{"id":1686,"date":"2008-01-22T12:05:28","date_gmt":"2008-01-22T12:05:28","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=1686"},"modified":"2008-01-22T12:05:28","modified_gmt":"2008-01-22T12:05:28","slug":"afar-skemmtileg-afmssg","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/afar-skemmtileg-afmssg\/","title":{"rendered":"Afar skemmtileg afm\u00e6liss\u00fdning"},"content":{"rendered":"<p>Leikf\u00e9lag Selfoss s\u00fdnir um \u00feessar mundir gamanleikinn Me\u00f0 t\u00e1ning \u00ed t\u00f6lvunni eftir einn virtasta og  vins\u00e6lasta farsah\u00f6fund heims \u00ed dag, Ray Cooney. Magn\u00fas J. Magn\u00fasson var \u00e1 frums\u00fdningunni \u00feann 11. jan\u00faar og skemmti s\u00e9r hi\u00f0 besta.<br \/>  <!--more--> <br \/> F\u00f6studaginn 11. jan\u00faar frums\u00fdndi Leikf\u00e9lag Selfoss gamanleikriti\u00f0 Me\u00f0 t\u00e1ning \u00ed t\u00f6lvunni eftir Ray Cooney \u00ed leikstj\u00f3rn J\u00f3ns Stef\u00e1ns Kristj\u00e1nssonar. Leikrit \u00feetta er fjallar um s\u00f6mu a\u00f0alpers\u00f3nur og leikriti\u00f0 Me\u00f0 v\u00edfi\u00f0 \u00ed l\u00fakunum sem leikf\u00e9lagi\u00f0 frums\u00fdndi 1999. \u00c9g s\u00e1 s\u00fdninguna 1999 og var mj\u00f6g hrifinn af henni, leikurinn hra\u00f0ur og uppsetningin afar skemmtileg. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed spennandi a\u00f0 sj\u00e1 s\u00fdninguna n\u00fana, sami h\u00f6fundur, leikstj\u00f3ri og a\u00f0alleikarar og \u00ed fyrri s\u00fdningunni en allt gerist r\u00famum \u00e1ratug seinna. S\u00fdningin \u00ed Leikh\u00fasinu vi\u00f0 Sigt\u00fan var g\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 er afar skemmtilegt a\u00f0 sj\u00e1 sama leikaragengi takast \u00e1 vi\u00f0 s\u00f6mu pers\u00f3nur um 10 \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar. \u00c9g var afar forvitinn um \u00feann hluta og \u00e9g var\u00f0 ekki fyrir vonbrig\u00f0um. S\u00fdningin rann \u00ed gegn, mikill hra\u00f0i, fl\u00f3kinn dyrafarsi, n\u00e1kv\u00e6mar innkomur, allt gekk upp \u00ed s\u00fdningunni. Leikgle\u00f0i einkenndi verki\u00f0 og \u00fea\u00f0 skila\u00f0i s\u00e9r beint til \u00e1horfandans.<\/p>\n<p> Eyj\u00f3lfur P\u00e1lmarson og Dav\u00ed\u00f0 Kristj\u00e1nsson eru miklir reynsluboltar \u00ed gamanleiknum. T\u00falkun Eyj\u00f3lfs \u00e1 hinum l\u00edfshra\u00f0a leigub\u00edlstj\u00f3ra John Smith var fr\u00e1b\u00e6r. Hann n\u00e6r \u00feeim tengslum a\u00f0 ma\u00f0ur stendur alltaf me\u00f0 honum, berst me\u00f0 honum \u00ed l\u00edfsins \u00f3lgusj\u00f3. \u00dea\u00f0 er sama hva\u00f0 sagt er um hi\u00f0 tv\u00f6falda l\u00edf hans \u00fe\u00e1 er hann \u00ed \u00fev\u00ed af fullum krafti og heilindum. John Smith \u00ed dag hefur \u00feroskast e\u00f0lilega \u00e1 \u00feessum \u00e1rum. Mikil keyrsla alla s\u00fdninguna og alltaf krafturinn sem Eyj\u00f3lfur setur \u00ed leikinn er fr\u00e1b\u00e6r. <\/p>\n<p> Stanley Gardner, hinn kostulegi leigjandi Smith hj\u00f3nanna er \u00f3borganlegur \u00ed t\u00falkun Dav\u00ed\u00f0s Kristj\u00e1nssonar. \u00dea\u00f0 er alveg a\u00f0d\u00e1unarvert \u00fea\u00f0 \u00fathald sem Dav\u00ed\u00f0 hefur \u00e1 svi\u00f0inu. Hann er inni\u00a0 n\u00e1nast alla s\u00fdninguna, \u00e1 hlaupum, dragandi og berandi \u00fdmsa hluti, hlaupandi og gangandi. Ma\u00f0ur ver\u00f0ur svo \u00fereyttur me\u00f0 honum, upplifir sig n\u00e1nast n\u00e6rri alltaf \u00ed vonlausri a\u00f0st\u00f6\u00f0u en alltaf tekst\u00a0 Stanley a\u00f0 bjarga s\u00e9r fyrir horn. T\u00falkun \u00feessara tveggja fr\u00e1b\u00e6ru gamanleikara var \u00f3vi\u00f0jafnanleg og samleikur \u00feeirra n\u00e1kv\u00e6mur og gekk upp.<\/p>\n<p> Eiginkonurnar tv\u00e6r, Mary Smith \u00ed t\u00falkun Gu\u00f0r\u00fanu H\u00f6llu J\u00f3nsd\u00f3ttur og Barbara Smith \u00ed t\u00falkun Gu\u00f0finnu Gunnarsd\u00f3ttur eru \u00f3l\u00edkar og \u00fea\u00f0 kemur vel fram. Mary er \u00ed verri m\u00e1lum. H\u00fan er ekki eing\u00f6ngu me\u00f0 \u00feennan mann sem lifir tv\u00f6f\u00f6ldu l\u00edfi heldur situr h\u00fan einnig uppi me\u00f0 Stanley, leigjandann og \u00e1 milli \u00feeirra er s\u00edfelld spenna. L\u00edf Mary er \u00fev\u00ed mun yfirspenntara en Barb\u00f6ru. Auk \u00feess hefur t\u00e1ningurinn Vicki b\u00e6st vi\u00f0. Gu\u00f0r\u00fan Halla t\u00falkar Mary \u00f3hemju vel. H\u00fan n\u00e6r a\u00f0 s\u00fdna pirringinn, \u00fereytuna, hra\u00f0ann\u00a0 en um lei\u00f0 \u00e1st og umhyggju. H\u00fan stendur me\u00f0 d\u00f3ttur sinni \u00ed hennar bar\u00e1ttu. \u00dea\u00f0 er gaman a\u00f0 sj\u00e1 Gu\u00f0r\u00fanu aftur me\u00f0 Leikf\u00e9laginu og\u00a0 vonandi ver\u00f0ur h\u00fan \u00e1fram \u00e1 svi\u00f0i leikh\u00fassins. Barbara er \u00ed \u00f6\u00f0rum g\u00edr. H\u00fan lifir r\u00f3legra l\u00edfi, er \u00f6rugg \u00ed s\u00ednum umhverfi og \u00fearf ekki a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 einhvern leigjanda. Sonurinn Gavin er kominn til skjalana og ber h\u00fan mikla umhyggju fyrir honum. H\u00fan er j\u00e1kv\u00e6\u00f0 og hrekklaus. Gu\u00f0finna n\u00e6r mj\u00f6g g\u00f3\u00f0um t\u00f6kum henni og n\u00e6r a\u00f0 s\u00fdna okkur \u00feennan karakter og undirstrikar vel hrekkleysi hennar og l\u00edfss\u00fdn. <\/p>\n<p> Ungu leikararnir tveir, Kolbr\u00fan Lilja Gu\u00f0nad\u00f3ttir , sem leikur Vicki, barn Mary og Johns og Ey\u00fe\u00f3r Helgason sem leikur Gavin, son Barb\u00f6ru og Johns, st\u00f3\u00f0u sig afar vel. Kolbr\u00fanu hef \u00e9g s\u00e9\u00f0 \u00e1\u00f0ur og fannst m\u00e9r leikur hennar \u00ed hlutverki Vickiar afar \u00e1reynslulaus og afslappa\u00f0ur. \u00dearna er reglulega skemmtileg leikkona \u00e1 upplei\u00f0, mj\u00f6g vel fari\u00f0 me\u00f0 hlutverki\u00f0 og \u00f3x jafnt og \u00fe\u00e9tt \u00ed gengum s\u00fdninguna. Ey\u00fe\u00f3r Helgason er a\u00f0 st\u00edga s\u00edn fyrstu spor me\u00f0 leikf\u00e9laginu og var \u00feessi frumraun hans honum til s\u00f3ma. Hann t\u00falka\u00f0i Gavin, \u00feennan \u00ferj\u00f3ska str\u00e1k, skemmtilega og ma\u00f0ur st\u00f3\u00f0 me\u00f0 honum \u00ed \u00feessum hremmingum allan t\u00edmann. Gaman a\u00f0 sj\u00e1 svona unga leikara koma svona sterkir inn. Pabba Stanleys l\u00e9k Hermann Dan M\u00e1sson og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 vel. Ver\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 \u00e9g skildi ekki alltaf veru pabbans \u00ed verkinu en \u00fea\u00f0 breytir \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 Hermann l\u00e9k hlutverki\u00f0 af innlifun og kom \u00feessum gamla karli vel til skila.<\/p>\n<p> Leikmynd s\u00fdningarinnar var mj\u00f6g g\u00f3\u00f0 og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 koma fram a\u00f0 s\u00e1 h\u00f3pur innan Leikf\u00e9lags Selfoss er vinnur \u00e1 bak vi\u00f0 tj\u00f6ldin vi\u00f0 leikmyndager\u00f0, l\u00fdsingu, b\u00faninga og anna\u00f0 er afar sterkur og er leikf\u00e9lagi\u00f0 \u00f6fundsvert af \u00feeim sterka h\u00f3p.<\/p>\n<p> \u00deessi afm\u00e6liss\u00fdning var mj\u00f6g g\u00f3\u00f0. H\u00fan er 67. s\u00fdningin \u00e1 50 \u00e1ra starfi Leikf\u00e9lagsins sem s\u00fdnir \u00f6flugt starf f\u00e9lagsins \u00ed gegnum \u00e1rin og a\u00f0 hlutverk \u00feess \u00ed menningarl\u00edfi Selfoss \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina er afar mikilv\u00e6gt og \u00f3metanlegt. \u00c9g og mitt f\u00f3lk skemmtum okkur konunglega, hl\u00f3gum allan t\u00edmann. Vi\u00f0 gengum \u00fat \u00ed jan\u00faarn\u00f3ttina og okkur lei\u00f0 vel. \u00dea\u00f0 er alltaf gott a\u00f0 a\u00f0 vera \u00ed g\u00f3\u00f0u Leikh\u00fasi og horfa \u00e1 g\u00f3\u00f0a leiks\u00fdningu.<\/p>\n<p> Til hamingju!<\/p>\n<p> Magn\u00fas J. Magn\u00fasson<\/p>\n<p> <\/p>\n<div align=\"right\"> {mos_fb_discuss:2} <\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Leikf\u00e9lag Selfoss s\u00fdnir um \u00feessar mundir gamanleikinn Me\u00f0 t\u00e1ning \u00ed t\u00f6lvunni eftir einn virtasta og vins\u00e6lasta farsah\u00f6fund heims \u00ed dag, Ray Cooney. Magn\u00fas J. Magn\u00fasson var \u00e1 frums\u00fdningunni \u00feann 11. jan\u00faar og skemmti s\u00e9r hi\u00f0 besta.<\/p>","protected":false},"author":3,"featured_media":1685,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-1686","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1686","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1686"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1686\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1686"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1686"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1686"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}