{"id":10224,"date":"2018-03-08T11:47:33","date_gmt":"2018-03-08T11:47:33","guid":{"rendered":"https:\/\/leiklist.is\/?p=10224"},"modified":"2018-03-08T11:47:33","modified_gmt":"2018-03-08T11:47:33","slug":"leiklistarskoli-bil-2018","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/leiklist.is\/en\/leiklistarskoli-bil-2018\/","title":{"rendered":"Leiklistarsk\u00f3li B\u00cdL 2018"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/skolamynd2018-1.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-10233 aligncenter\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/skolamynd2018-1-300x226.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"226\" \/><\/a><\/p>\n<p class=\"p1\" style=\"text-align: center;\"><strong>Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 9. til 17. j\u00fan\u00ed a\u00f0 Reykjask\u00f3la \u00ed Hr\u00fatafir\u00f0i<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\">A\u00f0 \u00feessu sinni ver\u00f0a fj\u00f6gur fj\u00f6lbreytt n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed bo\u00f0i, sum fyrir byrjendur en \u00f6nnur sem gera r\u00e1\u00f0 fyrir \u00feekkingu og reynslu nemenda. Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson mun lei\u00f0a \u00e1hugasama inn \u00ed t\u00f6frandi heim leikritunar og er n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u00e6tla\u00f0 jafnt byrjendum sem lengra komnum. \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir skipuleggur og st\u00fdrir skemmtilegu og krefjandi tr\u00fa\u00f0an\u00e1mskei\u00f0i fyrir \u00fe\u00e1 sem hafa loki\u00f0 grunnn\u00e1mskei\u00f0um \u00ed leiklist. Kennslan ver\u00f0ur \u00ed samvinnu vi\u00f0 Gunnar Bj\u00f6rn Gu\u00f0mundsson. R\u00fanar Gu\u00f0brandsson st\u00fdrir masterclass n\u00e1mskei\u00f0i \u00ed leikstj\u00f3rn og byggir \u00fear ofan \u00e1 g\u00f3\u00f0an grunn. A\u00f0 lokum er okkur s\u00e9rst\u00f6k \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u00ed fyrsta sinn \u00ed sumarsk\u00f3la Bandalagsins upp \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed h\u00f6nnun og a\u00f0fer\u00f0um vi\u00f0 leikmynda- og b\u00faningager\u00f0. \u00dear bj\u00f3\u00f0um vi\u00f0 velkomna Evu Bj\u00f6rgu Har\u00f0ard\u00f3ttur sem kennir hj\u00e1 okkur \u00ed fyrsta sinn en n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hentar \u00f6llum \u00feeim sem hafa \u00e1huga \u00e1 \u00fev\u00ed sem gerist bak vi\u00f0 tj\u00f6ldin \u00ed leikh\u00fasinu.<\/p>\n<p class=\"p1\">B\u00e6klingur sk\u00f3lans starfs\u00e1ri\u00f0 2018 er h\u00e9r \u00e1 PDF formi:<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/LeiklistarskoliBIL2018.pdf\">LeiklistarskoliBIL2018<\/a><\/p>\n<hr \/>\n<p class=\"p1\">Kve\u00f0ja fr\u00e1 sk\u00f3lanefnd:<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2016\/03\/Skolanefnd.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright size-medium wp-image-7290\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2016\/03\/Skolanefnd-300x82.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"82\" \/><\/a><\/p>\n<p class=\"p1\">K\u00e6ra leiklistar\u00e1hugaf\u00f3lk!<\/p>\n<p class=\"p1\">\u00cd sumar er komi\u00f0 a\u00f0 tuttugasta og \u00f6\u00f0ru starfs\u00e1ri leiklistarsk\u00f3lans okkar. \u00dea\u00f0 er alltaf jafn gaman a\u00f0 skipuleggja \u00feetta metna\u00f0arfulla starf og f\u00e1 svo a\u00f0 fylgjast me\u00f0 nemendum me\u00f0taka, \u00feora, skapa, vaxa, eflast og nj\u00f3ta!<\/p>\n<p class=\"p1\">A\u00f0 \u00feessu sinni ver\u00f0a fj\u00f6gur fj\u00f6lbreytt n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed bo\u00f0i, sum fyrir byrjendur en \u00f6nnur sem gera r\u00e1\u00f0 fyrir \u00feekkingu og reynslu nemenda. Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson mun lei\u00f0a \u00e1hugasama inn \u00ed t\u00f6frandi heim leikritunar og er n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u00e6tla\u00f0 jafnt byrjendum sem lengra komnum. \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir skipuleggur og st\u00fdrir skemmtilegu og krefjandi tr\u00fa\u00f0an\u00e1m- skei\u00f0i fyrir \u00fe\u00e1 sem hafa loki\u00f0 grunnn\u00e1mskei\u00f0um \u00ed leiklist. Kennslan ver\u00f0ur \u00ed samvinnu vi\u00f0 Gunnar Bj\u00f6rn Gu\u00f0mundsson. R\u00fanar Gu\u00f0brandsson st\u00fdrir masterclass n\u00e1mskei\u00f0i \u00ed leikstj\u00f3rn og byggir \u00fear ofan \u00e1 g\u00f3\u00f0an grunn. A\u00f0 lokum er okkur s\u00e9rst\u00f6k \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u00ed fyrsta sinn \u00ed sumarsk\u00f3la Bandalagsins upp \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed h\u00f6nnun og a\u00f0fer\u00f0um vi\u00f0 leikmynda- og b\u00faningager\u00f0. \u00dear bj\u00f3\u00f0um vi\u00f0 velkomna Evu Bj\u00f6rgu Har\u00f0ard\u00f3ttur sem kennir hj\u00e1 okkur \u00ed fyrsta sinn en n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hentar \u00f6llum \u00feeim sem hafa \u00e1huga \u00e1 \u00fev\u00ed sem gerist bak vi\u00f0 tj\u00f6ldin \u00ed leikh\u00fasinu.<\/p>\n<p class=\"p1\" style=\"text-align: right;\">Hl\u00f6kkum til a\u00f0 sj\u00e1 ykkur \u2013 me\u00f0 bestu kve\u00f0ju Hrefna, D\u00fdrleif, Herd\u00eds, Hrund og G\u00edsli<\/p>\n<hr \/>\n<p class=\"p1\" style=\"text-align: center;\"><strong>Skr\u00e1ning \u00ed sk\u00f3lann stendur yfir fr\u00e1 15. mars til 15. apr\u00edl<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\">Reglan \u201efyrstur kemur \u2013 fyrstur f\u00e6r\u201c gildir vi\u00f0 skr\u00e1ningar gegn grei\u00f0slu sta\u00f0festingargjalds, kr. 40.000 ef innt\u00f6kuskilyr\u00f0um er fulln\u00e6gt a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti. N\u00e1ist ekki \u00e1s\u00e6ttanlegur fj\u00f6ldi \u00e1 eitthvert n\u00e1mskei\u00f0anna fellur \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur. Aldurstakmark \u00ed sk\u00f3lann er 18 \u00e1r. Sk\u00f3linn hefur sett s\u00e9r reglur, m.a. um umgengni, reykingar og \u00e1fengisneyslu, sem nemendur sam\u00feykkja a\u00f0 fara eftir \u00e1 starfst\u00edma sk\u00f3lans.<\/p>\n<p class=\"p1\">Sta\u00f0festingargjaldi\u00f0 er greitt inn \u00e1 reikning 334-26-5463, kt. 440169-0239.<\/p>\n<hr \/>\n<p class=\"p1\" style=\"text-align: center;\"><strong>Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 9. til 17. j\u00fan\u00ed a\u00f0 Reykjask\u00f3la \u00ed Hr\u00fatafir\u00f0i<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\" style=\"text-align: center;\"><strong>Ums\u00f3knum \u00e1samt sta\u00f0festingargjaldi skal skila fyrir 15. apr\u00edl til Bandalags \u00edsl. leikf\u00e9laga \u00e1 netfangi\u00f0 info@leiklist.is<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\">Sk\u00f3lasetning er laugardaginn 9. j\u00fan\u00ed kl. 9.00 og hefjast n\u00e1mskei\u00f0in strax \u00fear \u00e1 eftir. Nemendur eru velkomnir a\u00f0 Reykjask\u00f3la kv\u00f6ldi\u00f0 fyrir sk\u00f3lasetningu, fr\u00e1 kl. 20.00, ekki er bo\u00f0i\u00f0 upp\u00e1 kv\u00f6ldver\u00f0. Sk\u00f3laslit eru kl. 12.00 sunnudaginn 17. j\u00fan\u00ed. Vi\u00f0urkenningarskj\u00f6l og merki sk\u00f3lans ver\u00f0a afhent vi\u00f0 sk\u00f3laslit.<\/p>\n<p class=\"p1\">A\u00f0sta\u00f0a \u00ed Reykjask\u00f3la: Svefnherbergin eru b\u00fain 2 uppb\u00fanum r\u00famum, \u00fe.e. koddi, s\u00e6ng, lak og s\u00e6ngurf\u00f6t fylgja me\u00f0, litlu bor\u00f0i og tveim st\u00f3lum. Nemendur hafi me\u00f0 s\u00e9r handkl\u00e6\u00f0i og sundf\u00f6t. Sundlaug, gufuba\u00f0 og heitir pottar eru \u00e1 sta\u00f0num. Haldi\u00f0 ver\u00f0ur lokah\u00f3f s\u00ed\u00f0asta kv\u00f6ldi\u00f0 \u00fear sem f\u00f3lk kl\u00e6\u00f0ir sig upp\u00e1, kve\u00f0ur kennarana s\u00edna og skemmtir hvert \u00f6\u00f0ru me\u00f0 dansi og s\u00f6ng.<\/p>\n<p class=\"p1\">\u00de\u00e1ttt\u00f6kugj\u00f6ld eru; 100.000 fyrir n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u00c1 bak vi\u00f0 tj\u00f6ldin en 96.000 \u00e1 hin \u00ferj\u00fa.<\/p>\n<p class=\"p1\">Gjaldi\u00f0 skal vera a\u00f0 fullu greitt 10 d\u00f6gum fyrir sk\u00f3lasetningu. Innifali\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1ttt\u00f6kugjaldi er gisting, matur, kennsla og g\u00f6gn.<\/p>\n<p class=\"p1\">Sta\u00f0festingargjald er kr. 40.000. \u00dea\u00f0 grei\u00f0ist vi\u00f0 skr\u00e1ningu og er \u00f3endurkr\u00e6ft nema gegn framv\u00edsun l\u00e6knisvottor\u00f0s. H\u00e6gt er a\u00f0 grei\u00f0a s\u00edmlei\u00f0is me\u00f0 grei\u00f0slukorti.<\/p>\n<p class=\"p1\">Me\u00f0limum a\u00f0ildarf\u00e9laga Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga er bent \u00e1 a\u00f0 f\u00e9l\u00f6gin geta s\u00f3tt um sm\u00e1 styrk til Bandalagsins ef \u00feau senda nemendur \u00ed sk\u00f3lann.<\/p>\n<p class=\"p1\" style=\"text-align: center;\"><strong>Ums\u00f3knum skila\u00f0<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\">Ums\u00f3knum skal skila \u00e1 netfangi\u00f0 info@leiklist.is og um lei\u00f0\u00a0\u00fearf a\u00f0 leggja sta\u00f0festingargjaldi\u00f0, kr. 40.000.- inn \u00e1 334-26-5463,\u00a0kt. 440169-0239. Eftirtaldar uppl\u00fdsingar \u00fearf a\u00f0 senda \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti:\u00a0Hva\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0 er veri\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja um, nafn ums\u00e6kjanda, kennitala, heimilisfang, p\u00f3stn\u00famer, b\u00e6jarf\u00e9lag, netfang og s\u00edman\u00famer. \u00dear sem krafist er undirb\u00faningsn\u00e1mskei\u00f0a e\u00f0a reynslu skal l\u00e1ta ferilskr\u00e1 fylgja ums\u00f3kn.<\/p>\n<hr \/>\n<p class=\"p1\"><strong><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/agusta_gunnar.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-10229 alignleft\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/agusta_gunnar-130x300.jpg\" alt=\"\" width=\"130\" height=\"300\" \/><\/a>N\u00e1mskei\u00f0 1<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\"><strong>Tr\u00fa\u00f0an\u00e1mskei\u00f0 &#8211; S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara<\/strong><br \/>\n<strong>Kennarar \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir og Gunnar Bj\u00f6rn Gu\u00f0mundsson<br \/>\n<\/strong><strong>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 96.000<\/strong><br \/>\n<strong> T\u00edmi: 9. til 17. j\u00fan\u00ed 2018<\/strong><br \/>\n<strong> Sta\u00f0ur: Reykjask\u00f3li<\/strong><br \/>\n<strong> Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\"><strong>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem hafa s\u00f3tt Leiklist I og II e\u00f0a samb\u00e6rileg grunnn\u00e1mskei\u00f0 e\u00f0a hafa umtalsver\u00f0a reynslu af leiklist.<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\">\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu ver\u00f0ur tr\u00fa\u00f0leikurinn a\u00f0alundirsta\u00f0an. Hvers vegna erum vi\u00f0 fyndin? Hvernig erum vi\u00f0 fyndin? Byrja\u00f0 ver\u00f0ur \u00e1 rau\u00f0a nefinu, \u201eeinfalda tr\u00fa\u00f0num\u201c sem elskar a\u00f0 vera \u00e1 svi\u00f0inu og gle\u00f0ja \u00e1horfendur. Hvernig gerist \u00fea\u00f0 hj\u00e1 hverjum og einum? Me\u00f0 brosi og blikki e\u00f0a \u00fev\u00ed a\u00f0 fara me\u00f0 h\u00e1vam\u00e1l og herma eftir \u00fevottav\u00e9l \u00ed lei\u00f0inni? Talar \u00feinn tr\u00fa\u00f0ur miki\u00f0 e\u00f0a er hann hinn f\u00e1m\u00e1li hj\u00e1lpf\u00fasi a\u00f0sto\u00f0arma\u00f0ur? (Ath. ekki ver\u00f0a l\u00e1tin \u00ed t\u00e9 fyndin hj\u00e1lpart\u00e6ki s.s. bl\u00f3m sem sprauta vatni og \u00feess h\u00e1ttar og ekki ver\u00f0ur fari\u00f0 \u00ed a\u00f0 detta \u00e1 rassinn n\u00e9 a\u00f0 keppa \u00ed \u00fev\u00ed hver er bestur \u00ed kollhn\u00eds!)<\/p>\n<p class=\"p1\">H\u00e9r reynir \u00e1 kjark og einl\u00e6gni leikarans, \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann \u00feori a\u00f0 standa fyrir framan \u00e1horfendur og hlusta eftir \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00feeim \u00feykir skemmtilegt. En \u00fea\u00f0 reynir ekki s\u00edst \u00e1 a\u00f0 fagna \u00fev\u00ed \u00feegar ma\u00f0ur er ekki fyndinn og henda h\u00f6fnunartilfinningunni sem \u00fev\u00ed fylgir \u00fat \u00ed hafsauga og halda \u00f3trau\u00f0 \u00e1fram.<\/p>\n<p class=\"p1\">\u00c1 s\u00ed\u00f0ari hluta n\u00e1mskei\u00f0sins ver\u00f0ur fari\u00f0 \u00ed trag\u00edska tr\u00fa\u00f0inn. Rau\u00f0a nefi\u00f0 teki\u00f0 af og dekkri hli\u00f0ar l\u00edfsins taka vi\u00f0. \u00deessi tr\u00fa\u00f0ur \u00e1 s\u00e9r vonir og \u00fer\u00e1r, getur or\u00f0i\u00f0 \u00e1stfanginn og svo misst \u00e1stvin sinn en sama \u00e1 hverju gengur missir hann aldrei vonina og eins og rau\u00f0nefjinn, sambandi\u00f0 vi\u00f0 \u00e1horfandann.<\/p>\n<hr \/>\n<p class=\"p1\"><strong><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/Ru\u0301nar_vefur.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-full wp-image-10230 alignleft\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/Ru\u0301nar_vefur.jpg\" alt=\"\" width=\"150\" height=\"202\" \/><\/a>N\u00e1mskei\u00f0 2<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\"><strong>Leikstj\u00f3rn \u2013 S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0, Master Class fyrir leikstj\u00f3ra<\/strong><br \/>\n<strong>Kennari R\u00fanar Gu\u00f0brandsson<\/strong><br \/>\n<strong>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 96.000<\/strong><br \/>\n<strong> T\u00edmi: 9. til 17. j\u00fan\u00ed 2018<\/strong><br \/>\n<strong> Sta\u00f0ur: Reykjask\u00f3li<\/strong><br \/>\n<strong> Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\"><strong>S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed leikstj\u00f3rn, \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem s\u00f3tt hafa Leikstj\u00f3rn I og II og s\u00e9rn\u00e1m- skei\u00f0 fyrir leikstj\u00f3ra e\u00f0a s\u00f3tt samb\u00e6rileg n\u00e1mskei\u00f0 e\u00f0a hafa umtalsver\u00f0a reynslu af leikstj\u00f3rn.<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\">N\u00e1mskei\u00f0 \u00feetta ver\u00f0ur j\u00f6fnum h\u00f6ndum fr\u00e6\u00f0ilegt og verklegt. \u00datgangspunkturinn er a\u00f0fer\u00f0 sem kennarinn hefur kynnt \u00e1 undangengnum leikstj\u00f3ran\u00e1mskei\u00f0um \u00ed B\u00cdL sk\u00f3lanum og s\u00e6kir fyrst og fremst innbl\u00e1stur \u00ed \u00e6vistarf Konstantins Stanislavskys, b\u00e6\u00f0i hina \u201evitsmunalegu greiningu\u201c sem Stanislavsky \u00fer\u00f3a\u00f0i framan af ferli s\u00ednum og \u201ea\u00f0fer\u00f0 l\u00edkamlegra gj\u00f6r\u00f0a\u201c sem hann vann a\u00f0 er hann f\u00e9ll fr\u00e1. Fleiri \u00e1hrifavaldar sv\u00edfa \u00fe\u00f3 yfir v\u00f6tnunum og ver\u00f0ur v\u00edsa\u00f0 til \u00f3l\u00edkra hugmynda um hlutverk leikstj\u00f3rans og ver\u00f0ur fjalla\u00f0 um \u00fdmsa strauma og stefnur \u00ed leikstj\u00f3rn s\u00ed\u00f0ustu aldar. \u00der\u00edeyki\u00f0 Stanislavsky, Brecht og Grotowski ver\u00f0a \u00fear \u00ed brennidepli og me\u00f0ul \u00feeirra sko\u00f0u\u00f0 \u00ed sambandi vi\u00f0 tilganginn. A\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i, hugmyndafr\u00e6\u00f0i og fagurfr\u00e6\u00f0i \u00f3l\u00edkra leikstj\u00f3ra ver\u00f0a vegnar og metnar og bornar saman vi\u00f0 \u201ea\u00f0fer\u00f0\u201c n\u00e1mskei\u00f0sins. Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 t\u00falkun og grunnhugmynd (Concept) \u00ed framsetningu efnis og huga\u00f0 a\u00f0 umgj\u00f6r\u00f0 og \u00e1hrifame\u00f0ulum; sj\u00f3nr\u00e6num og hlj\u00f3\u00f0- r\u00e6num \u00fe\u00e1ttum og endanlegu \u00fatliti leiks\u00fdninga.<\/p>\n<p class=\"p1\">\u00c1 undangengnum n\u00e1mskei\u00f0um hefur mikil \u00e1hersla veri\u00f0 l\u00f6g\u00f0 \u00e1 vinnu leikstj\u00f3rans me\u00f0 leikurum, en n\u00fa ver\u00f0ur a\u00f0 auki sko\u00f0a\u00f0 samstarf hans vi\u00f0 a\u00f0ra listr\u00e6na stj\u00f3rnendur.<\/p>\n<p class=\"p1\">Eftir a\u00f0 skr\u00e1ningu l\u00fdkur ver\u00f0a \u00f6llum \u00fe\u00e1tttakendum send verk til sko\u00f0unar og ver\u00f0a \u00feau l\u00f6g\u00f0 til grundvallar vinnunni. Kennari mun einnig senda \u00fe\u00e1tttakendum verkefni til a\u00f0 \u00edhuga og leysa \u00e1\u00f0ur en n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hefst, \u00feannig a\u00f0 \u00e1kve\u00f0ins undirb\u00fanings ver\u00f0ur krafist.<\/p>\n<p class=\"p1\">Kennsla fer fram me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti; fyrirlestrar, umr\u00e6\u00f0ur, verklegar \u00e6fingar, einstaklings verkefni, h\u00f3pverkefni, o.s.frv.<\/p>\n<p class=\"p1\">Bretti\u00f0 upp ermar og sp\u00fdti\u00f0 \u00ed l\u00f3fa.<\/p>\n<hr \/>\n<p class=\"p1\"><strong><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/Karl-Agust.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft wp-image-10231\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/Karl-Agust-240x300.jpg\" alt=\"\" width=\"240\" height=\"300\" \/><\/a>N\u00e1mskei\u00f0 3<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\"><strong>Leikritun I \u2013 Grunnn\u00e1mskei\u00f0<\/strong><br \/>\n<strong>Kennari Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson<\/strong><br \/>\n<strong>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 96.000<\/strong><br \/>\n<strong> T\u00edmi: 9. til 17. j\u00fan\u00ed 2018<\/strong><br \/>\n<strong> Sta\u00f0ur: Reykjask\u00f3li<\/strong><br \/>\n<strong> Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\"><strong>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er \u00e6tla\u00f0 \u00f6llum sem \u00e1huga hafa \u00e1 a\u00f0 spreyta sig vi\u00f0 leiktextasm\u00ed\u00f0, jafnt algerum byrjendum og \u00feeim sem einhverja reynslu hafa.<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\">Kynntir ver\u00f0a helstu \u00fe\u00e6ttir klass\u00edskrar leikbyggingar og d\u00e6mi sko\u00f0u\u00f0. Sk\u00f6punarferli\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed brennidepli og huga\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 hvetur sk\u00f6punina og hva\u00f0 letur hana.<\/p>\n<p class=\"p1\">\u00cd gegnum nokkrar \u00e6fngar sko\u00f0um vi\u00f0 grunneiningar leikritsins &#8211; upphaf, mi\u00f0ju og endi, kynnum okkur pers\u00f3nusk\u00f6pun, s\u00f6gu\u00fer\u00e1\u00f0 og samt\u00f6l.<\/p>\n<p class=\"p1\">Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 stutt verk, sem \u00fe\u00f3 uppfylla \u00f6ll skilyr\u00f0i leiks\u00f6gunnar, og stefnt er a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lokaverkefni hvers nemanda ver\u00f0i tilb\u00fai\u00f0 til me\u00f0h\u00f6ndlunar leikara og leikstj\u00f3ra.<\/p>\n<hr \/>\n<p class=\"p1\"><strong><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/eva.sv_.hv_.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-10232 alignleft\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2018\/03\/eva.sv_.hv_-200x300.jpg\" alt=\"\" width=\"200\" height=\"300\" \/><\/a>N\u00e1mskei\u00f0 4<\/strong><\/p>\n<p class=\"p1\"><strong>\u00c1 bak vi\u00f0 tj\u00f6ldin &#8211; H\u00f6nnun og a\u00f0fer\u00f0ir vi\u00f0 leikmynda- og b\u00faningager\u00f0<\/strong><br \/>\n<strong> Kennari Eva Bj\u00f6rg Har\u00f0ard\u00f3ttir<\/strong><br \/>\n<strong>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 100.000<\/strong><br \/>\n<strong> T\u00edmi: 9. til 17. j\u00fan\u00ed 2018<\/strong><br \/>\n<strong> Sta\u00f0ur: Reykjask\u00f3li<\/strong><br \/>\n<strong> Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/strong><\/p>\n<p class=\"p3\"><span class=\"s1\"><b>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er grunnn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed h\u00f6nnun leiks\u00fdninga og hentar \u00f6llum \u00feeim sem \u00e1huga hafa \u00e1 baksvi\u00f0svinnu \u00ed leikh\u00fasinu. <\/b><\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">Markmi\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0sins er a\u00f0 efla nemendur \u00ed a\u00f0 a\u00f0 vera skapandi og skipulag\u00f0ir. Kynnt ver\u00f0a verkf\u00e6ri og t\u00e6kni til a\u00f0 hugsa \u00fat fyrir rammann og koma hugmyndum s\u00ednum \u00ed verk. \u00cd lok n\u00e1mskei\u00f0s eiga nemendur a\u00f0 geta sett fram till\u00f6gu a\u00f0 heildar\u00fatliti leiks\u00fdningar til kynningar fyrir leikstj\u00f3ra. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">\u00c1 n\u00e1mskei\u00f0inu ver\u00f0ur fjalla\u00f0 um h\u00f6nnunarferli\u00f0 &#8211; fr\u00e1 fyrstu hugmynd a\u00f0 fullb\u00fainni s\u00fdningu. Kynntar ver\u00f0a a\u00f0fer\u00f0ir vi\u00f0 h\u00f6nnunarvinnu, gerva-, b\u00faninga-. leikmuna- og leikmyndager\u00f0. M.a. ver\u00f0ur fari\u00f0 yfir greiningu \u00e1 handriti, m\u00f3delger\u00f0, ger\u00f0 s\u00f6gubor\u00f0a (storyboard) og hugmyndabor\u00f0a (moodboard), b\u00faningateikningar, samskipti vi\u00f0 leikstj\u00f3ra og a\u00f0ra listr\u00e6na stj\u00f3rnendur, ger\u00f0 verk\u00e1\u00e6tlunar, fj\u00e1rhags\u00e1\u00e6tlunar o.fl. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 byggir \u00e1 mikilli virkni allra \u00fe\u00e1tttakenda en b\u00e6\u00f0i ver\u00f0ur unni\u00f0 \u00ed einstaklingsvinnu og h\u00f3pum. N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 skiptist \u00ed fyrirlestra, umr\u00e6\u00f0ur og verklegar \u00e6fngar. <\/span><\/p>\n<p class=\"p4\"><span class=\"s1\">N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hentar \u00f6llum sem \u00e1huga hafa \u00e1 baksvi\u00f0svinnu \u00ed leikh\u00fasi, hvort sem er vi\u00f0 svi\u00f0smynd e\u00f0a b\u00faninga og mega nemendur velja s\u00e9r verkleg verkefni \u00fat fr\u00e1 s\u00ednu \u00e1hugasvi\u00f0i. Eftir a\u00f0 skr\u00e1ningu l\u00fdkur ver\u00f0a \u00fe\u00e1tttakendum send leikverk til a\u00f0 velja \u00far og lesa \u00e1\u00f0ur en n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 hefst. Einnig listi yfir verkf\u00e6ri og efnivi\u00f0 sem gott er a\u00f0 hafa me\u00f0 s\u00e9r.<\/span><\/p>\n<hr \/>\n<p><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2017\/03\/Reykjaskoli.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-8849 aligncenter\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2017\/03\/Reykjaskoli-300x125.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"125\" \/><\/a><\/p>\n<p class=\"p5\"><span class=\"s1\">Reykjask\u00f3li er vi\u00f0 Hr\u00fatafj\u00f6r\u00f0 \u00ed H\u00fana\u00feingi vestra. Hann er \u00ed 15 km fjarl\u00e6g\u00f0 fr\u00e1 Sta\u00f0arsk\u00e1la, 17 km fr\u00e1 Hvammstanga, 178 km fr\u00e1 Reykjav\u00edk, 210 km fr\u00e1 Akureyri, 620 km fr\u00e1 H\u00f6fn, 348 km fr\u00e1 \u00cdsafr\u00f0i og 504 km fr\u00e1 Egilsst\u00f6\u00f0um. \u00c1 vetrum eru \u00fear reknar sk\u00f3lab\u00fa\u00f0ir fyrir grunnsk\u00f3lab\u00f6rn. Miki\u00f0 er af skemmtilegum myndum og \u00f6\u00f0rum uppl\u00fdsingum \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u sk\u00f3lans www.skolabudir.is.<\/span><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2017\/03\/hrutafjardarleid.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-8845 aligncenter\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2017\/03\/hrutafjardarleid-284x300.jpg\" alt=\"\" width=\"284\" height=\"300\" \/><\/a><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Starfst\u00edmi sk\u00f3lans \u00e1 \u00feessu \u00e1ri er fr\u00e1 9. til 17. j\u00fan\u00ed a\u00f0 Reykjask\u00f3la \u00ed Hr\u00fatafir\u00f0i A\u00f0 \u00feessu sinni ver\u00f0a fj\u00f6gur fj\u00f6lbreytt n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed bo\u00f0i, sum fyrir byrjendur en \u00f6nnur sem gera r\u00e1\u00f0 fyrir \u00feekkingu og reynslu nemenda. Karl \u00c1g\u00fast \u00dalfsson mun lei\u00f0a \u00e1hugasama inn \u00ed t\u00f6frandi heim leikritunar og er n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u00e6tla\u00f0 jafnt byrjendum sem [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[190],"tags":[],"class_list":["post-10224","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-skn","et-doesnt-have-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/10224","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=10224"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/10224\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=10224"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=10224"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/leiklist.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=10224"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}