Wide Slumber er nýtt tónleikhúsverk úr smiðju VaVaVoom og Bedroom Community sem fléttar saman lifandi tónlist eftir Valgeir Sigurðsson við leikhúsgaldur VaVaVoom (S. Sunna Reynisdóttir og Sara Martí).

Verkið er innblásið af ljóðabókinni Wide Slumber For Lepidopterists eftir a. rawlings, þar sem mismunandi stigum svefns er líkt saman við lífshring fiðrilda og prósi hins vakandi manns umbreytist í ljóð þess sem sefur.

Frumflutt á Listahátíð í Tjarnarbíói | 24. – 26. maí

Dragðu andann í takt við vængjaslátt mölflugu sem berst fyrir lífinu við logann frá ljósaperunni, á meðan þú glímir við flækta sængina í óravíðum andvökudraumi.

Furðuheimur sífelldra hamskipta er skapaður á sviðinu með aðferðum myndræns leikhúss og brúðuleikhúss. Tónlist og söngur leiða áhorfandann um sögusvið þar sem mörk draums og veruleika eru óljós.

Söngvararnir þrír holdgera sögusvið og persónur innan Wide Slumber og birtast okkur sem svefnvísindamaður, fiðrildafræðingur og svefngengill.

Með þeim á sviðinu er hljómsveit og vefarinn sem spinnur þráðinn.

WIDE SLUMBER for LEPIDOPTERISTS

Music:
VALGEIR SIGURÐSSON

Text:
A. RAWLINGS

Performers:
ALEXI MURDOCH
SASHA SIEM
ÁSGERÐUR JÚNÍUSDÓTTIR
S. SUNNA REYNISDÓTTIR

Musicians:
JAMES MCVINNIE
LIAM BYRNE
ÓLAFUR BJÖRN ÓLAFSSON

Adaptation for stage:
S. SUNNA REYNISDÓTTIR & SARA MARTÍ
(VaVaVoom Theatre)

Director: SARA MARTÍ

Set design:
EVA SIGNÝ BERGER

Costume design:
HARPA EINARSDÓTTIR

Props and puppetry design:
SIGRIÐUR SUNNA REYNISDÓTTIR og MARIE KELLER

Light and video design:
INGI BEKK

Animation and video art:
PIERRE-ALAIN GIRAU

wideslumber.com | vavavoomtheatre.com | bedroomcommunity.net I listahatid.is/vidburdir/wide-slumber