{"id":1498,"date":"2007-08-23T10:50:48","date_gmt":"2007-08-23T10:50:48","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=1498"},"modified":"2007-08-23T10:50:48","modified_gmt":"2007-08-23T10:50:48","slug":"nleikkynnt-hjeikfgi-akureyrar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/nleikkynnt-hjeikfgi-akureyrar\/","title":{"rendered":"N\u00fdtt leik\u00e1r kynnt hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi Akureyrar"},"content":{"rendered":"<p><span style=\"font-size: 13px; font-family: Arial; color: #333333\" class=\"Apple-style-span\">Leikf\u00e9lag Akureyrar hefur n\u00fa kynnt dagskr\u00e1 leik\u00e1rsins 2007-2008. \u00c1fram er unni\u00f0 eftir s\u00f6mu stefnu og s\u00e9rst\u00f6k \u00e1hersla er l\u00f6g\u00f0 \u00e1 a\u00f0 n\u00e1 ekki s\u00ed\u00f0ur til yngri leikh\u00fasgesta en \u00feeirra sem eldri eru. Sem fyrr einbeitir leikh\u00fasi\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 uppsetningu n\u00fat\u00edmaverka, \u00edslenskra og erlendra. Fyrsta frums\u00fdning vetrarins er \u00e1 fj\u00f6lskylduleikritinu \u00d3vitar! eftir Gu\u00f0r\u00fanu Helgad\u00f3ttur \u00ed leikstj\u00f3rn Sigur\u00f0ar Sigurj\u00f3nssonar. J\u00f3n \u00d3lafsson var fenginn til a\u00f0 semja t\u00f3nlist fyrir uppsetninguna og \u00e6tti \u00fea\u00f0 a\u00f0 gera gott verk enn betra. J\u00f3lafrums\u00fdningin er gl\u00e6n\u00fd leikger\u00f0 G\u00edsla R\u00fanars J\u00f3nssonar \u00e1 einum vins\u00e6lasta farsa allra t\u00edma, Fl\u00f3 \u00e1 skinni. N\u00fdlegt bandar\u00edskt ver\u00f0launaverk, \u00d6kut\u00edmar eftir Paulu Vogel ver\u00f0ur frums\u00fdnt \u00ed byrjun n\u00f3vember en t\u00f3nlistarkonan Lay Low semur og flytur t\u00f3nlistina \u00ed s\u00fdningunni. Eftir \u00e1ram\u00f3t ver\u00f0ur n\u00fdtt \u00edslenskt leikrit, Dubbeldusch eftir Bj\u00f6rn Hlyn Haraldsson frums\u00fdnt en \u00fea\u00f0 er sett upp \u00ed samstarfi vi\u00f0 Vesturport.<br \/><\/span> <!--more--> <\/p>\n<div>\u00a0<\/div>\n<div><span style=\"font-size: 13px; font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\">\u00cd vetur ver\u00f0ur efnt til leiklestrarra\u00f0ar undir nafninu Kr\u00f3nuleikh\u00fas en \u00fear ver\u00f0ur \u00edslenskri leikh\u00fasklass\u00edk ger\u00f0 g\u00f3\u00f0 skil. Flutt ver\u00f0a leikritin Skugga Sveinn, Fjalla Eyvindur og Piltur og St\u00falka. Einnig ver\u00f0ur leiklesin n\u00fd leikger\u00f0 upp \u00far \u00e6vi og s\u00f6gum Nonna sem skrifu\u00f0 hefur veri\u00f0 fyrir LA. Fj\u00f6ldi gestas\u00fdninga ver\u00f0ur \u00e1 fj\u00f6lum LA \u00ed vetur og m\u00e1 \u00fear nefna s\u00fdningu \u00cdslenska dansflokksins, n\u00fdja s\u00fdningu Kristj\u00e1ns Ingimarssonar, Frelsarinn, Killer Joe, \u00de\u00fa ert n\u00fa meiri j\u00f3lasveinninn auk \u00f3vissus\u00fdningar \u00far h\u00f6fu\u00f0borginni. Settur ver\u00f0ur \u00e1 laggirnar leiklistarsk\u00f3li \u00ed samstarfi vi\u00f0 S\u00f6nglist, fari\u00f0 \u00ed leikh\u00fasfer\u00f0 til London og \u00e1fram ver\u00f0ur bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 leikh\u00fasl\u00edf sem valgrein \u00ed grunnsk\u00f3lum Akureyrar. N\u00fa er unni\u00f0 a\u00f0 \u00fer\u00f3un fj\u00f6gurra n\u00fdrra \u00edslenskra leikrita \u00e1 vegum leikh\u00fassins sem munu birtast \u00e1 fj\u00f6lum LA \u00e1 n\u00e6stu \u00e1rum.<\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00d3vitar &#8211; Fr\u00e1b\u00e6r fj\u00f6lskyldus\u00fdning<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00cd \u00d3vitum er allt \u00e1 hvolfi. \u00dear minnkar ma\u00f0ur me\u00f0 aldrinum, fullor\u00f0nir leika b\u00f6rn og b\u00f6rnin leika \u00fe\u00e1 fullor\u00f0nu. \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 ekki fyrr en Finnur str\u00fdkur a\u00f0 heiman sem allt fer endanlega \u00ed h\u00e1aloft. L\u00f6greglan og hj\u00e1lparsveitirnar hefja leit, pabbi og mamma eru mi\u00f0ur s\u00edn og jafnvel sk\u00f3lastj\u00f3rinn brestur \u00ed gr\u00e1t. En \u00ed mi\u00f0jum l\u00e1tunum eignast Finnur n\u00fdjan vin og uppg\u00f6tvar \u00fdmislegt um l\u00edfi\u00f0 og hvernig \u00fea\u00f0 er a\u00f0 ver\u00f0a l\u00edtill. \u00a0\u00deetta margr\u00f3ma\u00f0a leikrit Gu\u00f0r\u00fanar Helgad\u00f3ttur er n\u00fa loks s\u00fdnt \u00e1 Akureyri og n\u00fa me\u00f0 t\u00f3nlist sem J\u00f3n \u00d3lafsson hefur sami\u00f0 af sinni alkunnu snilld. Leikarinn \u00e1sts\u00e6li Sigur\u00f0ur Sigurj\u00f3nsson leikst\u00fdrir gl\u00e6silegum h\u00f3pi atvinnuleikara og h\u00e6fileikar\u00edkra barna. \u00a0Fr\u00e1b\u00e6r skemmtun fyrir afa og \u00f6mmur, pabba og m\u00f6mmur og b\u00f6rn &#8211; st\u00f3r og sm\u00e1. Frums\u00fdnt 15. september \u00ed Samkomuh\u00fasinu. H\u00f6fundur: Gu\u00f0r\u00fan Helgad\u00f3ttir. \u00a0Leikstj\u00f3rn: Sigur\u00f0ur Sigurj\u00f3nsson. S\u00f6ngtextar: Dav\u00ed\u00f0 \u00de\u00f3r J\u00f3nsson. T\u00f3nlist og t\u00f3nlistarstj\u00f3rn: J\u00f3n \u00d3lafsson. Leikmynd: Finnur Arnar Arnarsson. B\u00faningar: Mar\u00eda \u00d3lafsd\u00f3ttir. L\u00fdsing: Bj\u00f6rn Bergsteinn Gu\u00f0mundsson. Hreyfingar: \u00c1str\u00f3s Gunnarsd\u00f3ttir. Gervi: Ragna Fossberg. Hlj\u00f3\u00f0h\u00f6nnun: Gunnar Sigurbj\u00f6rnsson. Leikarar: Gu\u00f0j\u00f3n Dav\u00ed\u00f0 Karlsson, Hallgr\u00edmur \u00d3lafsson, Krist\u00edn \u00de\u00f3ra Haraldsd\u00f3ttir, \u00der\u00e1inn Karlsson og margir fleiri. 24 leikarar taka \u00fe\u00e1tt \u00ed s\u00fdningunni. \u00d3vitar eru settir upp \u00ed samstarfi vi\u00f0 Flugf\u00e9lag \u00cdslands, Nor\u00f0urorku og KEA h\u00f3tel.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00d6kut\u00edmar &#8211; Saga um forbo\u00f0na \u00e1st me\u00f0 t\u00f3nlist eftir Lay Low<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Fj\u00f6lskylda Lillu er allt anna\u00f0 en venjuleg. Mamma og amma keppast vi\u00f0 a\u00f0 leggja henni l\u00edfsreglurnar. En er Peck bara g\u00f3\u00f0ur fr\u00e6ndi \u00feegar hann b\u00fd\u00f0st til a\u00f0 kenna henni \u00e1 b\u00edl? \u00d6kut\u00edmar er \u00e1leiti\u00f0 leikrit sem fjallar um svik, \u00e1st og fyrirgefningu og tekur \u00e1 vi\u00f0kv\u00e6mu m\u00e1li \u00e1 \u00f3venjulegan h\u00e1tt. H\u00e9r er \u00e1 fer\u00f0inni margbrotin \u00feroska- og fj\u00f6lskyldusaga sem f\u00e6r \u00e1horfendur til a\u00f0 s\u00fapa hveljur en er \u00fe\u00f3 drifin \u00e1fram af heillandi h\u00famor. \u00a0\u00d6kut\u00edmar er margver\u00f0launa\u00f0 verk sem fari\u00f0 hefur sigurf\u00f6r um heiminn. Leikriti\u00f0 vann me\u00f0al annars hin virtu Pulitzer ver\u00f0laun \u00feegar verki\u00f0 var frums\u00fdnt \u00ed Bandar\u00edkjunum. T\u00f3nlistarkonan Lay Low, sem hlaut \u00cdslensku t\u00f3nlistarver\u00f0launin 2006, semur t\u00f3nlist vi\u00f0 s\u00fdninguna og tekur \u00fe\u00e1tt \u00ed flutningi verksins. \u00a0\u00deetta er verk sem enginn leikh\u00fas\u00e1hugama\u00f0ur \u00e6tti a\u00f0 l\u00e1ta framhj\u00e1 s\u00e9r fara. Frums\u00fdnt 2. n\u00f3vember 2007 \u00ed R\u00fdminu. R\u00fdmi\u00f0 er samstarfsverkefni LA og TM. H\u00f6fundur: Paula Vogel. \u00de\u00fd\u00f0ing: Sigtryggur Magnason. Leikstj\u00f3rn: Mar\u00eda Reyndal. Leikmynd og b\u00faningar: Filipp\u00eda El\u00edsd\u00f3ttir. T\u00f3nlist: Lay Low. L\u00fdsing: Bj\u00f6rn Bergsteinn Gu\u00f0mundsson. Leikarar: \u00der\u00f6stur Leo Gunnarsson, Krist\u00edn \u00de\u00f3ra Haraldsd\u00f3ttir, Gu\u00f0j\u00f3n Dav\u00ed\u00f0 Karlsson, Hallgr\u00edmur \u00d3lafsson og \u00der\u00fa\u00f0ur Vilhj\u00e1lmsd\u00f3ttir.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Fl\u00f3 \u00e1 skinni &#8211; Besti farsi allra t\u00edma!<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Er \u00fea\u00f0 r\u00e9tt a\u00f0 \u00ed ann\u00e1la\u00f0ri fegur\u00f0 Eyjafjar\u00f0ar s\u00e9 sveitasetri\u00f0 Sveinbjarnargrei\u00f0i gri\u00f0asta\u00f0ur elskenda \u00e1 laun? Hefur Saga Ringsted \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 gruna eiginmanninn um gr\u00e6sku e\u00f0a hefur h\u00fan sj\u00e1lf eitthva\u00f0 a\u00f0 fela? Hver var konan sem ba\u00f0 forstj\u00f3rann um blint stefnum\u00f3t? H\u00e9lt Elli vi\u00f0 konu J\u00f3hannesar e\u00f0a h\u00e9lt hann bara upp \u00e1 hana? Er Helmut Edelstein man\u00edskur kvennama\u00f0ur e\u00f0a bara \u00fe\u00fdskur fer\u00f0ama\u00f0ur? Er afbr\u00fd\u00f0isemi Miroslav \u00e1 r\u00f6kum reist? Og er \u00e1st T\u00ednu s\u00f6nn? \u00c1st og afbr\u00fd\u00f0isemi, misskilningur \u00e1 misskilning ofan og allt \u00ed d\u00e1samlegri steik. \u00a0Fl\u00f3 \u00e1 skinni er einn besti og eitra\u00f0asti gamanleikur allra t\u00edma. N\u00fa eru 100 \u00e1r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessi \u00f3borganlegi farsi Feydeau kitla\u00f0i fyrst hl\u00e1turtaugar \u00e1horfenda og h\u00f3f sannkalla\u00f0a sigurf\u00f6r um heiminn. LA fagnar t\u00edmam\u00f3tunum me\u00f0 sinni \u00a0fyrstu uppsetningu \u00e1 \u00feessu vins\u00e6la verki og \u00ed gl\u00e6n\u00fdrri leikger\u00f0 G\u00edsla R\u00fanars J\u00f3nssonar.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">J\u00f3lafrums\u00fdning 2007. Frums\u00fdnt 29. desember \u00ed Samkomuh\u00fasinu. \u00a0H\u00f6fundur upprunalegs verks: George Feydeau. Leikger\u00f0 og \u00edslenskun: G\u00edsli R\u00fanar J\u00f3nsson. Leikstj\u00f3rn: Magn\u00fas Geir \u00de\u00f3r\u00f0arson. Leikmynd og b\u00faningar: Snorri Freyri Hilmarsson. L\u00fdsing: Bj\u00f6rn Bergsteinn Gu\u00f0mundsson. Me\u00f0al leikara: Gu\u00f0j\u00f3n Dav\u00ed\u00f0 Karlsson, J\u00f3hannes Haukur J\u00f3hannesson, Hallgr\u00edmur \u00d3lafsson, Krist\u00edn \u00de\u00f3ra Haraldsd\u00f3ttir, Viktor M\u00e1r Bjarnason, Atli \u00de\u00f3r Albertsson, Linda \u00c1sgeirsd\u00f3ttir, \u00der\u00e1inn Karlsson, Margr\u00e9t Helga J\u00f3hannsd\u00f3ttir, Tinna Lind Gunnarsd\u00f3ttir, \u00a0Magn\u00fas \u00d3lafsson og fleiri. Sett upp \u00ed samstarfi vi\u00f0 Mastercard, H\u00f6ldur og Eimskip.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Dubbeldusch &#8211; Gl\u00e6n\u00fdtt lj\u00fafs\u00e1rt verk \u00ed samstarfi vi\u00f0 Vesturport<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Nokkrum sinnum \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni gerast atbur\u00f0ir \u00ed l\u00edfi okkar sem breyta \u00f6llu. \u00cd kv\u00f6ld kemur einkasonurinn \u00ed sumarb\u00fasta\u00f0 fj\u00f6lskyldunnar og kynnir n\u00fdja unnustu fyrir foreldrum s\u00ednum. Sm\u00e1tt og sm\u00e1tt rennur upp fyrir f\u00f6\u00f0urnum a\u00f0 me\u00f0 komu st\u00falkunnar kn\u00fdr lj\u00fafs\u00e1r fort\u00ed\u00f0in dyra, \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1ra gamalt leyndarm\u00e1l sem hann hefur reynt a\u00f0 gleyma. \u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 hann frammi fyrir erfi\u00f0u vali og enn \u00feann dag \u00ed dag veit hann ekki hvort hann valdi r\u00e9tt, \u0084hva\u00f0 ef&#8230;?\u0093 Dubbeldusch er leikrit um \u00e1stina, l\u00edfi\u00f0, tilviljanir og erfi\u00f0a valkosti. Leikriti\u00f0 er frumraun leikarans Bj\u00f6rns Hlyns Haraldssonar sem leiksk\u00e1ld. S\u00fdninguna vinnur LA \u00ed samstarfi vi\u00f0 leikh\u00f3pinn Vesturport sem vaki\u00f0 hefur ver\u00f0skulda\u00f0a athygli v\u00ed\u00f0a um heim \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum. Me\u00f0al uppsetninga Vesturports eru R\u00f3me\u00f3 og J\u00fal\u00eda, Brim, Woyzeck og \u00c1st. Ekki missa af spennandi \u00edslenskri leikritun. Frums\u00fdnt um mi\u00f0jan mars \u00ed R\u00fdminu. R\u00fdmi\u00f0 er samstarfsverkefni LA og TM. H\u00f6fundur og leikstj\u00f3ri: Bj\u00f6rn Hlynur Haraldsson. Leikmynd og b\u00faningar: B\u00f6rkur J\u00f3nsson. L\u00fdsing: \u00a0Bj\u00f6rn Bergsteinn Gu\u00f0mundsson. T\u00f3nlist og hlj\u00f3\u00f0mynd: Frank Hall. Leikarar: \u00d3lafur Darri \u00d3lafsson, V\u00edkingur Kristj\u00e1nsson, Harpa Arnard\u00f3ttir, \u00a0Elma L\u00edsa Gunnarsd\u00f3ttir og fleiri. \u00a0Sett upp \u00ed samstarfi vi\u00f0 Flugf\u00e9lag \u00cdslands.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Gestas\u00fdningar og \u00f6nnur starfsemi:<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Auk fj\u00f6gurra n\u00fdrra frums\u00fdninga ver\u00f0ur bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 a.m.k. fimm gestas\u00fdningar auk fj\u00f6lbreyttrar annarrar starfsemi.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00cdslenski dansflokkurinn &#8211; Kraftmikill n\u00fat\u00edmadans<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00cdslenski dansflokkurinn hefur vaki\u00f0 ver\u00f0skulda\u00f0a athygli um v\u00ed\u00f0a ver\u00f6ld \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum en n\u00fa s\u00e6kir flokkurinn Akureyri heim \u00e1\u00f0ur en hann heldur \u00ed \u00feriggja vikna s\u00fdningarfer\u00f0alag um Bandar\u00edkin. S\u00fdnd ver\u00f0a \u00ferj\u00fa af bestu verkum dansflokksins undanfari\u00f0, en \u00feau gefa g\u00f3\u00f0a mynd af \u00feeirri fj\u00f6lbreytni sem einkennir \u00feetta flaggskip \u00edslenskra danslista. Verkin \u00ferj\u00fa eru Ma\u00f0urinn er alltaf einn eftir \u00d3l\u00f6fu Ing\u00f3lfsd\u00f3ttur, Elsa eftir L\u00e1ru Stef\u00e1nsd\u00f3ttur og Critic\u00b4s choice? eftir Peter Anderson. S\u00fdningin er \u00ed senn a\u00f0gengileg og kraftmikil og vi\u00f0 h\u00e6fi allrar fj\u00f6lskyldunnar. Vi\u00f0bur\u00f0ur sem enginn dans- e\u00f0a leikh\u00fasunnandi \u00e6tti a\u00f0 l\u00e1ta framhj\u00e1 s\u00e9r fara. S\u00fdnt \u00ed Samkomuh\u00fasinu 14. okt\u00f3ber<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00de\u00fa ert n\u00fa meiri j\u00f3lasveinninn! \u00a0-skemmtileg j\u00f3las\u00fdning \u00e1 a\u00f0ventunni<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00dea\u00f0 er ekki au\u00f0velt a\u00f0 vera or\u00f0inn eldgamall en b\u00faa samt enn\u00fe\u00e1 heima hj\u00e1 m\u00f6mmu. Allra s\u00edst \u00feegar mamma heitir Gr\u00fdla og skammar mann fyrir a\u00f0 syngja, segja s\u00f6gur og hj\u00e1lpa til \u00ed eldh\u00fasinu. En St\u00fafur deyr ekki r\u00e1\u00f0alaus og dettur snjallr\u00e6\u00f0i \u00ed hug: a\u00f0 fara snemma til bygg\u00f0a \u00feetta \u00e1ri\u00f0, \u00fev\u00ed \u00fear er svo skemmtilegt. Og hann leggur af sta\u00f0\u0085 Mikill fj\u00f6ldi barna hefur heims\u00f3tt j\u00f3lasveinana \u00ed Dimmuborgir \u00ed M\u00fdvatnssveit s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin. N\u00fa gefst j\u00f3lab\u00f6rnum \u00e1 \u00f6llum aldri t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 nj\u00f3ta gle\u00f0istundar me\u00f0 St\u00fafi \u00e1 Akureyri \u00e1 a\u00f0ventunni. \u00a0Leikstj\u00f3ri er \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir. \u00datlit hannar Katr\u00edn \u00deorvaldsd\u00f3ttir. A\u00f0rir a\u00f0standendur s\u00fdningarinnar eru S\u00e6var Sigurgeirsson, Oddur Bjarni \u00deorkelsson og Arnar Sigur\u00f0sson. En s\u00e9rstakur vinur St\u00fafs er Margr\u00e9t Sverrisd\u00f3ttir.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Frelsarinn &#8211; n\u00fd s\u00fdning Kristj\u00e1ns Ingimarssonar<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Er heimsendir \u00ed n\u00e1nd? Og kemur frelsarinn \u00fe\u00e1? E\u00f0a kemur heimsendir \u00ed kj\u00f6lfar frelsarans? Hver er \u00feessi frelsari? \u0096 George W. Bush? Osama Bin Laden? E\u00f0a spilar hann f\u00f3tbolta me\u00f0 LA Galaxy? A\u00f0als\u00f6guhetjan \u00ed \u00feessu verki f\u00e6r \u00feau skilabo\u00f0 a\u00f0 hann s\u00e9 frelsarinn og \u00fear me\u00f0 g\u00e6ddur einst\u00f6kum h\u00e6fileikum. Me\u00f0 sl\u00edk v\u00f6ld og tr\u00fa \u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r vir\u00f0ast allir vegir f\u00e6rir \u0096 svo lengi sem m\u00fagurinn fylgir. Kristj\u00e1n Ingimarsson hefur hloti\u00f0 ver\u00f0skulda\u00f0a athygli h\u00e9r heima og erlendis \u00e1 undanf\u00f6rnum \u00e1rum fyrir l\u00edkamlegar, \u00e1r\u00e6\u00f0nar og br\u00e1\u00f0fyndnar s\u00fdningar. N\u00fdjasta s\u00fdning hans, Frelsarinn, var frums\u00fdnd \u00ed Danm\u00f6rku \u00ed vor og var h\u00fan lofu\u00f0 h\u00e1stert. J\u00f3n P\u00e1ll Eyj\u00f3lfsson leikst\u00fdrir s\u00fdningunni, en hann er Akureyringum a\u00f0 g\u00f3\u00f0u kunnur fyrir uppsetningar s\u00ednar \u00e1 Mar\u00edubj\u00f6llunni og Herra Kolbert. S\u00fdnt \u00ed Samkomuh\u00fasinu, \u00a024. og 25. n\u00f3vember. \u00a0H\u00f6fundur og svi\u00f0shreyfingar: Kristj\u00e1n Ingimarsson. Leikstj\u00f3rn: J\u00f3n P\u00e1ll Eyj\u00f3lfsson. Leikarar: Kristj\u00e1n Ingimarsson, Bo Madvig, Camilla Marienhof.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Killer Joe &#8211; margr\u00f3mu\u00f0 og ver\u00f0launu\u00f0 s\u00fdning<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Killer Joe hlaut afbur\u00f0ard\u00f3ma \u00feegar h\u00fan var frums\u00fdnd \u00ed Borgarleikh\u00fasinu og var svo tilnefnd til \u00e1tta Gr\u00edmuver\u00f0launa \u00ed vor. H\u00e9r er \u00e1 fer\u00f0inni m\u00f6gnu\u00f0 s\u00fdning \u00e1 leikriti sem hreyfir vi\u00f0 \u00fe\u00e9r. LA m\u00e6lir eindregi\u00f0 me\u00f0 \u00feessari \u0096 ekki l\u00e1ta hana framhj\u00e1 ykkur fara! H\u00f6fundur: Tracy Letts. Leikstj\u00f3ri: Stef\u00e1n Baldursson. Leikmynd: Vytautas Narbutas. B\u00faningar Filipp\u00eda El\u00edsd\u00f3ttir. L\u00fdsing: L\u00e1rus Bj\u00f6rnsson. T\u00f3nlist: P\u00e9tur Ben<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Leikendur: Bj\u00f6rn Thors, J\u00f6rundur Ragnarsson, Unnur \u00d6sp Stef\u00e1nsd\u00f3ttir, Mar\u00edanna Clara L\u00fathersd\u00f3ttir, \u00der\u00f6stur Leo Gunnarsson.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Kr\u00f3nuleikh\u00fas &#8211; R\u00f6\u00f0 svi\u00f0settra leiklestra<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00c1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri bau\u00f0 LA upp \u00e1 svi\u00f0settan leiklestur \u00e1 \u00c6vint\u00fdri \u00e1 g\u00f6nguf\u00f6r \u00ed tilefni 100 \u00e1ra afm\u00e6lis Samkomuh\u00fassins. Mi\u00f0aver\u00f0 var ein kr\u00f3na eins og fyrir 100 \u00e1rum. M\u00e6ltist upp\u00e1t\u00e6ki\u00f0 afar vel fyrir. Af \u00feeim s\u00f6kum hefur veri\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halda \u00e1fram \u00e1 s\u00f6mu braut. Fyrir \u00e1ram\u00f3t ver\u00f0ur n\u00fdtt verk um Nonna leiklesi\u00f0 en \u00fea\u00f0 var skrifa\u00f0 s\u00e9rstaklega fyrir LA og Nonnah\u00fas. Eftir j\u00f3l ver\u00f0ur leiklestrarr\u00f6\u00f0 \u00fear sem nokkur s\u00edgild verk \u00edslenskrar leikritunar ver\u00f0a kynnt, verkin sem flutt ver\u00f0a eru Skugga Sveinn, Fjalla Eyvindur og Piltur og st\u00falka. Mi\u00f0aver\u00f0 er \u00e1fram a\u00f0eins ein kr\u00f3na og bo\u00f0i\u00f0 er upp \u00e1 p\u00f6nnuk\u00f6kur \u00ed hl\u00e9i. \u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00d3vissus\u00fdning<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Eins og \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri mun LA \u00e1 m\u00f3ti gestas\u00fdningu sem frums\u00fdnd hefur veri\u00f0 \u00e1 leik\u00e1rinu \u00ed h\u00f6fu\u00f0borginni. Valin ver\u00f0ur s\u00fdning sem okkur \u00feykkir eiga erindi vi\u00f0 Nor\u00f0lendinga a\u00f0 vori og vaki\u00f0 hefur athygli \u00e1 leik\u00e1rinu. \u00c1 s\u00ed\u00f0astli\u00f0num \u00feremur leik\u00e1rum h\u00f6fum vi\u00f0 teki\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti Brimi, H\u00e1rinu, Gr\u00e6na landinu, Belg\u00edska Kong\u00f3, Edith Piaf, \u00c6vint\u00fdrinu um Augastein, Mike Attack, Best \u00ed heimi, Skoppu og Skr\u00edtlu, Les Kunch og fleiri.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Unga f\u00f3lki\u00f0 \u0096 mikil fj\u00f6lgun \u00ed h\u00f3pi yngri leikh\u00fasgesta<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00c1 s\u00ed\u00f0ustu \u00feremur \u00e1rum hefur mikil \u00e1hersla veri\u00f0 l\u00f6g\u00f0 \u00e1 a\u00f0 la\u00f0a n\u00fdja og yngri leikh\u00fasgesti a\u00f0 leikh\u00fasinu. Hefur verkefnaval og val \u00e1 listam\u00f6nnum teki\u00f0 mi\u00f0 af \u00fev\u00ed. A\u00f0 auki t\u00f3k LA og Landsbankinn upp samstarf fyrir \u00feremur \u00e1rum til a\u00f0 vinna sameiginlega a\u00f0 \u00feessu marki. Landsbankinn grei\u00f0ir n\u00fa eins og s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r, ni\u00f0ur \u00e1skriftarkort fyrir n\u00e1msmenn og alla sem eru yngri en 25 \u00e1ra. Me\u00f0 \u00feessu \u00e1 a\u00f0 vera tryggt a\u00f0 allir geti \u0093veri\u00f0 flottir \u00e1 \u00fev\u00ed\u0094 og veri\u00f0 fastagestir \u00ed leikh\u00fasinu. Er skemmst fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 fj\u00f6ldi yngri leikh\u00fasgesta hefur margfaldast \u00e1 t\u00edmabilinu og n\u00fa er me\u00f0alaldur kortagesta og almennra leikh\u00fasgesta hj\u00e1 LA undir 35 \u00e1rum, sem er mj\u00f6g \u00f3venjulegt \u00ed leikh\u00fasum \u00ed Evr\u00f3pu og h\u00e9r \u00e1 landi. Ver\u00f0 \u00e1 \u00e1skriftarkorti sem gildir \u00e1 fj\u00f3rar s\u00fdningar n\u00fa er a\u00f0eins 3.950 kr.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">LA stendur fyrir \u00fdmissi annarri starfsemi sem beint er a\u00f0 unga f\u00f3lkinu. Reglulega er bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 opin leiklistarn\u00e1mskei\u00f0, vi\u00f0 t\u00f6kum \u00e1 m\u00f3ti sk\u00f3lum, leiksk\u00f3lum og h\u00f3pum \u00ed heims\u00f3knir \u00ed leikh\u00fasi\u00f0 og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst stendur LA fyrir valgreinakennslu \u00ed leiklist \u00ed samstarfi vi\u00f0 Grunnsk\u00f3la Akureyrar. Valgreinakennslan h\u00f3fst sem tilraunaverkefni fyrir tveimur \u00e1rum en hefur n\u00fa fest sig \u00ed sessi. Nemendur geta \u00fe\u00e1 vali\u00f0 leiklist sem valgrein og koma \u00ed leikh\u00fasi\u00f0 einu sinni \u00ed viku \u00ed heilt misseri. \u00dear eru \u00feau fr\u00e6dd um l\u00edfi\u00f0 \u00ed leikh\u00fasinu og ferli\u00f0 fr\u00e1 leikriti \u00e1 bla\u00f0i a\u00f0 s\u00fdningu \u00e1 svi\u00f0i. Sem e\u00f0lilegt framhald af leiklistarn\u00e1mskei\u00f0unum vins\u00e6lu hefur n\u00fa veri\u00f0 settur \u00e1 stofn s\u00f6ng- og leiklistarsk\u00f3li \u00ed samstarfi vi\u00f0 S\u00f6nglist en fyrstu nemendur ver\u00f0a teknir inn eftir \u00e1ram\u00f3t.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Leikh\u00fasfer\u00f0 til London<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00cd fyrra f\u00f3r LA \u00ed fyrsta skipti \u00ed leikh\u00fasfer\u00f0 til London \u00ed beinu flugi fr\u00e1 Akureyri. Mikil \u00e1s\u00f3kn var \u00ed fer\u00f0ina og komust f\u00e6rri a\u00f0 en vildu. \u00dev\u00ed hefur veri\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 endurtaka leikinn og n\u00fa ver\u00f0ur fer\u00f0in um mi\u00f0jan n\u00f3vember. Fari\u00f0 ver\u00f0ur \u00e1 tv\u00e6r leiks\u00fdningar, m.a. ver\u00f0ur fari\u00f0 \u00e1 hinn gl\u00e6silega s\u00f6ngleik, Mary Poppins. LA stendur fyrir fer\u00f0inni \u00ed samstarfi vi\u00f0 Expressfer\u00f0ir. Kortagestir LA f\u00e1 7.000 kr afsl\u00e1tt af fer\u00f0inni.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00c1skriftarkort<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">A\u00f0 venju b\u00fd\u00f0ur LA upp \u00e1 \u00e1skriftarkort. \u00derj\u00e1r s\u00fdningar eru fastar \u00ed kortinu, \u00d6kut\u00edmar, Fl\u00f3 \u00e1 skinni og Dubbeldusch. Sem fj\u00f3r\u00f0u s\u00fdningu \u00ed kortum geta korthafar vali\u00f0 milli hinna fimm s\u00fdninga vetrarins, \u00d3vitar, \u00cdslenski dansflokkurinn, Frelsarinn, \u00de\u00fa ert n\u00fa meiri j\u00f3lasveinninn, Killer Joe e\u00f0a \u00f3vissus\u00fdning. Ver\u00f0 \u00e1skriftarkortsins er 7.900 kr en Landsbankinn ni\u00f0urgrei\u00f0ir \u00e1skriftarkort fyrir n\u00e1msmenn og alla yngri en 25 \u00e1ra. \u00deeim b\u00fd\u00f0st korti\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e1 h\u00e1lfvir\u00f0i og grei\u00f0a a\u00f0eins 3.950 kr fyrir fj\u00f3rar s\u00fdningar.<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00a0<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">Leiksk\u00e1ld a\u00f0 st\u00f6rfum fyrir LA<\/span><\/span><\/div>\n<div><span style=\"font-family: Helvetica\" class=\"Apple-style-span\"><span style=\"font-size: small\" class=\"Apple-style-span\">\u00dea\u00f0 er LA s\u00e9rstakt \u00e1n\u00e6gjuefni a\u00f0 geta n\u00fa sinnt \u00edslenskri n\u00fdsk\u00f6pun \u00ed meira m\u00e6li en nokkru sinni fyrr. N\u00fa er unni\u00f0 a\u00f0 ritun fj\u00f6gurra n\u00fdrra \u00edslenskra leikrita fyrir LA. Stefnt er a\u00f0 uppsetningu verkanna \u00e1 n\u00e6stu misserum.<\/span><\/span><\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Leikf\u00e9lag Akureyrar hefur n\u00fa kynnt dagskr\u00e1 leik\u00e1rsins 2007-2008. \u00c1fram er unni\u00f0 eftir s\u00f6mu stefnu og s\u00e9rst\u00f6k \u00e1hersla er l\u00f6g\u00f0 \u00e1 a\u00f0 n\u00e1 ekki s\u00ed\u00f0ur til yngri leikh\u00fasgesta en \u00feeirra sem eldri eru. Sem fyrr einbeitir leikh\u00fasi\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 uppsetningu n\u00fat\u00edmaverka, \u00edslenskra og erlendra. Fyrsta frums\u00fdning vetrarins er \u00e1 fj\u00f6lskylduleikritinu \u00d3vitar! eftir Gu\u00f0r\u00fanu Helgad\u00f3ttur \u00ed leikstj\u00f3rn [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":1497,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187],"tags":[],"class_list":["post-1498","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1498","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1498"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1498\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1498"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1498"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1498"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}