{"id":1790,"date":"2008-03-18T14:04:35","date_gmt":"2008-03-18T14:04:35","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=1790"},"modified":"2008-03-18T14:04:35","modified_gmt":"2008-03-18T14:04:35","slug":"jdur-ogalandi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/jdur-ogalandi\/","title":{"rendered":"J\u00f6rundur \u00ed Logalandi"},"content":{"rendered":"<p> <em>Vi\u00f0 erum st\u00f6dd \u00ed Logalandi \u00ed Reykholtsdal. Hinu gamla en margst\u00e6kka\u00f0a f\u00e9lagsheimili hefur veri\u00f0 umturna\u00f0 og \u00fev\u00ed breytt \u00ed s\u00f6gusvi\u00f0 kr\u00e1arinnar Jokers &amp; Kings \u00ed London \u00fear sem saga J\u00f3nasar \u00c1rnasonar af J\u00f6rundi hundadagakonungi var s\u00f6g\u00f0 \u00e1 frums\u00fdningu s\u00ed\u00f0astli\u00f0i\u00f0 f\u00f6studagskv\u00f6ld.<\/em> <\/p>\n<p> \u00deannig hefst gagnr\u00fdni Magn\u00fasar Magn\u00fassonar \u00e1 leiks\u00fdninguna \u00dei\u00f0 muni\u00f0 hann J\u00f6rund sem Umf. Reykd\u00e6la s\u00fdnir um \u00feessar mundir \u00e1 100 \u00e1ra afm\u00e6li f\u00e9lagsins. Pistillinn er birtur me\u00f0 g\u00f3\u00f0f\u00faslegu leyfi h\u00f6fundar.  <\/p>\n<p>  <!--more--> <\/p>\n<p> <img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-full wp-image-1788\" style=\"margin: 5px; width: 200px; height: 128px; float: right\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2008\/03\/Adildarfelog_Vestur_Reykholt_07_08_jorundurfrett.jpg\" alt=\"jorundurfrett.jpg\" title=\"jorundurfrett.jpg\" width=\"200\" height=\"128\" \/><strong>Fj\u00f6rleg s\u00fdning unnin \u00far g\u00f3\u00f0um efnivi\u00f0i<\/strong><\/p>\n<p> Vi\u00f0 erum st\u00f6dd \u00ed Logalandi \u00ed Reykholtsdal. Hinu gamla en margst\u00e6kka\u00f0a f\u00e9lagsheimili hefur veri\u00f0 umturna\u00f0 og \u00fev\u00ed breytt \u00ed s\u00f6gusvi\u00f0 kr\u00e1arinnar Jokers &amp; Kings \u00ed London \u00fear sem saga J\u00f3nasar \u00c1rnasonar af J\u00f6rundi hundadagakonungi var s\u00f6g\u00f0 \u00e1 frums\u00fdningu s\u00ed\u00f0astli\u00f0i\u00f0 f\u00f6studagskv\u00f6ld. \u00deegar salurinn er opna\u00f0ur gestum taka leikarar \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim, heilsa og blanda ge\u00f0i \u00ed fullum skr\u00fa\u00f0a. Snj\u00f6ll lei\u00f0 til a\u00f0 gefa \u00e1horfendum kost \u00e1 a\u00f0 tengjast strax hinum fj\u00f6lbreyttu pers\u00f3num sem br\u00e1tt taka v\u00f6ldin og ekki s\u00ed\u00f0ur til a\u00f0 vi\u00f0ra svi\u00f0sskrekk, ef einhver hefur veri\u00f0, af leikf\u00f3lkinu. <\/p>\n<p> S\u00f6gusvi\u00f0i\u00f0 er marsm\u00e1nu\u00f0ur \u00e1ri\u00f0 1810 og Evr\u00f3pa er undirl\u00f6g\u00f0 af Nap\u00f3leonsstr\u00ed\u00f0unum. Leikh\u00f3pur kr\u00e1arinnar s\u00fdnir gestum sagnfr\u00e6\u00f0ilegt drama um ungan Dana, J\u00f6rgen J\u00f6rgensen sem h\u00e9lt til \u00cdslands \u00ed j\u00fal\u00ed 1809 til a\u00f0 kaupa af \u00cdslendingum t\u00f3lg sem nota skyldi \u00ed s\u00e1pu handa breska a\u00f0linum. Undarlegir atbur\u00f0ir ver\u00f0a til \u00feess a\u00f0 hann setur af hinn danska Trampe greifa, g\u00favenor yfir \u00cdslandi, og leggur landi\u00f0 undir sig fyrir h\u00f6nd bresku kr\u00fanunnar og tekur sj\u00e1lfur konungstign yfir \u00cdslandi. J\u00f6rgen J\u00f6rgensen, e\u00f0a J\u00f6rundur r\u00edkti h\u00e9r \u00e1 landi \u00ed sex vikur um hundadagana \u00e1ri\u00f0 1809 og f\u00e9kk vi\u00f0 \u00fea\u00f0 vi\u00f0urnefni\u00f0 Hundadagak\u00f3ngur. J\u00f3nas \u00c1rnason tekur s\u00e9r \u00ed verkinu sk\u00e1ldaleyfi, fer frj\u00e1lslega me\u00f0 sta\u00f0reyndir og kemur \u00e1 gamansaman h\u00e1tt fr\u00e1 s\u00e9r \u00feessari m\u00f6gnu\u00f0u s\u00f6gu af fyrstu kynnum \u00cdslendinga af sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i. Verki\u00f0, sem fyrst var s\u00fdnt \u00ed I\u00f0n\u00f3 \u00e1ri\u00f0 1970, hefur \u00e6 s\u00ed\u00f0an veri\u00f0 eitt vins\u00e6lasta h\u00e9rlenda leikverki\u00f0. J\u00f3nas orti fyrir \u00fea\u00f0 m\u00f6rg lj\u00f3\u00f0 vi\u00f0 \u00edrsk og skosk l\u00f6g sem fyrir l\u00f6ngu eru or\u00f0in samofin \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0ars\u00e1linni og krydda s\u00fdninguna svo um munar. M\u00e1 \u00fear nefna Ar\u00ed d\u00faar\u00ed d\u00fara dei, H\u00edfum \u00ed br\u00e6\u00f0ur, Barbara Riley og hi\u00f0 huglj\u00fafa v\u00f6ggulag B\u00edum b\u00edum bambal\u00f3.Leikger\u00f0 J\u00f6rundar n\u00fa er eftir Gu\u00f0mund Inga \u00deorvaldsson, sem jafnframt leikst\u00fdr\u00f0i verkinu. Honum tekst \u00e1 b\u00fdsna skemmtilegan h\u00e1tt a\u00f0 g\u00e6\u00f0a hana n\u00fdju l\u00edfi \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 eldri uppf\u00e6rslur. Leikh\u00fasi\u00f0 er n\u00fdtt \u00ed h\u00f6rgul og \u00e1horfendur eru vel tengdir vi\u00f0fangsefninu \u00fear sem leikurinn fer fram \u00e1 tvo vegu \u00ed salnum. Miki\u00f0 hefur veri\u00f0 lagt upp \u00far b\u00faningum allt fr\u00e1 s\u00ed\u00f0kj\u00f3l Fraukenarinnar og ni\u00f0ur \u00ed bremsufari\u00f0 \u00ed br\u00f3kum Sir Walters Raleigh. <\/p>\n<p> \u00dea\u00f0 var \u00e1n\u00e6gjuleg stund a\u00f0 upplifa stemninguna sem Gu\u00f0mundi Inga og h\u00e1lfu hundra\u00f0i leiklistar\u00e1hugaf\u00f3lks v\u00ed\u00f0svegar \u00far uppsveitum Borgarfjar\u00f0ar t\u00f3kst a\u00f0 skapa \u00ed Logalandi. Ekki fer \u00e1 milli m\u00e1la a\u00f0 mikill metna\u00f0ur hefur veri\u00f0 lag\u00f0ur \u00ed verkefni\u00f0 og ekki hefur spillt fyrir a\u00f0 kjarni leikf\u00f3lks er hokinn af reynslu fr\u00e1 fyrri t\u00ed\u00f0. A\u00f0 \u00feessu sinni voru \u00fe\u00f3 einnig kalla\u00f0ir til a\u00f0sto\u00f0ar leikarar \u00far n\u00e1grannasveitum enda um mannfrekt verk a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. M\u00e1 \u00fear nefna hj\u00f3nin \u00e1 Gullberast\u00f6\u00f0um sem b\u00e6\u00f0i fara \u00e1 kostum; Kari Berg sem Lady Beth og Sigur\u00f0ur b\u00f3ndi sem hinn l\u00e6v\u00edsi St\u00fad\u00ed\u00f3sus. \u00de\u00e1 er J\u00f6rundur sj\u00e1lfur \u00ed h\u00f6ndum Arnoddar Magn\u00fasar Danks, leikara sem ferst t\u00falkun \u00e1 hinum seinheppna J\u00f6rundi lipurlega \u00far hendi. \u00de\u00e1 f\u00f3ru \u00fer\u00edr br\u00e6\u00f0ur fr\u00e1 Geirshl\u00ed\u00f0 vel me\u00f0 s\u00edn hlutverk eins og jafnan \u00e1\u00f0ur, en mest m\u00e6ddi \u00e1 hinum mj\u00f6g svo laska\u00f0a Charlie Brown; eineyg\u00f0um, einf\u00e6ttum og me\u00f0 kr\u00f3k \u00ed sta\u00f0 h\u00e6gri handar. Me\u00f0 hlutverk Charlie, sem vissulega er anna\u00f0 a\u00f0alhlutverk leikritsins, fer J\u00f3n P\u00e9tursson \u00ed Bj\u00f6rk og ferst \u00fea\u00f0 afar vel \u00far \u0084hendi.\u0093 \u00de\u00e1 t\u00falkar Linda Bj\u00f6rk P\u00e1lsd\u00f3ttir mj\u00faklega hina \u00f3framf\u00e6ru Dala V\u00f6lu sem heillar J\u00f6rund.  <\/p>\n<p> <img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1789\" style=\"margin: 5px; float: left\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2008\/03\/Adildarfelog_Vestur_Reykholt_07_08_jorundurfors.jpg\" alt=\"jorundurfors.jpg\" title=\"jorundurfors.jpg\" width=\"140\" height=\"94\" \/> S\u00f6ngur og hlj\u00f3\u00f0f\u00e6raleikur gegnir mikilv\u00e6gu hlutverki \u00ed J\u00f6rundi. Tr\u00ed\u00f3i\u00f0 er vel skipa\u00f0 \u00feeim \u00deorvaldi \u00ed Brekkukoti, Hildi \u00e1 Sk\u00e1lpast\u00f6\u00f0um og J\u00f3ni fr\u00e1 Sta\u00f0arhrauni sem lei\u00f0a s\u00f6ng og taka undir me\u00f0 helstu leikurum \u00feegar \u00fearf, en fleiri spila undir \u00e1 hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri \u00e1 bak vi\u00f0 tj\u00f6ldin og gefa t\u00f3nlistinni \u00fe\u00e1 fyllingu sem \u00fearf. Vi\u00f0 uppf\u00e6rsluna var einnig leita\u00f0 til yngra f\u00f3lks v\u00ed\u00f0a \u00far h\u00e9ra\u00f0inu sem margt er a\u00f0 st\u00edga s\u00edn fyrstu skref \u00e1 svi\u00f0i \u00ed hlutverkum \u00cdslendinga, matr\u00f3sa og hn\u00e1tanna ge\u00f0\u00feekku. A\u00f0 \u00f6llum \u00f3l\u00f6stu\u00f0um kryddar \u00fe\u00e1tttaka \u00feessa unga f\u00f3lks s\u00fdninguna afar skemmtilegu og fersku yfirbrag\u00f0i. M\u00e1 nefna fi\u00f0lu- og flautuleikarann P\u00e9tur Bj\u00f6rnsson fr\u00e1 Hvanneyri og Laddie sem Logi Sigur\u00f0sson t\u00falkar lipurlega. Fleira ungt f\u00f3lk s\u00fdnir snilldartakta og er \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 nefna \u00deorstein \u00e1 Steind\u00f3rsst\u00f6\u00f0um, Helga \u00ed Reit, H\u00f6skuld \u00ed St\u00f3ra \u00c1si og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst Kristr\u00fanu \u00e1 Laxeyri sem a\u00f0 mati undirrita\u00f0s var senu\u00fej\u00f3fur kv\u00f6ldsins \u00ed hlutverki Fraukunnar. \u00c1 \u00feetta unga f\u00f3lk vonandi allt eftir a\u00f0 l\u00e1ta meira a\u00f0 s\u00e9r kve\u00f0a \u00e1 leiklistarbrautinni. <\/p>\n<p> \u00deessi blanda reynsluf\u00f3lks \u00ed leiklist og ungu kynsl\u00f3\u00f0arinnar n\u00fdtur s\u00edn vel \u00e1 fj\u00f6lunum \u00ed Logalandi. \u00c9g vil \u00f3ska Ungmennaf\u00e9lagi Reykd\u00e6la og \u00f6llum a\u00f0standendum \u00feessarar s\u00fdningar hjartanlega til hamingju. \u00deeim hefur enn \u00e1 n\u00fd tekist vel upp vi\u00f0 a\u00f0 skapa gott verk, a\u00f0 \u00feessu sinni me\u00f0 g\u00f3\u00f0um efnivi\u00f0i sem J\u00f3nas ger\u00f0i \u00e1 s\u00ednum t\u00edma \u00f3dau\u00f0legt me\u00f0 J\u00f6rundi. \u00deetta er vissulega veglegt afm\u00e6lisverk \u00e1 aldarafm\u00e6li og margar stundir sem liggja a\u00f0 baki vi\u00f0 undirb\u00faning og \u00e6fingar. Vil \u00e9g hvetja Vestlendinga n\u00e6r og fj\u00e6r til a\u00f0 gera s\u00e9r fer\u00f0 \u00ed Logaland n\u00fa \u00e1 \u00fatm\u00e1nu\u00f0um og samgle\u00f0jast me\u00f0 afm\u00e6lisbarninu.<\/p>\n<p> <em>Magn\u00fas Magn\u00fasson<\/em> <\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Vi\u00f0 erum st\u00f6dd \u00ed Logalandi \u00ed Reykholtsdal. Hinu gamla en margst\u00e6kka\u00f0a f\u00e9lagsheimili hefur veri\u00f0 umturna\u00f0 og \u00fev\u00ed breytt \u00ed s\u00f6gusvi\u00f0 kr\u00e1arinnar Jokers &amp; Kings \u00ed London \u00fear sem saga J\u00f3nasar \u00c1rnasonar af J\u00f6rundi hundadagakonungi var s\u00f6g\u00f0 \u00e1 frums\u00fdningu s\u00ed\u00f0astli\u00f0i\u00f0 f\u00f6studagskv\u00f6ld. \u00deannig hefst gagnr\u00fdni Magn\u00fasar Magn\u00fassonar \u00e1 leiks\u00fdninguna \u00dei\u00f0 muni\u00f0 hann J\u00f6rund sem Umf. Reykd\u00e6la s\u00fdnir [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":1787,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-1790","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1790","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1790"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1790\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1790"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1790"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1790"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}