn n\u00fa a\u00f0 hefja sitt anna\u00f0 leik\u00e1r.<\/p>\n<p> <strong>P\u00e9tur og Einar<\/strong><br \/> H\u00f6fundur, leikstj\u00f3ri: Soff\u00eda Vagnsd\u00f3ttir Leikari: Elfar Logi Hannesson<br \/> T\u00f3nlist: Hr\u00f3lfur Vagnsson ofl<br \/> S\u00fdningart\u00edmabil: September, n\u00f3vember 2008. Mars \u0096 ag\u00fast 2009<br \/> S\u00fdningarsta\u00f0ur: Einarsh\u00fas Bolungarv\u00edk<\/p>\n<p> Elfar Logi t\u00falkar l\u00edf og st\u00f6rf \u00feeirra manna sem settu hva\u00f0 mestan svip \u00e1 Bolungarv\u00edk \u00e1 miklum uppgangst\u00edmum og sveipar s\u00f6gu \u00feeirra \u00e6vint\u00fdralj\u00f3ma. Frumkv\u00f6\u00f0larnir P\u00e9tur Oddsson og Einar Gu\u00f0finnsson voru miklir athafnamenn hvor \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og stj\u00f3rnu\u00f0u st\u00f3rveldum s\u00ednum af sk\u00f6rungsskap. \u00deeir bjuggu b\u00e1\u00f0ir \u00ed h\u00fasi harma og hamingju, P\u00e9tursh\u00fasi sem s\u00ed\u00f0ar var nefnt Einarsh\u00fas. Leikurinn hefur fengi\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rar vi\u00f0t\u00f6kur \u00e1horfenda enda er h\u00e9r \u00e1 fer\u00f0inni vanda\u00f0 verk og st\u00f3rmerkileg saga \u00far sj\u00e1var\u00feorpi. <\/p>\n<p> <strong>Vestfirskur h\u00faslestur<\/strong><br \/> \u00cd samstarfi vi\u00f0 Safnah\u00fasi\u00f0 \u00cdsafir\u00f0i<br \/> B\u00f3kmenntadagkr\u00e1 \u00ed umsj\u00f3n Elfars Loga Hannessonar og J\u00f3nu S\u00edmon\u00edu Bjarnad\u00f3ttur<br \/> S\u00fdningart\u00edmabil: N\u00f3vember 2008 \u0096 ma\u00ed 2009<br \/> S\u00fdningarsta\u00f0ur: Gamla sj\u00fakrah\u00fasi\u00f0 (Safnah\u00fasi\u00f0) \u00cdsafir\u00f0i<br \/> A\u00f0gangur \u00f3keypis<br \/> M\u00e1na\u00f0arlega \u00ed vetur stendur K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 \u00ed samstarfi vi\u00f0 Safnah\u00fasi\u00f0 \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i fyrir Vestfirskum h\u00faslestri. Teki\u00f0 ver\u00f0ur fyrir eitt e\u00f0a fleiri sk\u00e1ld hverju sinni sem tengjast Vestfj\u00f6r\u00f0um \u00e1 einn e\u00f0a annan m\u00e1ta. <\/p>\n<p> <strong>Leiklestrar \u0096 \u00cdslenskir einleikir<\/strong><br \/> S\u00fdningart\u00edmabil: N\u00f3vember 2008 \u0096 ma\u00ed 2009<br \/> S\u00fdningarsta\u00f0ur: Tj\u00f6ruh\u00fasi\u00f0<br \/> A\u00f0gangur \u00f3keypis<br \/> K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 mun \u00e1 leik\u00e1rinu standa fyrir nokkrum leiklestra kv\u00f6ldum. Fluttir ver\u00f0a valinkunnir og \u00f3kunnir \u00edslenskir einleikir. Flytjendur ver\u00f0a leikarar \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. Leiklestrarnir ver\u00f0a haldnir annan hvern m\u00e1nu\u00f0 og ver\u00f0ur s\u00e1 fyrsti \u00ed n\u00f3vember og s\u00e1 s\u00ed\u00f0asti \u00ed ma\u00ed. N\u00e1nari uppl\u00fdsingar um leiklestrana \u00e1 heimas\u00ed\u00f0unni.<\/p>\n<p> <strong>Act alone leiklistarh\u00e1t\u00ed\u00f0<\/strong><br \/> S\u00fdningart\u00edmabil: 1. \u0096 5. j\u00fal\u00ed \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i<br \/> S\u00fdningarsta\u00f0ur: \u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur og n\u00e1grenni<br \/> Heimas\u00ed\u00f0a: www.actalone.net<br \/> A\u00f0gangur \u00f3keypis<br \/> Act alone leiklistarh\u00e1t\u00ed\u00f0in ver\u00f0ur haldin sj\u00f6tta \u00e1ri\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0 \u00e1ri\u00f0 2009 \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i en K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 s\u00e9r um listr\u00e6nastj\u00f3rnun h\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar. Act alone er helgu\u00f0 einleikjum og er eina h\u00e1t\u00ed\u00f0 sinnar tegundar \u00e1 \u00cdslandi. H\u00e1t\u00ed\u00f0in hefur noti\u00f0 f\u00e1d\u00e6ma vins\u00e6lda og hafa fj\u00f6lmargir listamenn komi\u00f0 fram \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0inni m\u00e1 \u00fear nefna Eric Bogosian, Felix Bergsson, Gu\u00f0r\u00fanu \u00c1smundsd\u00f3ttur, Hallveigu Thorlacius, H\u00f6r\u00f0 Torfa, Ilmi Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur, Kristj\u00e1n Ingimarsson, Ole Brekke og marga marga fleiri. \u00c1 Act alone 2009 ver\u00f0ur bo\u00f0i\u00f0 upp\u00e1 fj\u00f6lda innlendra og erlendra einleikja og a\u00f0 vanda er a\u00f0gangur \u00f3keypis. Allar uppl\u00fdsingar og dagskr\u00e1 Act alone er a\u00f0 finna \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u h\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar. <\/p>\n<p> <strong>Hlj\u00f3\u00f0b\u00e6kur K\u00f3med\u00eduleikh\u00fassins<\/strong><br \/> K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 gefur \u00fat tv\u00e6r hlj\u00f3\u00f0b\u00e6kur \u00e1 leik\u00e1rinu. Fyrri hlj\u00f3\u00f0b\u00f3kin kemur \u00fat fyrir j\u00f3l og nefnist \u00dej\u00f3\u00f0s\u00f6gur af Str\u00f6ndum og er \u00fea\u00f0 fimmta hlj\u00f3\u00f0b\u00f3k leikh\u00fassins. \u00cd vor ver\u00f0ur s\u00ed\u00f0an gefin \u00fat hlj\u00f3\u00f0b\u00f3kin \u00dej\u00f3\u00f0s\u00f6gur fr\u00e1 S\u00fa\u00f0av\u00edk. Hlj\u00f3\u00f0b\u00e6kur K\u00f3med\u00eduleikh\u00fassins f\u00e1st \u00ed vefverslun leikh\u00fassins www.komedia.is og \u00ed verslunum um land allt.<\/p>\n<p> <strong>Hur\u00f0askellir og St\u00fafur m\u00e1la b\u00e6inn rau\u00f0ann<\/strong><br \/> K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 hefur endurn\u00fdja\u00f0 samstarfssamning vi\u00f0 j\u00f3lasveinana Hur\u00f0askelli og St\u00faf. Leikh\u00fasi\u00f0 hefur s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin s\u00e9\u00f0 um a\u00f0 skipuleggja fer\u00f0lag \u00feeirra til bygg\u00f0a me\u00f0 g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri og er \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 segja a\u00f0 sveinarnir hafi m\u00e1la\u00f0 b\u00e6inn rau\u00f0ann. Sveinarnir koma \u00ed sk\u00f3la, \u00e1 j\u00f3lab\u00f6ll og bara allssta\u00f0ar \u00fear sem f\u00f3lk kemur saman.<\/p>\n<p> <\/p>\n<div align=\"right\"> {mos_fb_discuss:3} <\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Leik\u00e1r K\u00f3med\u00eduleikh\u00fassins er b\u00e6\u00f0i ferskt og klass\u00edskt. Alls ver\u00f0a sex s\u00fdningar \u00e1 fj\u00f6lum leikh\u00fassins \u00e1 n\u00fdju leik\u00e1ri \u00fear \u00e1 me\u00f0al frums\u00fdnir K\u00f3med\u00eduleikh\u00fasi\u00f0 n\u00fdjan \u00cdslenskan einleik,\u00a0 Au\u00f0un og \u00edsbj\u00f6rninn, sem er bygg\u00f0ur \u00e1 samnefndum \u00cdslendinga\u00fe\u00e6tti sem er \u00e1n efa s\u00e1 besti og vanda\u00f0asti \u00cdslendinga\u00fe\u00e1tta. \u00cd Au\u00f0un og \u00edsbj\u00f6rninn halda Elfar Logi og Soff\u00eda Vagnsd\u00f3ttir \u00e1fram fars\u00e6lu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":1948,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187],"tags":[],"class_list":["post-1949","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1949","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1949"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1949\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1949"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1949"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1949"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}