{"id":190,"date":"2005-08-12T20:21:28","date_gmt":"2005-08-12T20:21:28","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=190"},"modified":"2020-03-02T09:53:34","modified_gmt":"2020-03-02T09:53:34","slug":"leiksgar-ins","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/leiksgar-ins\/","title":{"rendered":"Leiks\u00fdningar \u00e1rsins"},"content":{"rendered":"<p> J&aelig;ja, n\u00fa er vetur \u00far b&aelig; (sj&ouml;n\u00edu&thorn;rett\u00e1n!), frums\u00fdningum allt a&eth; &thorn;v\u00ed loki&eth; a&eth; sinni og t\u00edmi til a&eth; bl\u00e1sa \u00far n&ouml;s og l\u00edta yfir farinn veg. Einhvernveginn er m&eacute;r or&eth;i&eth; tamt a&eth; hugsa \u00ed listaformi og &thorn;v\u00ed \u00e1kva&eth; &eacute;g a&eth; setja saman einn sl\u00edkan um &thorn;&aelig;r s\u00fdningar sem orku&eth;u sterkast \u00e1 mig af &thorn;eim sem &eacute;g s\u00e1 \u00ed vetur.<\/p>\n<p> Hafa ber \u00ed huga a&eth; au&eth;vita&eth; s\u00e1 &eacute;g ekki n\u00e1ndar n&aelig;rri allar s\u00fdningar sem frums\u00fdndar voru \u00e1 leik\u00e1rinu. Eins var &eacute;g &thorn;\u00e1tttakandi \u00ed tveimur, sem &eacute;g held a&eth; ekki s&eacute; ofsagt a&eth; hef&eth;u b\u00e1&eth;ar rata&eth; inn \u00e1 listann hef&eth;i &eacute;g seti&eth; \u00ed salnum en ekki h\u00fakt baksvi&eth;s e&eth;a uppi \u00e1 priki a&eth; freta \u00ed fagott og berja xyl\u00f3f\u00f3na. Allavega l&aelig;t &eacute;g listann va&eth;a og hvet um lei&eth; a&eth;ra til a&eth; fylgja ford&aelig;minu og gera \u00e1 sinn h\u00e1tt upp leik\u00e1ri&eth; eins og &thorn;a&eth; horfir vi&eth; vi&eth;komandi.<\/p>\n<p> S\u00fdningunum er ra&eth;a&eth; \u00ed t\u00edmar&ouml;&eth; eftir &thorn;v\u00ed hven&aelig;r &eacute;g s\u00e1 &thorn;&aelig;r.<\/p>\n<p> Leikf&eacute;lag K\u00f3pavogs: Hinn eini sanni<br \/> \u00c9g hef s&eacute;&eth; &thorn;essa sakam\u00e1lapar\u00f3d\u00edu Toms Stoppards nokkrum sinnum og aldrei s&eacute;&eth; hana virka fyrr en \u00ed K\u00f3pavoginum \u00ed haust, &thorn;\u00f3 &eacute;g hl&aelig;gi enn upph\u00e1tt &thorn;egar &eacute;g les hana, sem &eacute;g geri reglulega. Allt veltur \u00e1 a&eth; reyna ekki a&eth; b\u00faa til &quot;fynd&quot;, heldur lifa sig inn \u00ed klisjurnar af alefli. &THORN;a&eth; var gert h&eacute;r, \u00e1 &ouml;llum svi&eth;um, \u00ed leikmynd, gerfum, b\u00faningum, leikmunum og s\u00ed&eth;ast en ekki s\u00edst \u00ed leikst\u00edl. \u00datkoman var fyrirsj\u00e1anlega fr\u00e1b&aelig;r hj\u00e1 Bjarna Gu&eth;marssyni, leikstj\u00f3ra, og li&eth;sm&ouml;nnum hans.<\/p>\n<p> Be&eth;i&eth; eftir Godot<br \/> &THORN;a&eth; hef&eth;i &thorn;urft a&eth; smala &ouml;llum &thorn;eim sem halda a&eth; Beckett s&eacute; lei&eth;inlegur \u00e1 &thorn;essa fr\u00e1b&aelig;ru uppf&aelig;rslu Peromeistarans Peter Enquist. Hann og \u00f3a&eth;finnanlegur leikh\u00f3purinn skildu fullomlega hinn tr\u00fa&eth;ska grunnt\u00f3n \u00ed verkinu (Beckett var mikill Buster Keaton a&eth;d\u00e1andi, muni&eth;i). Sem ger&eth;i s\u00fdninguna b&aelig;&eth;i \u00e1takanlega, tr\u00faver&eth;uga og aldeilis drepfyndna. &THORN;etta var lagi&eth;!<\/p>\n<p> &THORN;j\u00f3&eth;leikh\u00fasi&eth;: Hver er hr&aelig;ddur vi&eth; Virgin\u00edu Woolf?<br \/> Eitt besta leikrit allra t\u00edma f&eacute;kk eftirminnilega me&eth;fer&eth; hj\u00e1 Kjartani Ragnarssyni og &ouml;flugum leikh\u00f3p. Aldrei &thorn;essu vant ver&eth;ur &thorn;a&eth; l\u00edklega p\u00edslin Honn\u00ed sem f&aelig;r varanlegt heimili \u00ed minninu, umfram b&aelig;&eth;i Georg og M&ouml;rtu. T\u00falkun Ingu Mar\u00edu Valdimarsd\u00f3ttur var ekkert minna en &aelig;&eth;i. &THORN;a&eth; dregur ekki \u00far gle&eth;inni me&eth; &thorn;essa sterku s\u00fdningu a&eth; \u00e1hugi Kjartans \u00e1 verkinu endurkvikna&eth;i \u00ed Leiklistarsk\u00f3la Bandalagsins &thorn;egar unni&eth; var me&eth; &thorn;a&eth; \u00e1 n\u00e1mskei&eth;i hj\u00e1 honum og Sigr\u00ed&eth;i Margr&eacute;ti.<\/p>\n<p> Herran\u00f3tt: Millj\u00f3nam&aelig;rin sn\u00fdr aftur<br \/> Me&eth;an flest hinna menntask\u00f3laf&eacute;laganna tro&eth;a marva&eth;ann \u00ed &quot;stj\u00f3rsj\u00f3unum&quot; var&eth;veitir hin fornfr&aelig;ga Herran\u00f3tt leikh\u00faslega samvisku &thorn;eirra og fer n\u00e1tt\u00farulega vel \u00e1 &thorn;v\u00ed. &THORN;unglamalegt en eitursnjallt leikrit D&uuml;rrenmatts er ekkert barname&eth;f&aelig;ri, en kannski &thorn;urfti galgopaskap unglinganna til a&eth; bl\u00e1sa \u00ed &thorn;a&eth; svi&eth;sl\u00edfi. Allavega var &thorn;etta firnavel gert hj\u00e1 Herran\u00f3tt, og &thorn;\u00f3 ekki s\u00edst hj\u00e1 Magn\u00fasi Geir leikstj\u00f3ra sem virtist geta ausi&eth; endalaust \u00far hugmyndaau&eth;gi vi&eth; umfer&eth;arstj\u00f3rn og upp\u00e1t&aelig;ki.<\/p>\n<p> &nbsp;<br \/> Fi&eth;lari1Umf. Efling: Fi&eth;larinn \u00e1 &thorn;akinu<br \/> Fj\u00f3r&eth;a uppf&aelig;rslan sem &eacute;g kynnist \u00e1 &thorn;essum meistaralega s&ouml;ngleik, og svei m&eacute;r ef h\u00fan er ekki s\u00fa \u00e1hrifamesta. S\u00fa innbl\u00e1sna \u00e1kv&ouml;r&eth;un leikstj\u00f3rans, Arn\u00f3rs Ben\u00f3n\u00fdssonar, a&eth; l\u00e1ta Show-elementin l&ouml;nd og lei&eth; og einbeita s&eacute;r a&eth; s&ouml;gunni og pers\u00f3nunum skila s&eacute;r margfalt \u00ed \u00e1hrifum, og er sk\u00f3lab\u00f3kard&aelig;mi um hvernig sn\u00faa m\u00e1 veikleikum \u00ed styrkleika. Flestir Tevye-ar sem &eacute;g hef s&eacute;&eth; syngja betur en J\u00f3n Fri&eth;rik, &thorn;a&eth; var betur dansa&eth; \u00e1 Akureyri og flottari hlj\u00f3msveit \u00ed &THORN;j\u00f3&eth;leikh\u00fasinu &#8211; en samt&#8230; Hjarta&eth; \u00ed verkinu sl\u00f3 fyrir allra augum \u00ed Brei&eth;um\u00fdri og \u00e1 endanum er &thorn;a&eth; &thorn;a&eth; sem lifir \u00ed minningunni. Gl&aelig;silegt.<\/p>\n<p> Leikf&eacute;lag Reykjav\u00edkur: And Bj&ouml;rk, of course&#8230;<br \/> &THORN;orvaldur &THORN;orsteinsson k\u00edkir ofan \u00ed s\u00e1lar- og si&eth;fer&eth;isker n\u00fat\u00edma\u00edslendingsins me&eth; sinni \u00edsmeygilegu a&eth;fer&eth; og varpar &thorn;v\u00ed sem hann finnur upp \u00e1 st\u00f3ran skerm okkur til hryllingsblandinnar skemmtunar. Ef &thorn;etta v&aelig;ri topp-einn-listi st&aelig;&eth;i &thorn;essi eftir. Allt gengur upp; verki&eth;, h\u00f3purinn, umgj&ouml;r&eth;in, leikstj\u00f3rnin, meira a&eth; segja endirinn sem sumir ku hafa hnykla&eth; br\u00fanir yfir. Magna&eth;, ma&eth;ur, magna&eth;.<\/p>\n<p> &nbsp;<br \/> hann-h\u00f3pur<\/p>\n<p> Leikf&eacute;lagi&eth; S\u00fdnir: Hann<br \/> Stundum eru einu vitr&aelig;nu vi&eth;br&ouml;g&eth;in vi&eth; leiks\u00fdningum a&eth; gapa eins og h\u00e1lfviti. Svo var um &thorn;essa \u00f3v&aelig;ntu tilraunaperlu J\u00fal\u00edusar J\u00fal\u00edussonar og hans &ouml;fluga leikh\u00f3ps \u00e1 ein&thorn;\u00e1ttungah\u00e1t\u00ed&eth; Bandalagsins \u00e1 Hallormsta&eth; n\u00fa \u00ed vor. Skipulag&eth;ur og vel undirbygg&eth;ur spuni sem leikararnir h&ouml;f&eth;u gengi&eth; lengi me&eth; \u00ed maganum sprakk \u00fat \u00e1 h\u00e1rr&eacute;ttu augnabliki, og n\u00e1&eth;i a&eth; vera sannur \u00e1 &thorn;ann \u00e1reynslulausa h\u00e1tt sem ma&eth;ur s&eacute;r einna helst \u00ed Dogma-myndunum og verkum Mike Leigh. \u00d3gleymanlegt.<\/p>\n<p> &nbsp;<\/p>\n<p> Leikf&eacute;lag Reykjav\u00edkur: Fyrst er a&eth; f&aelig;&eth;ast<br \/> Kostuleg blanda af rauns&aelig;i,&nbsp; s\u00farreal\u00edskum h\u00famor og barnslegri einl&aelig;gni einkenna &thorn;etta leikrit Line Knutzon sem er greinilega spennandi h&ouml;fundur sem vert er a&eth; kynna s&eacute;r n\u00e1nar. S\u00fdningin var d\u00e1samlega skemmtileg, og flott ger&eth; af Benedikt Erlingssyni og hans f\u00f3lki \u00e1 N\u00fdja svi&eth;inu.<\/p>\n<p> &nbsp;<\/p>\n<p> Leiklistarsk\u00f3li Bandalagsins: Tittlingatal<br \/> Fyrrnefndur J\u00fal\u00edus J\u00fal\u00edusson er ekki einhamur ma&eth;ur. H&eacute;r f&eacute;kk hann til li&eth;s vi&eth; sig tvo kynbr&aelig;&eth;ur s\u00edna og sau&eth; saman hl&aelig;gilegasta skemmtiatri&eth;i s\u00ed&eth;ari t\u00edma og flutti \u00e1 kv&ouml;ldv&ouml;ku Leiklistarsk\u00f3lans. B\u00f3ki&eth; &thorn;\u00e1 strax fyrir Verslunarmannahelgina og &thorn;orrabl\u00f3tin 2003.<\/p>\n<p> &nbsp;<\/p>\n<p> Leiklistarsk\u00f3li Bandalagsins: J&ouml;r&eth;in kl&aelig;&eth;ist hv\u00edtu \u00e1 vetrum<br \/> \u00cd \u00e1rlegri afraksturss\u00fdningu Leiklistarsk\u00f3la Bandalagsins er ma&eth;ur or&eth;inn vanur a&eth; sj\u00e1 \u00f3tr\u00falega hluti ver&eth;a til \u00e1 \u00f3mennskt stuttum t\u00edma. \u00cd \u00e1r voru &thorn;\u00f3 &ouml;ll met slegin, &thorn;egar t\u00f3lf stuttir leik&thorn;&aelig;ttir sem skrifa&eth;ir voru \u00ed sk\u00f3lanum voru svi&eth;settir \u00e1 einum og h\u00e1lfum t\u00edma og n\u00e1&eth;u allir a&eth; lifa. \u00cd heild miki&eth; afrek, en einn stendur upp\u00far. Einleikur Ylfu Mistar Helgad\u00f3ttur um litgreiningarkonu me&eth; fort\u00ed&eth; er innbl\u00e1sinn sk\u00e1ldskapur, flutningur Huldar \u00d3skarsd\u00f3ttur var magna&eth;ur og leikstj\u00f3rn og r\u00fdmishugsun Lindu Mar\u00edu \u00c1sgeirsd\u00f3ttur h\u00e1rr&eacute;tt. \u00d3gleymanlegt, jafnvel umfram &quot;&thorn;a&eth; venjulega&quot; \u00ed kraftaverkask\u00f3lanum.<\/p>\n<p> &THORN;orgeir Tryggvason<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>J&aelig;ja, n\u00fa er vetur \u00far b&aelig; (sj&ouml;n\u00edu&thorn;rett\u00e1n!), frums\u00fdningum allt a&eth; &thorn;v\u00ed loki&eth; a&eth; sinni og t\u00edmi til a&eth; bl\u00e1sa \u00far n&ouml;s og l\u00edta yfir farinn veg. Einhvernveginn er m&eacute;r or&eth;i&eth; tamt a&eth; hugsa \u00ed listaformi og &thorn;v\u00ed \u00e1kva&eth; &eacute;g a&eth; setja saman einn sl\u00edkan um &thorn;&aelig;r s\u00fdningar sem orku&eth;u sterkast \u00e1 mig af &thorn;eim sem [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[200],"tags":[],"class_list":["post-190","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-markvert","et-doesnt-have-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/190","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=190"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/190\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=190"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=190"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=190"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}