{"id":157,"date":"2002-11-28T00:00:00","date_gmt":"2002-11-28T00:00:00","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=157"},"modified":"2002-11-28T00:00:00","modified_gmt":"2002-11-28T00:00:00","slug":"hlegitt-ldavis","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/hlegitt-ldavis\/","title":{"rendered":"Hlegi\u00f0 d\u00e1tt \u00e1 Elda\u00f0 me\u00f0 Elvis"},"content":{"rendered":"<p> L\u00e1rus Vilhj\u00e1lmsson f\u00f3r um daginn \u00e1 eina af loka\u00e6fingum \u00e1 Elda\u00f0 me\u00f0 Elvis eftir Lee Hall og var bara nokku\u00f0 s\u00e1ttur vi\u00f0 stykki\u00f0. \u00der\u00e1tt fyrir nokkra hn\u00f6kra \u00e1 verkinu sj\u00e1lfu sem ekki ver\u00f0a laga\u00f0ir svo au\u00f0veldlega og sm\u00e1 klikk hj\u00e1 leikurum og t\u00e6knili\u00f0i (\u00feetta var \u00e6fing nota bene) l\u00edtur \u00feetta \u00fat fyrir a\u00f0 ver\u00f0a ansi skemmtileg s\u00fdning. Hann gefur verkinu 2 og h\u00e1lfa stj\u00f6rnu. <br \/> D\u00f3murinn \u00ed heild sinni er <a href=\"\/en\/page\/elvis\/\">h\u00e9r. <\/a>  <!--more-->  Hlegi\u00f0 d\u00e1tt \u00e1 Elda\u00f0 me\u00f0 Elvis<br \/> Steinn Elvis<br \/> ** \u00bd<\/p>\n<p> \u00c9g f\u00f3r um daginn \u00e1 eina af loka\u00e6fingum \u00e1 Elda\u00f0 me\u00f0 Elvis eftir Lee Hall og var bara nokku\u00f0 s\u00e1ttur vi\u00f0 stykki\u00f0. \u00der\u00e1tt fyrir nokkra hn\u00f6kra \u00e1 verkinu sj\u00e1lfu sem ekki ver\u00f0a laga\u00f0ir svo au\u00f0veldlega og sm\u00e1 klikk hj\u00e1 leikurum og t\u00e6knili\u00f0i (\u00feetta var \u00e6fing nota bene) l\u00edtur \u00feetta \u00fat fyrir a\u00f0 ver\u00f0a ansi skemmtileg s\u00fdning.<\/p>\n<p> En fyrst um verki\u00f0 sj\u00e1lft. M\u00e9r skilst a\u00f0 h\u00f6fundurinn Lee Hall s\u00e9 n\u00fdjasta fr\u00f3\u00f0\u00e1rundur \u00feeirra tjallana og skrifa\u00f0i v\u00edst handriti\u00f0 a\u00f0 \u00feeirri \u00f3l\u00edkindalegu Billy Elliot sem fjallar um l\u00e1gst\u00e9ttastr\u00e1k \u00ed Nor\u00f0ur Englandi sem vill frekar vera \u00ed ballet en f\u00f3tbolta!!! \u00der\u00e1tt fyrir afar \u00f3tr\u00falegan s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0 \u00fe\u00e1 var myndin bara ansi l\u00fankin og hj\u00e1lpa\u00f0i \u00fear fr\u00e1b\u00e6r leikur \u00feeirra Jamie Bell, Julie Walters og Gary Lewis (\u00feeim sem er \u00ed Niceland Fri\u00f0riks \u00de\u00f3rs). Elda\u00f0 me\u00f0 Elvis er sv\u00f6rt k\u00f3med\u00eda \u00ed anda Joe Ortons og er ansi fyndin \u00e1 k\u00f6flum. En \u00f3l\u00edkt verkum Ortons og fleiri breskra svartk\u00f3med\u00edusk\u00e1lda finnst m\u00e9r vanta einhverja d\u00fdpt \u00ed \u00feetta verk Lee Hall og \u00e9g haf\u00f0i \u00fea\u00f0 sterklega \u00e1 tilfinningunni a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki a\u00f0 segja m\u00e9r neitt. M\u00e9r fannst \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um frekar yfirbor\u00f0skennt og \u00e1 stundum var reynt a\u00f0 tro\u00f0a \u00ed manni einhverju sem var \u00f3skiljanlegt eins og t.a.m. a\u00f0 Elvis Presley hafi veri\u00f0 samkynhneig\u00f0ur og me\u00f0 einhverja mess\u00edasar komplexa. \u00dea\u00f0 getur veri\u00f0 a\u00f0 einhverjir Elvis spes\u00edalistar a la Hannes H\u00f3lmsteinn hafi fundi\u00f0 einhverjar heimildir um \u00feetta en hva\u00f0 \u00ed \u00f3sk\u00f6punum kemur \u00feetta m\u00e1linu vi\u00f0. Og \u00fer\u00e1tt fyrir afar skemmtilegar innkomur k\u00f3ngsins \u00ed verkinu me\u00f0 s\u00f6ng og spjalli sem voru skiljanlegar \u00ed samhengi vi\u00f0 l\u00edkamlega annmarka heimilsf\u00f6\u00f0urins \u00fe\u00e1 voru s\u00ed\u00f0apr\u00e9dikanirnar \u00ed seinni hluta verksins eiginlega \u00fat \u00ed h\u00f6tt. En \u00fer\u00e1tt fyrir \u00feessa annmarka \u00ed plottinu og innra samhengi verksins \u00fe\u00e1 eru pers\u00f3nur \u00e1hugaver\u00f0ar og \u00fer\u00edv\u00ed\u00f0ar og verki\u00f0 n\u00e6r g\u00f3\u00f0um sprettum og er s\u00fdningin mj\u00f6g skemmtileg og m\u00e1 \u00fear eflaust \u00feakka leikstj\u00f3ranum Magn\u00fasi Geir \u00de\u00f3r\u00f0arsyni og hans h\u00f3p.<\/p>\n<p> Leikstj\u00f3rn verksins er fumlaus og \u00f6gu\u00f0 og Magn\u00fas leysir annmarka svi\u00f0sins \u00ed Loftkastalanum \u00e1 snjallan h\u00e1tt \u00ed m\u00f6rgum senum. T.a.m. er flott svi\u00f0setningin \u00e1 \u00e1starleik d\u00f3tturinnar og myllubakarans og eins er bakl\u00fdsing n\u00fdtt \u00e1 skemmtilegan h\u00e1tt. \u00c9g set a\u00f0 v\u00edsu spurningarmerki vi\u00f0 fer\u00f0ir Elvis \u00fat \u00ed sal en \u00fea\u00f0 virkar kannski vel \u00feegar \u00fea\u00f0 er fullur salur af \u00e6stum \u00e1horfendum. Magn\u00fas hefur s\u00fdnt \u00e1\u00f0ur a\u00f0 hann er fl\u00ednkur leikstj\u00f3ri og bregst ekki bogalistin h\u00e9r.<\/p>\n<p> L\u00fdsing Bj\u00f6rns Bergsteins og leikmynd \u00de\u00f3rarins Bl\u00f6ndal \u00fej\u00f3na verkinu vel og tekst a\u00f0 breyta f\u00e1breyttri \u00edb\u00fa\u00f0 \u00ed glysmiki\u00f0 Las Vegas svi\u00f0 \u00e1 svipstundu. \u00c9g hef\u00f0i \u00fe\u00f3 vilja\u00f0 sj\u00e1 meira gert \u00far eldh\u00fasinu enda sn\u00fdst \u00feungami\u00f0ja verksins um eil\u00edfa eldamennsku a\u00f0alpers\u00f3nunnar.<\/p>\n<p> B\u00faningar verksins voru yfirleitt nokku\u00f0 vi\u00f0 h\u00e6fi og st\u00f3\u00f0u gallar Elvis \u00fear upp \u00far. M\u00e9r \u00fe\u00f3ttu \u00fe\u00f3 f\u00f6t d\u00f3tturinnar annkannaleg og \u00e9g skil ekki hversvegna \u00ed \u00f3sk\u00f6punum var veri\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 fita hana me\u00f0 b\u00faningi. \u00dea\u00f0 er \u00ed lagi \u00ed Bubba k\u00f3ng en f\u00e1r\u00e1nlegt \u00ed raunveruleikak\u00f3med\u00edu.<\/p>\n<p> Leikh\u00f3purinn \u00ed Elda\u00f0 me\u00f0 Elvis er mass\u00edvur og gerir f\u00edna hluti. \u00c1lfr\u00fan \u00d6rn\u00f3lfsd\u00f3ttir s\u00fdnir stj\u00f6rnuleik \u00ed hlutverki d\u00f3tturinnar og \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fe\u00e1 fur\u00f0ulegu \u00e1kv\u00f6r\u00f0un a\u00f0 setja hana \u00ed einhverja \u00f3l\u00e9ttugalla til a\u00f0 gera hana feita \u00fe\u00e1 t\u00f3kst henni me\u00f0 sterkum leik og mikilli \u00fatgeislun a\u00f0 skapa pers\u00f3nu sem er \u00ed senn harmr\u00e6n og k\u00f3med\u00edsk. \u00c9g b\u00ed\u00f0 spenntur eftir a\u00f0 sj\u00e1 hana \u00ed D\u00eds. Halld\u00f3ra Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir sem er ein af okkar f\u00ednustu leikonum gerir m\u00f3\u00f0urinni afar f\u00edn skil og s\u00fdnir vel \u00f6rv\u00e6ntingu konunnar sem finnur aldurinn n\u00e1lgast og finnst h\u00fan vera a\u00f0 missa af lestinni me\u00f0 lama\u00f0an eiginmann og feita d\u00f3ttur \u00ed eftirdragi. Fri\u00f0rik Fri\u00f0riks s\u00fdnir a\u00f0 hann hefur engu gleymt eftir stutta fjarvist fr\u00e1 leiksvi\u00f0inu og s\u00fdnir snilldartakta og skapar fyndnustu atri\u00f0i s\u00fdningarinnar me\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rum og n\u00e1kv\u00e6mum t\u00edmsetningum. Og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst er \u00fea\u00f0 Steinn \u00c1rmann Magn\u00fasson sem hefur s\u00fdnt \u00fea\u00f0 og sanna\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum a\u00f0 hann er einn af okkar bestu gamanleikurum og t.a.m. brilljant \u00ed Kvets. \u00dea\u00f0 runnu a\u00f0 v\u00edsu \u00e1 mig tv\u00e6r stj\u00f6rnur \u00feegar hann birtist slefandi \u00ed hj\u00f3last\u00f3l \u00ed byrjun verksins og \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 velta fyrir m\u00e9r hva\u00f0 Steinn g\u00e6ti gert \u00ed \u00feessu \u00e1standi. En \u00fe\u00e6r \u00e1hyggjur runnu \u00fat \u00ed sandinn \u00feegar K\u00f3ngurinn sj\u00e1lfur birtist lj\u00f3slifandi og \u00fea\u00f0 var eiginlega d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00f3hugnanlegt hva\u00f0 Steinn n\u00e1\u00f0i kallinum vel b\u00e6\u00f0i \u00ed s\u00f6ng og t\u00f6ktum. \u00c9g hef aldrei komi\u00f0 til Las Vegas en \u00fea\u00f0 var \u00e1 stundum eins og ma\u00f0ur v\u00e6ri \u00e1 Caesars Palace h\u00f3telinu me\u00f0 K\u00f3nginum.<\/p>\n<p> \u00c9g vil a\u00f0 lokum hvetja alla til a\u00f0 skella s\u00e9r \u00e1 Elda\u00f0 me\u00f0 Elvis. \u00der\u00e1tt fyrir annmarka verksins sj\u00e1lfs er s\u00fdningin afbrag\u00f0skemmtileg og hefur alla bur\u00f0i til a\u00f0 vera tilvalin kv\u00f6ldskemmtun fyrir saumakl\u00fabba og starfsmannah\u00f3pa. E\u00f0a hva\u00f0 er betra en a\u00f0 fara \u00ed leikh\u00fas \u00ed g\u00f3\u00f0ra vina h\u00f3pi og hl\u00e6gja fr\u00e1 s\u00e9r allt vit.<\/p>\n<p> \u00d6fugt vi\u00f0 suma atvinnugagnr\u00fdnendur hef \u00e9g afar gaman af stj\u00f6rnugj\u00f6f og af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er amat\u00f6r \u00fe\u00e1 \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 gefa stj\u00f6rnur og er stj\u00f6rnugj\u00f6fin eftirfarandi.<\/p>\n<p> Engin stjarna \u2013 hryllingur \u2013 haltu \u00feig fjarri og vara\u00f0u a\u00f0ra vi\u00f0<br \/> H\u00e1lf stjarna \u2013 l\u00e9legt \u2013 haltu \u00feig heima og horf\u00f0u frekar \u00e1 N\u00fdjasta t\u00e6kni og v\u00edsindi<br \/> Ein stjarna \u2013 dapurt \u2013 allt \u00ed lagi a\u00f0 k\u00edkja en haf\u00f0u me\u00f0 \u00fe\u00e9r Andr\u00e9sbla\u00f0<br \/> Ein og h\u00e1lf stjarna \u2013 slakt \u2013 far\u00f0u ef \u00fe\u00fa fer\u00f0 \u00e1 allar leiks\u00fdningar (\u00fe\u00e6r sl\u00f6ppu l\u00edka)<br \/> Tv\u00e6r stj\u00f6rnur \u2013 \u00feokkalegt \u2013 far\u00f0u en f\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e9r drykk \u00ed hl\u00e9inu<br \/> Tv\u00e6r og h\u00e1lf stjarna \u2013 \u00e1g\u00e6t \u2013 far\u00f0u endilega, g\u00f3\u00f0 skemmtun<br \/> \u00derj\u00e1r stj\u00f6rnur \u2013 gott \u2013 far\u00f0u, g\u00e6ti veri\u00f0 besta s\u00fdning \u00e1rsins<br \/> \u00derj\u00e1r og h\u00e1lf \u2013 fr\u00e1b\u00e6r \u2013 ver\u00f0ur a\u00f0 fara \u00e1 \u00feessa og hvetja a\u00f0ra l\u00edka<br \/> Fj\u00f3rar stj\u00f6rnur \u2013 snilld &#8211; fresta\u00f0u \u00f6llu \u00f6\u00f0ru<\/p>\n<p> L\u00e1rus Vilhj\u00e1lmsson<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>L\u00e1rus Vilhj\u00e1lmsson f\u00f3r um daginn \u00e1 eina af loka\u00e6fingum \u00e1 Elda\u00f0 me\u00f0 Elvis eftir Lee Hall og var bara nokku\u00f0 s\u00e1ttur vi\u00f0 stykki\u00f0. \u00der\u00e1tt fyrir nokkra hn\u00f6kra \u00e1 verkinu sj\u00e1lfu sem ekki ver\u00f0a laga\u00f0ir svo au\u00f0veldlega og sm\u00e1 klikk hj\u00e1 leikurum og t\u00e6knili\u00f0i (\u00feetta var \u00e6fing nota bene) l\u00edtur \u00feetta \u00fat fyrir a\u00f0 ver\u00f0a ansi [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-157","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-gagnrdinn","et-doesnt-have-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/157","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=157"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/157\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=157"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=157"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=157"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}