{"id":11396,"date":"2019-02-13T12:22:38","date_gmt":"2019-02-13T12:22:38","guid":{"rendered":"https:\/\/leiklist.is\/?p=11396"},"modified":"2020-03-02T10:03:28","modified_gmt":"2020-03-02T10:03:28","slug":"ad-mata-sig-i-mismunandi-hlutverk","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/ad-mata-sig-i-mismunandi-hlutverk\/","title":{"rendered":"A\u00f0 m\u00e1ta sig \u00ed mismunandi hlutverk"},"content":{"rendered":"<h6>Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson<br \/>\nLeikf\u00e9lag \u00d6lfuss &#8211; Leikstj\u00f3ri Gu\u00f0finna Gunnarsd\u00f3ttir<\/h6>\n<p>Gengi\u00f0 er inn gegnum d\u00f6kkleitt tjald, vi\u00f0 okkur blasa saumav\u00e9larnar, straubrettin og sni\u00f0in sem m\u00f6rgum eru \u00ed barnsminni, en koma \u00fe\u00f3 yngri \u00e1horfendum sp\u00e1nskt fyrir sj\u00f3nir. \u00dea\u00f0 er vi\u00f0eigandi a\u00f0 l\u00e1ta \u00e1horfendur st\u00edga gegnum efni til a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feessa verks, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er einmitt efni\u00f0, stykkin, sni\u00f0in og saumaskapurinn sem bindur pers\u00f3nur Saumastofunnar saman.<\/p>\n<p><em>T\u00edmalaus spegill?<\/em><br \/>\nLeikriti\u00f0 Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson er ekki n\u00fdtt af n\u00e1linni, heldur var \u00fea\u00f0 skrifa\u00f0 \u00ed tilefni kvenna\u00e1rsins 1975, fyrsta verk h\u00f6fundar. Eins og segir \u00ed leikskr\u00e1 naut \u00fea\u00f0 mj\u00f6g mikilla vins\u00e6lda hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi Reykjav\u00edkur og \u00fea\u00f0 m\u00e1tti greina nokkra nostalg\u00edu \u00ed Vers\u00f6lum \u00e1 \u00feri\u00f0judagskv\u00f6ldi\u00f0. \u00cd hugum margra hafa Saumastofan, t\u00f3nlistin og pers\u00f3nurnar sem \u00fear birtast, yfir s\u00e9r einhverskonar go\u00f0sagnabl\u00e6. Leikf\u00e9lag \u00d6lfuss \u00fearf \u00fev\u00ed a\u00f0 standast t\u00f6luver\u00f0ar v\u00e6ntingar margra.<br \/>\nVerki\u00f0 er skrifa\u00f0 sem samt\u00edmal\u00fdsing \u00e1 \u00e1kve\u00f0nu t\u00edmabili. Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a pers\u00f3nudrifi\u00f0 s\u00f6guleikh\u00fas \u00fear sem mismunandi einstaklingar standa fyrir \u00f3l\u00edkar byggingareiningar heildars\u00f6gunnar. \u00cd me\u00f0f\u00f6rum Gu\u00f0finnu Gunnarsd\u00f3ttur og leikh\u00f3psins er \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halda \u00ed \u00feann t\u00ed\u00f0aranda ritunart\u00edma verksins. Ekki er leitast vi\u00f0 a\u00f0 n\u00fat\u00edmav\u00e6\u00f0a verki\u00f0 e\u00f0a f\u00e6ra \u00fea\u00f0 a\u00f0 samt\u00edmanum og er \u00fea\u00f0 vel, \u00fear sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a bo\u00f0skap sem stenst t\u00edmans t\u00f6nn, og me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 opna glugga inn \u00ed fort\u00ed\u00f0ina ver\u00f0ur samt\u00edmaspeglunin sterkari.<\/p>\n<p><em>A\u00f0 taka upp sni\u00f0<\/em><br \/>\nSvi\u00f0smynd verksins er sem fyrr segir rauns\u00e6 og tr\u00fa s\u00ednum t\u00edma, leikmyndah\u00f6nnu\u00f0ur og s\u00fdningarstj\u00f3ri er \u00d3l\u00f6f \u00de\u00f3ra \u00deorkelsd\u00f3ttir en b\u00faningar og leikmunir koma fr\u00e1 leikh\u00f3pnum. Auk hversdagslegra muna lokast bakveggur svi\u00f0sins me\u00f0 st\u00e6kka\u00f0ri mynd af margskonar saumansi\u00f0um. Myndin er verk \u00d3lafar \u00de\u00f3ru og pr\u00fd\u00f0ir einnig leikskr\u00e1na, sem h\u00f6nnu\u00f0 er af H\u00e1koni Svavarssyni og Magn\u00fe\u00f3ru Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur, auk \u00feess a\u00f0 breg\u00f0a fyrir \u00ed anddyri Versala. Sni\u00f0abla\u00f0i\u00f0 ver\u00f0ur raunar a\u00f0 b\u00fdsna \u00e1hugaver\u00f0ri myndl\u00edkingu fyrir fr\u00e1sagnarform verksins. \u00dear \u00e6gir saman mismunandi sni\u00f0um af stykkjum sem eiga a\u00f0 ver\u00f0a a\u00f0 fl\u00edkum. Til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 botn \u00ed \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 fylgja l\u00ednum hverrar og einnar, n\u00e1 henni fram einni og stakri, \u00e1 sama h\u00e1tt og pers\u00f3nurnar st\u00edga fram ein og ein \u00ed einu til a\u00f0 segja \u00e1horfendum s\u00f6gur s\u00ednar.<br \/>\nSvi\u00f0i\u00f0 er einnig til \u00feess gert a\u00f0 undirstrika fr\u00e1sagnarm\u00e1tann. \u00deegar pers\u00f3nurnar segja fr\u00e1 l\u00edfi s\u00ednu og hleypa \u00feeim sem hlusta inn \u00ed kvikuna \u00e1 s\u00e9r st\u00edga \u00fe\u00e6r ni\u00f0ur af hinu upph\u00e6kka\u00f0a svi\u00f0i og sta\u00f0setja sig \u00feannig jafnf\u00e6tis \u00e1horfendunum. \u00dea\u00f0 gerir fr\u00e1s\u00f6gnina b\u00e6\u00f0i einl\u00e6gari og au\u00f0veldar sams\u00f6mun. Virkni \u00feessa mj\u00f3a fremra svi\u00f0s byggir miki\u00f0 \u00e1 g\u00f3\u00f0ri lj\u00f3sah\u00f6nnun. H\u00fan er \u00ed h\u00f6ndum Benedikts Axelsonar og tekst mj\u00f6g vel til. \u00c1horfendur \u00e1 fremsta bekk sitja ansi n\u00e6rri leikurunum \u00feegar \u00feeir st\u00edga fram \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt, en engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur gengu skiptingar \u00ed myrkri mj\u00f6g vel fyrir sig.<br \/>\nT\u00f3nlistin er mikilv\u00e6gur hluti verksins og eitt af \u00fev\u00ed sem margir a\u00f0d\u00e1endur \u00feekkja hva\u00f0 best. \u00dear r\u00e6\u00f0ur einfaldleikinn r\u00edkjum \u00fear sem oft er einungis byggt \u00e1 r\u00f6ddum leikaranna me\u00f0 tveimur undantekningum \u00fear sem \u00c1lfhei\u00f0ur \u00d8sterby leikur \u00e1 klarinett. \u00deessi l\u00e1tlausa t\u00falkun stingur nokku\u00f0 \u00ed st\u00faf vi\u00f0 slagara sem leiknir eru af bandi me\u00f0 \u00feungum hlj\u00f3\u00f0f\u00e6rasl\u00e6tti og ramma s\u00fdninguna inn \u00ed upphafi, mi\u00f0ju og endi. S\u00f6ngur \u00e1n undirleiks er mj\u00f6g vel leystur, sem og \u00feau atri\u00f0i \u00fear sem leikararnir h\u00e1lf-fara me\u00f0 s\u00f6ngtextana frekar en a\u00f0 syngja, en gaman hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 heyra fleiri lausnir eins og undirleik klarinettsins.<\/p>\n<p><em>T\u00f6kum \u00fev\u00ed fagnandi og hl\u00f6kkum til<\/em><br \/>\nSaumastofan er pers\u00f3nudrifi\u00f0 verk og er \u00feeim \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 koma \u00e1 framf\u00e6ri \u00e1kve\u00f0num gildum. \u00de\u00e6r ver\u00f0a \u00fev\u00ed \u00e1 k\u00f6flum nokku\u00f0 fyrirsj\u00e1anlegar, gamla konan me\u00f0 reynsluna, \u00f3l\u00e9tta ungmeyjan, homminn \u00ed bleiku skyrtunni o.s.frv. \u00cd svona p\u00f3lit\u00edsku verki eru pers\u00f3nur af \u00feessu tagi n\u00e1nast nau\u00f0syn og \u00fev\u00ed meiri \u00e1skorun fyrir leikara a\u00f0 n\u00e1lgast \u00fe\u00e6r \u00e1 frj\u00f3an h\u00e1tt. \u00dear koma \u00e1horfendur ekki a\u00f0 t\u00f3mum kofa hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi \u00d6lfuss. Verki\u00f0 er vissulega bori\u00f0 uppi af konum en innkoma hins kynsins skapar skemmtilegt m\u00f3tv\u00e6gi. Ber \u00fear s\u00e9rstaklega a\u00f0 nefna Dan\u00edel M\u00e1na \u00d3skarsson sem er svo heill og einl\u00e6gur \u00ed hlutverki Himma a\u00f0 \u00fea\u00f0 var \u00f3m\u00f6gulegt anna\u00f0 en a\u00f0 hr\u00edfast me\u00f0. S\u00f6mulei\u00f0is leynir k\u00e6rastan hans, Lilla, \u00e1 s\u00e9r. \u00cd upphafi vir\u00f0ist pers\u00f3na hennar fremur fl\u00f6t og \u00f3spennandi, en \u00f6\u00f0last \u00ed me\u00f0f\u00f6rum \u00c1lfhei\u00f0ar \u00d8sterby l\u00edf \u00ferungi\u00f0 k\u00edmni og alv\u00f6ru auk \u00feess sem h\u00fan vekur me\u00f0 \u00e1horfendum \u00fe\u00e1 gr\u00e1tbroslegu samkennd sem pers\u00f3na hennar \u00e1 skili\u00f0.<\/p>\n<p>Leikf\u00e9lag \u00d6lfuss n\u00fdtur krafta l\u00e1nsleikonunnar J\u00f3nhei\u00f0ar \u00cdsleifsd\u00f3ttur a\u00f0 \u00feessu sinni, en af henni geislar leikgle\u00f0in a\u00f0 vanda. Henni tekst a\u00f0 gera heldur l\u00edti\u00f0 hlutverk Diddu, sem alltaf skiptir um sko\u00f0un, a\u00f0 st\u00f3ru og samleikur \u00feeirra R\u00f3berts Karls Ingimundarsonar er st\u00f3rskemmtilegur \u00e1 k\u00f6flum. \u00c1sta Margr\u00e9t Gr\u00e9tarsd\u00f3ttir og Ing\u00f3lfur Arnarsson kitla hl\u00e1turtaugarnar \u00ed hlutverkum \u00c1su og Kalla sem b\u00e6\u00f0i eru pers\u00f3nur sem s\u00edfellt eru a\u00f0 leika og ver\u00f0a enn meira marglaga fyrir viki\u00f0. \u00deykkur skr\u00e1pur hinnar ge\u00f0veiku Gunnu brotnar sm\u00e1m saman \u00ed t\u00falkun Magn\u00fe\u00f3ru Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur sem er ekki s\u00ed\u00f0ri \u00ed hlutverki eiginmanns M\u00f6ggu, sem leikin er af Erlu Dan J\u00f3nsd\u00f3ttur en hin s\u00ed\u00f0arnefnda n\u00e6r \u00e1horfendum af fullum krafti \u00ed sinni sorgars\u00f6gu. \u00de\u00e1 er \u00f3nefnd \u00c1rn\u00fd Leifsd\u00f3ttir sem lj\u00e6r hinni hl\u00e9dr\u00e6gu Siggu l\u00edf. Sigga er elsta pers\u00f3nan og f\u00e6rir \u00e1horfendum marga \u00f3borganlega speki me\u00f0 s\u00ednu me\u00f0f\u00e6dda l\u00edfsvi\u00f0horfi a\u00f0 hlakka alltaf til. \u00c1rn\u00fd gerir \u00feessari sveitakonu af gamla sk\u00f3lanum g\u00f3\u00f0 skil, en fallegasta sena verksins er \u00ed s\u00f6gunni hennar Siggu, \u00feegar s\u00e1rsauki \u00feessarar hl\u00e9dr\u00e6gu konu br\u00fdst fram \u00ed einskonar uppruna\u00f6skri.<br \/>\nFlestar pers\u00f3nur leika fleira en eitt hlutverk og takast kvenleikarar gjarnan \u00e1 vi\u00f0 karlhlutverk \u00ed \u00feeim skiptum. \u00deessi forngr\u00edska a\u00f0fer\u00f0 gefur s\u00f6gunni auki\u00f0 skemmtanagildi \u2013 og var \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 ekki af skornum skammti fyrir, en minnir okkur einnig \u00e1 mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 setja sig \u00ed spor annarra og m\u00e1ta \u00ed mismunandi hlutverk. Saumastofan er br\u00e1\u00f0fyndin s\u00fdning og var au\u00f0heyrt \u00e1 salnum a\u00f0 s\u00fa sko\u00f0un var almenn. H\u00fan er l\u00edka beitt og \u00e1 k\u00f6flum gr\u00e1tbrosleg. S\u00f6gur pers\u00f3nanna snerta \u00e1horfendur og \u00ed \u00feeim er gjarnan broddur og gagnr\u00fdni sem \u00e1 vi\u00f0 enn \u00ed dag. Eftir stendur samsta\u00f0an og \u00fea\u00f0 er fallegt hvernig yngsta pers\u00f3nan, Lilla, klifar \u00e1 henni \u00feegar h\u00fan bi\u00f0ur hinar konurnar a\u00f0 segja s\u00f6gur s\u00ednar. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 \u00feekkja hvert anna\u00f0 til a\u00f0 geta sta\u00f0i\u00f0 saman og fagna\u00f0 \u00fev\u00ed hversu \u00f3l\u00edk vi\u00f0 erum. S\u00f6gur kvennanna \u00e1 saumastofunni eru nefnilega s\u00f6gur okkar sj\u00e1lfra og kvennanna \u00ed l\u00edfi okkar, sem okkur h\u00e6ttir til a\u00f0 gleyma. \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 s\u00fdningin \u00e1 fullt erindi vi\u00f0 okkur enn \u00ed dag. \u00c9g \u00feekkti ekki l\u00f6gin \u00far Saumastofunni, en \u00feau v\u00f6ktu eitthva\u00f0 innra me\u00f0 m\u00e9r. Eitthva\u00f0 sem olli \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi lag\u00f0ist \u00e9g \u00e1 koddann s\u00f6nglandi \u201e\u00c1fram stelpur.\u201c Verki\u00f0 endar \u00e1 t\u00edmam\u00f3tum \u00fear sem Lilla spyr M\u00f6ggu hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00f6rugg a\u00f0 allt ver\u00f0i n\u00fa eins og Magga svarar eitthva\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 veru a\u00f0 l\u00edklega s\u00e9u hlutirnir a\u00f0 breytast. \u00deeir eru \u00fea\u00f0, en \u00ed anda Siggu g\u00f6mlu legg \u00e9g til a\u00f0 vi\u00f0 t\u00f6kum \u00fev\u00ed fagnandi, og hl\u00f6kkum til.<\/p>\n<p><strong>Harpa R\u00fan Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir<\/strong><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson Leikf\u00e9lag \u00d6lfuss &#8211; Leikstj\u00f3ri Gu\u00f0finna Gunnarsd\u00f3ttir Gengi\u00f0 er inn gegnum d\u00f6kkleitt tjald, vi\u00f0 okkur blasa saumav\u00e9larnar, straubrettin og sni\u00f0in sem m\u00f6rgum eru \u00ed barnsminni, en koma \u00fe\u00f3 yngri \u00e1horfendum sp\u00e1nskt fyrir sj\u00f3nir. \u00dea\u00f0 er vi\u00f0eigandi a\u00f0 l\u00e1ta \u00e1horfendur st\u00edga gegnum efni til a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feessa verks, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er einmitt efni\u00f0, [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":20001,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[187,186,213],"tags":[],"class_list":["post-11396","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-allar-frir","category-gagnrdinn","category-vikupostur","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/11396","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=11396"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/11396\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/20001"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=11396"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=11396"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=11396"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}