{"id":180,"date":"2005-08-12T19:55:18","date_gmt":"2005-08-12T19:55:18","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=180"},"modified":"2020-03-02T09:53:35","modified_gmt":"2020-03-02T09:53:35","slug":"erindi-gus-sigvaldasonar-inginu-leikstjhugaleikh299-2001","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/erindi-gus-sigvaldasonar-inginu-leikstjhugaleikh299-2001\/","title":{"rendered":"Erindi Gu\u00f0j\u00f3ns Sigvaldasonar \u00e1 m\u00e1l\u00feinginu Leikstj\u00f3rn \u00ed \u00e1hugaleikh\u00fasi 29.9. 2001"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g var be&eth;inn um a&eth; halda &thorn;etta erindi h&eacute;rna vegna &thorn;ess a&eth; &eacute;g er alltaf me&eth; kjaftinn uppi, hef sko&eth;anir \u00e1 &ouml;llu, er alltaf a&eth; skipta m&eacute;r af. Stundum hafa sko&eth;anir m\u00ednar vaki&eth; pirring, jafnvel rei&eth;i. \u00c9g hef t.d. heyrt a&eth; \u00e1kve&eth;i&eth; leikf&eacute;lag \u00e1 landinu hafi gefi&eth; \u00fat skotvei&eth;ileyfi \u00e1 mig. So. <\/p>\n<p>  Vi&eth; b\u00faum vi&eth; tj\u00e1ningarfrelsi og &thorn;egar &eacute;g l&aelig;t sko&eth;anir m\u00ednar \u00ed lj\u00f3si eru &thorn;&aelig;r ekki endilega r&eacute;ttar n&eacute; r&eacute;ttm&aelig;tar, &thorn;etta eru m\u00ednar sko&eth;anir og &eacute;g skammast m\u00edn ekkert fyrir &thorn;&aelig;r, enda hefur markmi&eth;i&eth; hj\u00e1 m&eacute;r &aelig;vinlega veri&eth; a&eth; a&eth; reyna a&eth; b&aelig;ta leiklistarstarfsemi \u00ed landinu.<\/p>\n<p>  Vi&eth; megum vera stolt af leiklistinni \u00ed landinu, vi&eth; erum &ouml;ll sprottin \u00far \u00e1hugahreyfingunni \u00e1 einn e&eth;a annan m\u00e1ta. Vi&eth; v&aelig;rum ekki a&eth; &thorn;essu ef vi&eth; hef&eth;um ekki \u00e1huga \u00e1 leiklist, jafnvel haldin \u00e1str\u00ed&eth;u sem oft kemur okkur \u00e1fram \u00ed &thorn;a&eth; a&eth; ver&eth;a atvinnumenn \u00ed &thorn;essu fagi. Vi&eth; &thorn;urfum &ouml;ll a&eth; hafa metna&eth; til a&eth; bera gagnvart hverju &thorn;v\u00ed verkefni sem vi&eth; st&ouml;rfum a&eth;. &THORN;a&eth; \u00e1 ekki a&eth; skipta m\u00e1li um hvernig s\u00fdningu er a&eth; r&aelig;&eth;a, ef allir leggjast \u00e1 eitt me&eth; a&eth; gera sitt besta gerast oftast kraftaverk. <\/p>\n<p>  &ndash; gera \u00e1hugaleikf&eacute;l&ouml;gin n&aelig;gilegar listr&aelig;nar kr&ouml;fur til leikstj\u00f3ranna?<br \/>  \u00c1hugaleikf&eacute;l&ouml;gin \u00ed landinu eru fj&ouml;lm&ouml;rg, ger\u00f3l\u00edk og byggja \u00e1 mismunandi grunni, reynslu og hef&eth;a \u00ed hverju leikf&eacute;lagi fyrir sig. &THORN;v\u00ed er ekki alltaf r&eacute;ttm&aelig;tt a&eth; bera saman verkefnaval \u00e1 milli f&eacute;laganna. &THORN;a&eth; er ekki &thorn;a&eth; sama fyrir leikf&eacute;lag Rang&aelig;inga og leikf&eacute;lag Flj\u00f3tsdalsh&eacute;ra&eth;s a&eth; setja upp Kardimommub&aelig;inn, &thorn;a&eth; er heldur ekki sama fyrir Leikf&eacute;lag Sau&eth;arkr\u00f3ks og Leikf&eacute;lag Hverager&eth;is og Leikf&eacute;lag K\u00f3pavogs e&eth;a &ouml;nnur leikf&eacute;l&ouml;g. &THORN;v\u00ed &thorn;egar leikh\u00f3pur kemur saman me&eth; \u00e1kve&eth;i&eth; verk \u00ed huga er h\u00f3purinn kominn me&eth; kr&ouml;fur, kr&ouml;fur til sj\u00e1lfs s\u00edn, kr&ouml;fur til leikstj\u00f3rans, en &thorn;\u00e1 vaknar s\u00fa spurning, hva&eth; eru n&aelig;gilegar listr&aelig;nar kr&ouml;fur. Eru n&aelig;gilegar listr&aelig;nar kr&ouml;fur a&eth; leikstj\u00f3rinn s&eacute; bara b\u00fain a&eth; lesa handriti&eth;? A&eth; leikstj\u00f3rinn s&eacute; komin me&eth; hugmynd a&eth; \u00fatf&aelig;rslu verksins? A&eth; leikstj\u00f3rinn s&eacute; m&aelig;ttur \u00e1 sta&eth;inn?<\/p>\n<p>  \u00c9g hef starfa&eth; me&eth; fj&ouml;lm&ouml;rgum mimunandi leikf&eacute;l&ouml;gum, sem gert hafa mismunandi listr&aelig;nar kr&ouml;fur til m\u00edn, \u00ed allflestum tilvikanna hefur samstarfi&eth; enda veri&eth; fars&aelig;lt. \u00c9g veit hva&eth;a listr&aelig;nu krafna &eacute;g \u00f3ska eftir, og oftastn&aelig;r helst &thorn;a&eth; \u00ed hendur vi&eth; &thorn;&aelig;r listr&aelig;nu kr&ouml;fur sem &eacute;g geri til sj\u00e1lfs m\u00edn. <\/p>\n<p>  &ndash; gera leikstj\u00f3rar n&aelig;gilegar listr&aelig;nar kr&ouml;fur til leikf&eacute;laganna?<br \/>  Vi&eth; vitum a&eth; leikf&eacute;l&ouml;gin \u00ed landinu eru \u00ed mismunandi stakk b\u00fain til a&eth; takast \u00e1 vi&eth; uppsetningu leiks\u00fdningar, hva&eth;a h\u00fasakost hafa &thorn;au, hvernig er mannskapurinn samansettur. Eiga &thorn;au lj\u00f3sab\u00fana&eth;, b\u00faningasafn osfv. &THORN;a&eth; er heldur ekki sama hj\u00e1 hva&eth;a leikf&eacute;lagi leikstj\u00f3ri er a&eth; fara a&eth; setja upp. <br \/>  Er leikstj\u00f3rinn a&eth; leikst\u00fdra &thorn;arna \u00ed fyrsta skipti e&eth;a hefur hann veri&eth; &thorn;ar<br \/>  \u00e1&eth;ur og &thorn;ekkir til? &THORN;v\u00ed betri uppl\u00fdsingar sem leikf&eacute;lag getur gefi&eth; leikstj\u00f3ra \u00e1&eth;ur en hann kemur til starfa hj\u00e1 leikf&eacute;laginu &thorn;v\u00ed meiri og betri listr&aelig;nar kr&ouml;fur getur leikstj\u00f3rinn gert til f&eacute;lagsins, &thorn;v\u00ed fyrr sem leikf&eacute;l&ouml;gin r\u00e1&eth;a leikstj\u00f3rann &thorn;v\u00ed betur getur hann kynnt s&eacute;r f&eacute;lagi&eth; og komi&eth; fram me&eth; listr&aelig;nar kr&ouml;fur til verkefnisins sem hann er a&eth; taka a&eth; s&eacute;r.<\/p>\n<p>  &THORN;etta \u00e1 ekki bara vi&eth; \u00e1hugaleikf&eacute;l&ouml;gin, &thorn;v\u00ed &thorn;a&eth; er enginn munur \u00e1 hvernig er leikst\u00fdrt \u00ed \u00e1hugaleikh\u00fasi og atvinnuleikh\u00fasi. Vi&eth; &thorn;urfum bara &ouml;ll a&eth; vera me&eth; kr&ouml;fur. En aftur hva&eth; eru n&aelig;gilegar listr&aelig;nar kr&ouml;fur? Er n&aelig;gilegt a&eth; krefjast &thorn;ess a&eth; leikf&eacute;lagi&eth; hafi haldi&eth; undirb\u00faningsfund me&eth; f&eacute;lagsm&ouml;nnum og kanna&eth; \u00e1huga f&eacute;lgasmanna? Er n&aelig;gilegt a&eth; leikf&eacute;lagi&eth; s&eacute; b\u00fai&eth; a&eth; finna s\u00fdningarh\u00fasn&aelig;&eth;i? Er n&aelig;gilegt a&eth; &thorn;a&eth; s&eacute; b\u00fai&eth; a&eth; lj\u00f3srita handritin &thorn;egar leikstj\u00f3ri m&aelig;tir \u00e1 fyrsta samlestur? Er n&aelig;gilegt a&eth; hugsa, &aelig; hann hefur veri&eth; h&eacute;r \u00e1&eth;ur, hann reddar &thorn;essu?<\/p>\n<p>  \u00c9g hef veri&eth; svo heppinn pers\u00f3nulega a&eth; vinna oft hj\u00e1 s&ouml;mu leikf&eacute;l&ouml;gunum, &thorn;annig a&eth; vi&eth; h&ouml;fum l&aelig;rt inn \u00e1 hvert anna&eth; og &thorn;v\u00ed h&ouml;fum vi&eth; geta&eth; auki&eth; listr&aelig;nu kr&ouml;furnar, &thorn;v\u00ed m\u00edn sko&eth;un er a&eth; listr&aelig;nar kr&ouml;fur eru aldrei n&aelig;gar, vi&eth; getum alltaf gert betur.<\/p>\n<p>  Er pl\u00e1ss fyrir n\u00fdsk&ouml;pun \u00ed samvinnu leikstj\u00f3ra og \u00e1hugaleikf&eacute;laga? &THORN;a&eth; hl\u00fdtur a&eth; vera pl\u00e1ss fyrir n\u00fdsk&ouml;pun \u00ed samvinnu leikstj\u00f3ra og leikf&eacute;laga, en hva&eth; er n\u00fdsk&ouml;pun \u00ed leikh\u00fasi? Er n\u00fdsk&ouml;pun a&eth; vinna me&eth; frumsami&eth; verk sem er \u00ed alla sta&eth;i hef&eth;bundi&eth;? Er n\u00fdsk&ouml;pun a&eth; takast \u00e1 vi&eth; fram\u00farstefnuverk? Er n\u00fdsk&ouml;pun a&eth; takast \u00e1 vi&eth; eitthva&eth; hef&eth;bundi&eth; \u00e1 \u00f3hef&eth;bundin m\u00e1ta? Er n\u00fdsk&ouml;pun a&eth; leikstj\u00f3ri sem unni&eth; hefur eing&ouml;ngu me&eth; drama setji upp farsa? Er n\u00fdsk&ouml;pun ekki a&eth; koma a&eth; hverju verki fyrir sig me&eth; opnu hugarfari til a&eth; gera &thorn;a&eth; besta \u00far verkefninu?<\/p>\n<p>  Samskipti \u00e1hugaleikf&eacute;laga og leikstj\u00f3ra &thorn;urfa a&eth; vera \u00e1 j\u00e1klv&aelig;&eth;an m\u00e1ta, vi&eth; megum ekki l\u00edta \u00e1 hvort anna&eth; sem \u00f3vininn, vi&eth; st&ouml;rfum vi&eth; geira &thorn;ar sem fars&aelig;lt samstarf allra hluta&eth;eigandi skapar &thorn;a&eth; kraftaverk sem leiks\u00fdning er, hvort sem um er a&eth; r&aelig;&eth;a atvinnumanninn sem gerir ekkert anna&eth; e&eth;a \u00e1hugamanninn sem gerir &thorn;etta eftir s\u00edna daglegu vinnu. \u00c1hugaleikh\u00fas er hross atvinnuleikarans.<\/p>\n<p>  Au&eth;vita&eth; getur komi&eth; upp \u00e1greiningur, en \u00ed hva&eth;a samskiptum gerir &thorn;a&eth; ekki? Er &thorn;a&eth; &thorn;v\u00ed ekki okkar a&eth; reyna a&eth; leysa \u00e1greiningsm\u00e1l \u00e1 fars&aelig;lan m\u00e1ta, l&aelig;ra af &thorn;v\u00ed og leggja til hli&eth;ar, horfa \u00e1 bj&ouml;rtu hli&eth;arnar og taka saman h&ouml;ndum og horfa til framt\u00ed&eth;ar me&eth; &thorn;a&eth; hugarfar a&eth; b&aelig;ta allt leikh\u00fas og leikh\u00fasl\u00edf \u00ed landinu. \u00c9g held vi&eth; getum &ouml;ll veri&eth; sammm\u00e1la um &thorn;a&eth; a&eth; leikf&eacute;l&ouml;gin \u00ed landinu berjast \u00ed b&ouml;kkunum vi&eth; a&eth; halda starfsemi sinni \u00e1fram, fj\u00e1rskortur hrj\u00e1ir flest &thorn;eirra. \u00c1hugaleysi stj\u00f3rnvalda sem og b&aelig;jaryfirvalda, halda aftur af &thorn;eim, \u00e1hugaleysi b&aelig;jarb\u00faa og margt fleira kemur til. <\/p>\n<p>  Oftast n&aelig;r heyrir ma&eth;ur a&eth; leikf&eacute;lagi&eth; hafi ekki efni \u00e1 a&eth; r\u00e1&eth;a til s\u00edn leikstj\u00f3ra, &thorn;\u00e1 kemur stundum til a&eth; leikf&eacute;l&ouml;gin r\u00e1&eth;i s&eacute;r heimaleikstj\u00f3ra, e&eth;a \u00f3fagl&aelig;r&eth;an leikstj\u00f3ra fr\u00e1 &ouml;&eth;ru f&eacute;lagi. En &thorn;a&eth; \u00e1 ekki a&eth; skipta m\u00e1li. Leikstj\u00f3ri er bara leikstj\u00f3ri. \u00c9g hef heyrt &thorn;v\u00ed fleygt a&eth; me&eth; &thorn;v\u00ed a&eth; stofna sinn eigin sk\u00f3la s&eacute;u leikf&eacute;l&ouml;gin a&eth; h&ouml;ggva af s&eacute;r eiginn f\u00f3t hva&eth; var&eth;ar fram&thorn;r\u00f3un \u00ed \u00e1hugaleiklist \u00e1 landinu. \u00c9g &aelig;tla ekki a&eth; d&aelig;ma um &thorn;a&eth;. Pers\u00f3nulega hef &eacute;g ekkert \u00e1 m\u00f3ti &thorn;v\u00ed a&eth; leikf&eacute;l&ouml;g s&eacute;u me&eth; sem flesta og fj&ouml;lbreyttasta leikstj\u00f3ra. <\/p>\n<p>  &THORN;a&eth; hefur lengi veri&eth; m\u00edn sko&eth;un a&eth; h&eacute;r \u00e1 landi vanti meiri hreyfanleika \u00ed leiklistarst&eacute;ttina. &THORN;v\u00ed &thorn;a&eth; er sta&eth;reynd a&eth; vi&eth; eigum \u00e1hugaleikara sem standa atvinnuleikurum ekkert a&eth; baki, &thorn;v\u00ed &aelig;tti svo a&eth; vera fari&eth; a&eth; atvinnuleikstj\u00f3rar s&eacute;u endilega h&aelig;fileikar\u00edkari heldur en margur \u00e1hugama&eth;urinn. Vi&eth; erum &ouml;ll fr\u00e1 s&ouml;mu pl\u00e1ntu. Vi&eth; erum &ouml;ll a&eth; reyna okkar besta. En sundrung sto&eth;ar engann, eing&ouml;ngu me&eth; samvinnu og samhug getum vi&eth; tekist \u00e1 vi&eth; a&eth; b&aelig;ta fj\u00e1rskort og &ouml;nnur \u00e1greiningefni, til a&eth; skapa me&eth;tna&eth;arfyllri leikh\u00fas, &thorn;ar sem fram&thorn;r\u00f3un er efst \u00e1 bla&eth;i. Finnum okkur sameiginlegar forsendur til leikh\u00fass framt\u00ed&eth;arinnar.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g var be&eth;inn um a&eth; halda &thorn;etta erindi h&eacute;rna vegna &thorn;ess a&eth; &eacute;g er alltaf me&eth; kjaftinn uppi, hef sko&eth;anir \u00e1 &ouml;llu, er alltaf a&eth; skipta m&eacute;r af. Stundum hafa sko&eth;anir m\u00ednar vaki&eth; pirring, jafnvel rei&eth;i. \u00c9g hef t.d. heyrt a&eth; \u00e1kve&eth;i&eth; leikf&eacute;lag \u00e1 landinu hafi gefi&eth; \u00fat skotvei&eth;ileyfi \u00e1 mig. So. Vi&eth; b\u00faum vi&eth; [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[200],"tags":[],"class_list":["post-180","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-markvert","et-doesnt-have-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/180","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=180"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/180\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=180"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=180"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=180"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}