{"id":1067,"date":"2006-11-15T08:50:54","date_gmt":"2006-11-15T08:50:54","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=1067"},"modified":"2006-11-15T08:50:54","modified_gmt":"2006-11-15T08:50:54","slug":"umfjn-um-listina-afa","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/umfjn-um-listina-afa\/","title":{"rendered":"Umfj\u00f6llun um Listina a\u00f0 lifa"},"content":{"rendered":"<p> Sigur\u00f0ur Ing\u00f3lfsson br\u00e1 s\u00e9r \u00e1 frums\u00fdningu hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi Flj\u00f3tsdalsh\u00e9ra\u00f0s um helgina. Hann haf\u00f0i \u00feetta a\u00f0 segja: <\/p>\n<p> Um helgina var frums\u00fdnt \u00e1 I\u00f0av\u00f6llum n\u00fdtt leikrit eftir ungan h\u00f6fund, Listin a\u00f0 lifa.<br \/> \u00deetta er g\u00f3\u00f0 s\u00fdning og vel uppf\u00e6r\u00f0.  \u00dearna eru \u00fer\u00edr leikarar sem skila s\u00ednu afskaplega vel.<br \/> \u00dea\u00f0 a\u00f0 skrifa leikrit um manns\u00e6fi er st\u00f3rt verkefni og au\u00f0vita\u00f0 eru \u00fearna hn\u00f6krar sem a\u00f0 kannski eru vi\u00f0eigandi \u00feegar \u00feetta verkefni er teki\u00f0 fyrir.  Ein \u00e6fi er ekkert hn\u00f6kralaus.    <\/p>\n<p>  <!--more--> Sigr\u00ed\u00f0ur L\u00e1ra Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir skrifar verki\u00f0 sem s\u00ed\u00f0an ver\u00f0ur \u00e1 vissan h\u00e1tt til \u00ed me\u00f0f\u00f6rum Odds Bjarna \u00deorkelssonar, leikstj\u00f3ra og svo leikaranna.  \u00der\u00e1inn Sigvaldason leikur mann sem breytist \u00far ves\u00e6ldarlegum krakka \u00ed fullor\u00f0inn mann og s\u00ed\u00f0an gamalmenni og \u00fe\u00e6r Oddn\u00fd \u00d3laf\u00eda S\u00e6mundsd\u00f3ttir og Eygl\u00f3 Dan\u00edelsd\u00f3ttir, konurnar \u00ed l\u00edfi hans.  \u00deau gera \u00feetta feykilega vel og margt \u00ed leikstj\u00f3rninni er verulega gott.  \u00dea\u00f0 ert til d\u00e6mis gaman hvernig er unni\u00f0 me\u00f0 liti \u00ed s\u00fdningunni, D\u00faa, sem leikin er af L\u00f3u (\u00d3laf\u00edu Oddn\u00fdju) er oftast n\u00e6r rau\u00f0kl\u00e6dd og ber \u00feennan lit spillingar og hita af kynfer\u00f0islegum \u00feunga, Didda, sem leikin er af Eygl\u00f3 Dan\u00edelsd\u00f3ttur er bl\u00e1leit eins og himinninn og sakleysi\u00f0 og svo er D\u00faddi, \u00der\u00e1inn Sigvaldason, \u00ed \u00feessum gr\u00e6nleita jar\u00f0bundna lit og fyrir viki\u00f0 einhver sem sameinar \u00ed sinni vorkunnns\u00f6mu vi\u00f0leitni til \u00feess a\u00f0 fullor\u00f0nast, eiginleika kvennanna beggja, himinn og j\u00f6r\u00f0.  \u00deetta er \u00e1 margan h\u00e1tt margslungi\u00f0 leikrit og \u00fea\u00f0 er teki\u00f0 \u00e1 m\u00f6rgu, framhj\u00e1haldi, \u00e1st og dau\u00f0a, \u00e6skunni, l\u00edfinu og listina vi\u00f0 a\u00f0 dansa \u00feennan l\u00ednudans sem \u00fea\u00f0 er.  Og eins og \u00e9g segi, \u00fea\u00f0 er vandme\u00f0fari\u00f0 verkefni.  \u00dea\u00f0 sem m\u00e9r fannst vera hn\u00f6krar eru kannski einna helst \u00fea\u00f0 a\u00f0 or\u00f0r\u00e6\u00f0an, myndm\u00e1li\u00f0, \u00fea\u00f0 hvernig pers\u00f3nurnar tala saman, vir\u00f0ist \u00e1 k\u00f6flum vera eins og ekkert hafi gerst \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu \u00e1 \u00feessu t\u00edmabili.  \u00dea\u00f0 er eins og \u00feetta f\u00f3lk s\u00e9 alltaf \u00ed sama samf\u00e9lagi, me\u00f0 s\u00f6mu vandam\u00e1l og \u00ed raun fyrir framan sama spegil.  En \u00fea\u00f0 er hugsanlega eins og l\u00edf okkar velflestra.  <\/p>\n<p> <img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1066\" style=\"margin: 12px; float: left; width: 200px; height: 133px\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2006\/11\/Adildarfelog_Austur_Fljotsdalsherad_06_07_Listin_listin.jpg\" alt=\"listin.jpg\" title=\"listin.jpg\" width=\"200\" height=\"133\" \/>Kannski erum vi\u00f0 alltaf a\u00f0 bur\u00f0ast me\u00f0 s\u00f6mu hluti og vi\u00f0 munum eftir fr\u00e1 \u00fev\u00ed vi\u00f0 vorum krakkar.  Og \u00ed \u00fev\u00ed samhengi fannst m\u00e9r skemmtilega unni\u00f0 me\u00f0 skugga \u00ed \u00feessari s\u00fdningu.  \u00dea\u00f0 var stundum eins og skuggarnir s\u00fdndu manni fort\u00ed\u00f0 og fyrrverandi veruleika pers\u00f3nanna sem fylgir \u00feeim endalaust og \u00ed gegnum hva\u00f0 sem fyrir mann kann a\u00f0 koma.  <\/p>\n<p> Allt \u00ed allt var \u00e9g miki\u00f0 s\u00e1ttur vi\u00f0 \u00feessa s\u00fdningu.  Oddur Bjarni gerir \u00feetta aftur, a\u00f0 taka leikverk og vinna me\u00f0 \u00fea\u00f0 og leikendur og b\u00faa til leikh\u00fas.  \u00dea\u00f0 er nefnilega st\u00f3rmunur \u00e1 texta og s\u00fdningu og \u00fear kemur til kasta \u00feess sem heldur utan um allt saman.  Til d\u00e6mis \u00fea\u00f0 a\u00f0 vinna me\u00f0 \u00feetta litla r\u00fdmi sem er \u00e1 I\u00f0av\u00f6llum, sn\u00faa salnum vi\u00f0, setja \u00e1horfendur upp \u00e1 svi\u00f0 og l\u00e1ta \u00fe\u00e1 horfa ofan \u00ed \u00feessi l\u00edf \u00e1 g\u00f3lfi \u00fear sem f\u00f3lk hefur andast ofan \u00ed r\u00f3fust\u00f6ppuna s\u00edna \u00e1 \u00feorrabl\u00f3tum, \u00fea\u00f0 a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r mj\u00f6g mismunandi h\u00e6fileika mj\u00f6g mismunandi f\u00f3lks og b\u00faa til me\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00fdningu sem spannar heila \u00e6fi.  \u00dea\u00f0 er leikh\u00fas og \u00fea\u00f0 er skammarlegt a\u00f0 l\u00e1ta sl\u00edkt fram hj\u00e1 s\u00e9r fara.  N\u00fa og a\u00f0 lokum \u00fe\u00e1 spyr \u00e9g, hven\u00e6r ver\u00f0ur h\u00e6gt a\u00f0 s\u00fdna leikrit \u00e1 Egilsst\u00f6\u00f0um, s\u00fdna b\u00ed\u00f3myndir \u00e1 Egilsst\u00f6\u00f0um (eins og gert er me\u00f0 s\u00f3ma \u00e1 Rey\u00f0arfir\u00f0i og \u00e1 Sey\u00f0isfir\u00f0i) Hver er stefnan \u00ed sl\u00edkum m\u00e1lum \u00ed \u00feessu b\u00e6jarf\u00e9lagi?<\/p>\n<p> Listin a\u00f0 lifa er ekki bara leikrit, \u00ed \u00feessu felst l\u00edka spurning sem varpa\u00f0 er fram me\u00f0 \u00feessari s\u00fdningu og ma\u00f0ur b\u00ed\u00f0ur spenntur eftir svari.  Hluti svarsins er \u00e1 I\u00f0av\u00f6llum, \u00feessa dagana.  <\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sigur\u00f0ur Ing\u00f3lfsson br\u00e1 s\u00e9r \u00e1 frums\u00fdningu hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi Flj\u00f3tsdalsh\u00e9ra\u00f0s um helgina. Hann haf\u00f0i \u00feetta a\u00f0 segja: Um helgina var frums\u00fdnt \u00e1 I\u00f0av\u00f6llum n\u00fdtt leikrit eftir ungan h\u00f6fund, Listin a\u00f0 lifa. \u00deetta er g\u00f3\u00f0 s\u00fdning og vel uppf\u00e6r\u00f0. \u00dearna eru \u00fer\u00edr leikarar sem skila s\u00ednu afskaplega vel. \u00dea\u00f0 a\u00f0 skrifa leikrit um manns\u00e6fi er st\u00f3rt verkefni [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":1065,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[186],"tags":[],"class_list":["post-1067","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gagnrdinn","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1067","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1067"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1067\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1067"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1067"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1067"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}