{"id":126,"date":"2005-07-27T10:00:48","date_gmt":"2005-07-27T10:00:48","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=126"},"modified":"2020-03-02T09:53:37","modified_gmt":"2020-03-02T09:53:37","slug":"lenskur-galeikari-tlm","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/lenskur-galeikari-tlm\/","title":{"rendered":"\u00cdslenskur \u00e1hugaleikari \u00ed \u00fatl\u00f6ndum"},"content":{"rendered":"<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/www.leiklist.is\/10\/images\/stories\/Folk\/Erlent\/comedie_ny.jpg\" width=\"140\" height=\"105\" style=\"float: right;\" hspace=\"6\" alt=\"Image\" title=\"Image\" border=\"0\" \/>Hinn ge&eth;&thorn;ekki fyrrverandi ritari Bandalagsins, Sigr&iacute;&eth;ur L&aacute;ra Sigurj&oacute;nsd&oacute;ttir b&yacute;r n&uacute; &iacute; Montpellier &iacute; S-Frakkalandi. H&uacute;n hefur gert &ouml;rlitla &uacute;ttekt &aacute; menningar- og mannl&iacute;fi &thorn;ar &iacute; borg. <!--more--> <strong><br \/> Menning og mannl&iacute;f &iacute; Montpellier<\/strong><br \/> G&ouml;tuleikh&uacute;s hefur veri&eth; &iacute; &ouml;rum vexti &aacute; &Iacute;slandi &aacute; li&eth;num misserum. Sumrin eru a&eth; ver&eth;a undirl&ouml;g&eth; af b&aelig;jarh&aacute;t&iacute;&eth;um hvers konar &iacute; flestum &thorn;&eacute;ttb&yacute;liskj&ouml;rnum og er &thorn;a&eth; vel. &Iacute; framhaldi af &thorn;v&iacute; hefur &thorn;&oacute; b&oacute;la&eth; &aacute; umr&aelig;&eth;um um hva&eth; s&eacute; g&ouml;tuleikh&uacute;s og hven&aelig;r s&eacute; um g&ouml;tuleikh&uacute;s a&eth; r&aelig;&eth;a og hven&aelig;r &thorn;a&eth; eigi a&eth; heita eitthva&eth; anna&eth;. &Iacute; lj&oacute;si &thorn;essarar umr&aelig;&eth;u var athyglivert fyrir undirrita&eth;an &Iacute;slending a&eth; koma hinga&eth; &iacute; su&eth;ri&eth;, &thorn;ar sem g&ouml;tulistir l&uacute;ta alfari&eth; &ouml;&eth;rum l&ouml;gm&aacute;lum en heima &aacute; klakanum. &THORN;a&eth; sem breytir mestu er tr&uacute;lega &ldquo;betlimenningin&rdquo; h&eacute;rna. H&eacute;r &thorn;arf ekki a&eth; styrkja leikh&oacute;pa til &thorn;ess a&eth; vera me&eth; skemmtiatri&eth;i &aacute; g&ouml;tum &uacute;ti &thorn;ar sem margir vir&eth;ast hafa &thorn;a&eth; sem a&eth;alatvinnu a&eth; syngja, dansa e&eth;a skemmta &aacute; annan h&aacute;tt &aacute; torgum og &iacute; fj&ouml;lf&ouml;rnum g&ouml;ngug&ouml;tum.<\/p>\n<p>  <strong>Listamenn e&eth;a atvinnubetlarar?<\/strong><br \/>  &THORN;a&eth; ver&eth;ur a&eth; segjast alveg eins og er a&eth; &eacute;g hef gert skammarlega l&iacute;ti&eth; af &thorn;v&iacute; a&eth; s&aelig;kja menningarvi&eth;bur&eth;i h&eacute;r um sl&oacute;&eth;ir enn sem komi&eth; er. &Eacute;g hef n&uacute; haft b&uacute;setu h&eacute;r &iacute; Montpellier, landi Fransmanna um n&aelig;stum &thorn;riggja m&aacute;na&eth;a skei&eth; og l&iacute;ti&eth; m&aacute;tt vera a&eth; &thorn;v&iacute; a&eth; kynna m&eacute;r hva&eth; er &aacute; fj&ouml;lunum (e&eth;a hvar bestu fjalirnar eru). H&eacute;r eltir menningin mann hins vegar uppi, l&aacute;ti ma&eth;ur &thorn;a&eth; eftir s&eacute;r a&eth; &aacute;lpast &uacute;t fyrir dyr. Gangi ma&eth;ur eftir helstu g&ouml;tum og torgum b&aelig;jarins s&eacute;r ma&eth;ur alltaf einhverja hlj&oacute;&eth;f&aelig;raleikara, gjarnan me&eth; skr&iacute;tin og skemmtileg hlj&oacute;&eth;f&aelig;ri, skemmta gestum og gangandi, gjarnan fimleikaf&oacute;lk og &bdquo;jugglara&ldquo;, jafnvel eldgleypa e&eth;a br&uacute;&eth;uleikh&uacute;s. &THORN;a&eth; hefur reyndar eitthva&eth; dregi&eth; &uacute;r eftir a&eth; vetur skall &aacute; (sem ger&eth;ist stundv&iacute;slega &aacute; mi&eth;n&aelig;tti 1. n&oacute;vember) en g&ouml;tumenningin er hvergi n&aelig;rri horfin. Eldgleypa s&aacute; &eacute;g til d&aelig;mis ekki fyrr en &aacute; hrekkjav&ouml;ku (31. okt&oacute;ber) en oft s&iacute;&eth;an. Allt er &thorn;etta li&eth; svo n&aacute;tt&uacute;rulega a&eth; betla peninga og f&oacute;lk vir&eth;ist ver&eth;a mj&ouml;g &ouml;rl&aacute;tt &thorn;egar kemur a&eth; g&ouml;tulistam&ouml;nnum. Hinn venjulegi t&uacute;risti m&aacute; hins vegar passa sig og halda a&eth;eins &iacute; pyngjuna, &thorn;ar sem margt er a&eth; sj&aacute; &aacute; hverjum degi og sj&aacute;lfsagt au&eth;velt a&eth; lenda sj&aacute;lfur &iacute; r&ouml;&eth;um betl-listamanna ef &ouml;rl&aelig;ti&eth; gengur &uacute;r h&oacute;fi.<\/p>\n<p>  &THORN;a&eth; er alltaf eitthva&eth; a&eth; gerast og &aacute;kve&eth;nir a&eth;ilar vir&eth;ast eiga s&iacute;na f&ouml;stu sta&eth;i &aacute; torgunum og standa &thorn;ar vaktina hvernig sem vi&eth;rar. &THORN;a&eth; er &thorn;&oacute; alltaf meira um a&eth; vera &aacute; sunnud&ouml;gum. H&eacute;r hefur nefnilega ekki gripi&eth; um sig s&uacute; &oacute;gurlega vinnukergja a&eth; hafa alla skapa&eth;a hluti opna &aacute; sunnud&ouml;gum. Nei. &THORN;&aacute; er n&aacute;nast allt loka&eth; nema eitt og eitt kaffih&uacute;s og &thorn;ar l&ouml;trar um syfjulegt &thorn;j&oacute;nustuf&oacute;lk me&eth; timburmenn sem k&aelig;rir sig l&iacute;ti&eth; um gesti. &Aacute; sunnud&ouml;gum fara hins vegar allir &uacute;t a&eth; &thorn;v&aelig;last me&eth; b&ouml;rnin s&iacute;n og\/e&eth;a foreldra. Sunnudagar eru alr&aelig;mdir &bdquo;bekkjadagar&ldquo; &thorn;ar sem menn r&ouml;lta um b&aelig;inn, gera svo sem ekkert og sitja &aacute; bekkjum og spjalla vi&eth; vini og kunningja. &THORN;etta heitir a&eth; &bdquo;taka &thorn;v&iacute; r&oacute;lega&ldquo; og &bdquo;slappa af&ldquo;. Man einhver &Iacute;slendingur hvernig &thorn;a&eth; er gert? &THORN;&aacute; tel &eacute;g ekki me&eth; &thorn;ynnku fyrir framan sj&oacute;nvarpi&eth;. &THORN;&aacute; koma l&iacute;ka g&ouml;tulistamenn fram &aacute; sj&oacute;narsvi&eth;i&eth; sem aldrei fyrr. &THORN;a&eth; sama gerist &thorn;egar &thorn;a&eth; er s&oacute;l, sem er n&aelig;stum alltaf &aacute; sumrin en ekki alveg eins algengt svona yfir h&aacute;veturinn. H&eacute;r &aacute; eftir fer stutt upprifjun, svona eftir besta minni, helstu upp&aacute;komur sem &eacute;g hef rekist &aacute; &aacute; &thorn;v&aelig;lingi m&iacute;num um mi&eth;b&aelig;inn.<\/p>\n<p> <strong><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/www.leiklist.is\/10\/images\/stories\/Folk\/Erlent\/comedie_gomul.jpg\" width=\"210\" height=\"134\" style=\"float: left;\" hspace=\"6\" alt=\"Image\" title=\"Image\" border=\"0\" \/>S&eacute;&eth; og heyrt<\/strong><br \/>  Mesta l&iacute;fi&eth; er gjarnan &aacute; torgi sem heitir Place de Comedie og dregur nafn sitt af Opera de Comedie sem stendur vi&eth; annan enda torgsins. Me&eth;fram &thorn;v&iacute; endil&ouml;ngu eru t&uacute;ristav&aelig;n kaffih&uacute;s me&eth; &uacute;tibor&eth;um (og McDonalds) og &thorn;ar er mj&ouml;g vins&aelig;lt a&eth; skemmta og betla. Torgi&eth; n&aelig;r ni&eth;ur a&eth; verslunarmi&eth;st&ouml;&eth;inni Polygone, en hinu megin vi&eth; hana tekur vi&eth; anna&eth; torg sem heitir Antigone og er svakalega flott mannvirki sem er afmarka&eth; me&eth; tilt&ouml;lulega n&yacute;legum byggingum sem eru hanna&eth;ar &iacute; r&oacute;mverskum st&iacute;l. &THORN;&oacute; merkilegt s&eacute; er &thorn;a&eth; torg oftast steindautt og l&iacute;ti&eth; a&eth; gerast. <\/p>\n<p>  &THORN;a&eth; er sums&eacute; fyrst og fremst fr&aacute; Polygone upp a&eth; Opera de Comedie sem g&ouml;tulistamenn er a&eth; finna. &THORN;a&eth;an liggur s&iacute;&eth;an st&oacute;r g&ouml;ngugata upp &iacute; gamla mi&eth;b&aelig;inn. H&uacute;n heitir rue de la Loge, sem vi&eth; &Iacute;slendingar h&ouml;fum n&aacute;tt&uacute;rulega breytt &iacute; Laugavegur, svona okkar &aacute; milli. Allavega, vi&eth; byrjum ni&eth;ri vi&eth; Polygone og vinnum okkur upp eftir. Strax fyrir utan er gjarnan afspyrnu skemmtilegt tr&iacute;&oacute; sem samanstendur af manni me&eth; harmonikku, &ouml;&eth;rum me&eth; bassa sem l&iacute;tur &uacute;t eins og risavaxin balalaika me&eth; &thorn;rem strengjum og konu sem spilar &aacute; undarlegt bor&eth;-strengjahlj&oacute;&eth;f&aelig;ri me&eth; tveimur tr&eacute;skei&eth;um. &THORN;au eru svakalega flink. S&eacute;u &thorn;au ekki &aacute; sv&aelig;&eth;inu eru &thorn;arna gjarnan menn me&eth; harmonikkur e&eth;a ungir menn a&eth; s&yacute;na breikdans. &Aacute; lei&eth;inni upp &aacute; torgi&eth; gengur ma&eth;ur s&iacute;&eth;an gjarnan framhj&aacute; konu me&eth; fi&eth;lu og hr&aelig;&eth;ilegum sv&ouml;rtum tr&uacute;bador. Hann er &thorn;arna n&aelig;stum alltaf og gerir meira &uacute;t &aacute; a&eth; vera fyndinn en g&oacute;&eth;ur. Held &eacute;g. Enda getur vel veri&eth; a&eth; hann s&eacute; fyndinn. &Eacute;g bara skil hann ekki enn&thorn;&aacute;. S&iacute;&eth;an kemur ma&eth;ur upp &aacute; hlutann &thorn;ar sem torgi&eth; er brei&eth;ast. &THORN;ar hef &eacute;g t.d. rekist &aacute; fimleikamenn, b&aelig;&eth;i eina og &iacute; h&oacute;pum &thorn;ar sem &thorn;eir pr&iacute;la hver upp &aacute; axlir annars og gera hvers konar sk&uacute;lpt&uacute;ra &uacute;r sj&aacute;lfum s&eacute;r. Eins hef &eacute;g s&eacute;&eth; &thorn;arna eldgleypa &aacute; kv&ouml;ldin og, &thorn;a&eth; sem m&eacute;r finnst flottast af &ouml;llu, l&aacute;tbrag&eth;sleikara sem &thorn;ykjast vera styttur. &THORN;eir eru gjarnan kl&aelig;ddir og sminka&eth;in eins og franskir a&eth;alsmenn fr&aacute; &thorn;v&iacute; &iacute; gamla daga e&eth;a jafnvel bronsa&eth;ir fr&aacute; toppi til t&aacute;ar. Svo standa &thorn;eir alveg hreyfingarlausir (me&eth; augun og allt) og skipta bara um stellingu &thorn;egar einhver setur pening &iacute; dolluna &thorn;eirra. &THORN;a&eth; gera &thorn;eir me&eth; einni markvissri hreyfingu. Afspyrnuk&uacute;l &thorn;egar vel er gert. &Eacute;g s&aacute; til d&aelig;mis einn gera &thorn;etta me&eth; tvo ketti pr&iacute;landi utan &aacute; s&eacute;r.<br \/>  Uppi &aacute; torgi skiptast hlj&oacute;&eth;f&aelig;raleikarar oftast &aacute; um a&eth; skemmta gestum kaffih&uacute;sanna. &THORN;ar er oft nokku&eth; snjall klass&iacute;skur g&iacute;tarleikari, &thorn;verflautuleikari me&eth; undirleik af bandi og svo tr&iacute;&oacute; sem &eacute;g held miki&eth; upp &aacute;. &THORN;a&eth; samanstendur af tveimur harm&oacute;nikkum og einni fi&eth;lu og meginuppista&eth;an &iacute; pr&oacute;gramminu &thorn;eirra eru r&uacute;ssnesk &thorn;j&oacute;&eth;l&ouml;g. (&THORN;egar &thorn;eir spila &bdquo;Ma&iacute;kv&ouml;ld &iacute; Moskvuborg&ldquo; &thorn;&aacute; gef &eacute;g &thorn;eim pening.) Fyrir framan kaffih&uacute;sin eru s&iacute;&eth;an stundum str&aacute;kar sem &yacute;mist sprikla eftir n&yacute;m&oacute;&eth;ins t&oacute;nlist og\/e&eth;a henda hlutum upp &iacute; lofti&eth; og gr&iacute;pa &thorn;&aacute; aftur.<br \/>  &Iacute; vetrarbyrjun var sett upp gamaldags hringekja &aacute; torginu. H&uacute;n er me&eth; &thorn;v&iacute; flottara sem &eacute;g hef s&eacute;&eth; &aacute; &aelig;vinni. Henni er vel vi&eth; haldi&eth; og h&uacute;n er &iacute; gangi meira og minna allan daginn. H&uacute;n er &iacute; g&oacute;&eth;u samr&aelig;mi vi&eth; aldra&eth;ar byggingarnar &iacute; kring og gefur torginu &ouml;llu &aelig;vint&yacute;ralegan bl&aelig;. &THORN;etta fyrirb&aelig;ri hefur e.t.v. ekki s&eacute;rstaklega listr&aelig;nt gildi. Skapar samt alls ekki minni stemmingu en skemmtikraftarnir.<\/p>\n<p>  &THORN;egar h&eacute;r er komi&eth; s&ouml;gu leggur ma&eth;ur &iacute; Laugaveginn. &THORN;ar er gjarnan t&oacute;nlist, en &thorn;arna eru sax&oacute;f&oacute;nleikarar algengari en ni&eth;ri &aacute; torginu. &THORN;etta skapar djassa&eth;ri stemmingu. &THORN;arna er nokku&eth; um tr&iacute;&oacute; me&eth; kontrab&ouml;ssum, saxaf&oacute;num og g&iacute;t&ouml;rum. Svo s&eacute;r ma&eth;ur stundum &bdquo;jugglara&ldquo; &thorn;arna uppfr&aacute;, en &thorn;eir eru ekkert s&eacute;rstaklega g&oacute;&eth;ir. &THORN;a&eth; er eiginlega eins og &thorn;eir s&eacute;u a&eth; &aelig;fa sig. &THORN;a&eth; flottasta sem &eacute;g hef s&eacute;&eth; &aacute; Laugaveginum var br&uacute;&eth;uleikh&uacute;s sem &eacute;g rakst einu sinni &aacute;. &THORN;etta var mj&ouml;g einfalt, ein kona me&eth; gamaldags br&uacute;&eth;uleikh&uacute;s-kassa og tv&aelig;r br&uacute;&eth;ur sem h&uacute;n l&eacute;t dansa eftir t&oacute;nlist sem hlj&oacute;ma&eth;i eins og h&uacute;n k&aelig;mi &uacute;r l&iacute;rukassa. &THORN;etta skapa&eth;i ofsalega fallega stemmingu og var svol&iacute;ti&eth; eins og a&eth; fara aftur &iacute; t&iacute;mann um svona 100 &aacute;r.<\/p>\n<p>  H&eacute;r, eins og annars sta&eth;ar &iacute; Frakklandi, er miki&eth; um hvers konar m&oacute;tm&aelig;li. &THORN;&aacute; sjaldan &thorn;eim &iacute; r&aacute;&eth;h&uacute;sinu dettur &iacute; hug a&eth; &aacute;kve&eth;a eitthva&eth; eru um lei&eth; komnir st&oacute;rir h&oacute;par f&oacute;lks fyrir utan til a&eth; l&aacute;ta sko&eth;un s&iacute;na &iacute; lj&oacute;s. &THORN;essi m&oacute;tm&aelig;li eru gjarnan mj&ouml;g listr&aelig;n &iacute; framsetningu. Um daginn var &aacute;kve&eth;i&eth; a&eth; l&aelig;kka styrki til sj&aacute;lfst&aelig;&eth;rar lista- og menningarstarfsemi h&eacute;r &iacute; Montpellier. &THORN;egar &eacute;g gekk framhj&aacute; r&aacute;&eth;h&uacute;sinu &thorn;ann dag var miki&eth; um a&eth; vera, mikill mannfj&ouml;ldi saman kominn og allir me&eth; bl&oacute;m. Fremst &iacute; flokki var l&iacute;til hlj&oacute;msveit sem spila&eth;i jar&eth;arfarars&aacute;lma og uppi &aacute; gosbrunninum gengt r&aacute;&eth;h&uacute;sinu st&oacute;&eth;u tveir menn me&eth; l&iacute;kkistu &aacute; milli s&iacute;n. &Aacute; henni st&oacute;&eth; &bdquo;Mort du spectacle&ldquo;, &bdquo;Dau&eth;i s&yacute;ningarinnar&ldquo;. &THORN;etta var mj&ouml;g &aacute;hrifamiki&eth;. &Eacute;g var n&aacute;tt&uacute;rulega ekki me&eth; myndav&eacute;l.<\/p>\n<p>  <strong>&THORN;j&oacute;&eth;arb&ouml;l e&eth;a &thorn;j&oacute;&eth;menning?<\/strong><br \/>  &Eacute;g held a&eth; g&ouml;tulistamenn &iacute; Montpellier k&aelig;ri sig a&eth; mestu leyti koll&oacute;tta um listr&aelig;nt e&eth;a menningarlegt gildi. &THORN;eir eru &thorn;arna eing&ouml;ngu &iacute; &thorn;eim tilgangi a&eth; skemmta f&oacute;lki og eignast jafnvel &iacute; lei&eth;inni peninga fyrir bj&oacute;r. Ekki veit &eacute;g hvort allt &thorn;etta f&oacute;lk hefur g&ouml;tulistir sem a&eth;alatvinnu. Getur &thorn;&oacute; vel veri&eth; &thorn;ar sem atvinnuleysi er miki&eth; h&eacute;r um sl&oacute;&eth;ir, s&eacute;rstaklega &aacute; me&eth;al verkaf&oacute;lks. &THORN;a&eth; hl&yacute;tur &thorn;&oacute; a&eth; vera &aacute;g&aelig;tt a&eth; eiga &thorn;ann m&ouml;guleika a&eth; geta &aelig;ft sig &iacute; einhverju kj&aacute;nalegu og geta s&iacute;&eth;an unni&eth; fyrir s&eacute;r me&eth; &thorn;v&iacute; a&eth; f&iacute;flast &aacute; g&ouml;tum &uacute;ti. &THORN;etta reyndar gerir &thorn;a&eth; a&eth; verkum a&eth; ma&eth;ur l&iacute;tur hina betlarana &bdquo;&oacute;h&yacute;rara&ldquo; auga. &THORN;essa sem reyna ekkert til a&eth; vinna fyrir mat s&iacute;num, hanga bara &uacute;ti &aacute; g&ouml;tu me&eth; aumingjasvip og sn&iacute;kja peninga og s&iacute;garettur af gestum og gangandi. &THORN;&aacute; r&iacute;s &Iacute;slendingurinn &iacute; manni upp &aacute; aftirlappirnar &thorn;ar sem &thorn;a&eth; lj&oacute;tasta sem h&aelig;gt er a&eth; segja um nokkurn mann &aacute; &Iacute;slandi er &bdquo;a&eth; hann nenni ekki a&eth; vinna&ldquo; og &bdquo;a&eth; hann kunni ekkert a&eth; bjarga s&eacute;r&ldquo;. Listal&iacute;fi&eth; &aacute; g&ouml;tunum h&eacute;r er sem sagt sprotti&eth; af &thorn;v&iacute; &thorn;j&oacute;&eth;arb&ouml;li sem atvinnuleysi og f&aacute;t&aelig;kt er h&eacute;r um sl&oacute;&eth;ir. &THORN;a&eth; er napurleg sta&eth;reynd. En, &thorn;annig vir&eth;ist n&uacute; heimurinn vera. &THORN;a&eth; er &yacute;mist &iacute; &ouml;kkla e&eth;a eyra. &Aacute; &Iacute;slandi &thorn;arf f&oacute;lk &iacute; fullri vinnu og jafnvel r&uacute;mlega &thorn;a&eth; a&eth; stunda g&ouml;tulistir &iacute; sj&aacute;lfbo&eth;avinnu, eigi a&eth; gera b&aelig;ina l&iacute;flegri eina og eina helgi. H&eacute;r &thorn;v&aelig;last menn hver um annan &thorn;veran vi&eth; a&eth; skemmta &ouml;rf&aacute;um og f&uacute;lum vegfarendum &thorn;ar sem &thorn;eir hafa svo sem ekkert anna&eth; a&eth; gera. Svo vi&eth; veltum aftur upp spurningunni sem &eacute;g kasta&eth;i fram &iacute; byrjun. Hven&aelig;r er g&ouml;tuleikh&uacute;s g&ouml;tuleikh&uacute;s? Hven&aelig;r eru menn a&eth; fremja listir og hven&aelig;r ekki? Gerir betli&eth; listina &oacute;merkilegri? E&eth;a kannski merkilegri? Skemmtilegar vangaveltur en &eacute;g held a&eth; vi&eth; &thorn;eim s&eacute; ekkert einhl&yacute;tt svar. Enda n&yacute;t &eacute;g &thorn;ess bara &iacute; botn a&eth; labba heim &uacute;r b&uacute;&eth;inni, heyra 3-4 mismunandi tegundir af t&oacute;nlist &aacute; lei&eth;inni og sj&aacute; jafnvel f&oacute;lk gera flotta hluti inn &aacute; milli. Kannski ein og ein m&oacute;tm&aelig;li. Finnast &eacute;g vera &oacute;skaplega miki&eth; menningarleg &iacute; n&oacute;vembers&oacute;linni og hugsa sem minnst, svona yfirh&ouml;fu&eth;.<\/p>\n<p>  &THORN;etta er Sigr&iacute;&eth;ur L&aacute;ra Sigurj&oacute;nsd&oacute;ttir,<br \/>  sem skrifar fr&aacute; Montpellier.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hinn ge&eth;&thorn;ekki fyrrverandi ritari Bandalagsins, Sigr&iacute;&eth;ur L&aacute;ra Sigurj&oacute;nsd&oacute;ttir b&yacute;r n&uacute; &iacute; Montpellier &iacute; S-Frakkalandi. H&uacute;n hefur gert &ouml;rlitla &uacute;ttekt &aacute; menningar- og mannl&iacute;fi &thorn;ar &iacute; borg.<\/p>","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[200],"tags":[],"class_list":["post-126","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-markvert","et-doesnt-have-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/126","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=126"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/126\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=126"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=126"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=126"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}