Verkið er byggt á þýsku samnefndu leikriti eftir Frank Wedekind frá árinu 1891 með tónlist eftir Duncan Sheik. Söngleikurinn var frumsýndur árið 2006 á Broadway og hlaut 8 Tony verðlaun, meðal annars verðlaun fyrir besta söngleik ársins.
Söngleikurinn fjallar um ungt fólk í uppreisn gegn íhaldssömu samfélagi í uppgötvun sinni á nýjum heimi tilfinninga og frelsis utan skólastofnunnar, með fögrum og hrikalegum afleiðingum. Þessi hópur ungs fólks, sem hefur aðeins hvert annað til leiðsagnar, fetar þann snúna og grýtta veg sem fylgir unglingsárunum og uppgötvar í leiðinni eigin líkama, huga og sjálfsmynd. Vorið vaknar er kraftmikil og lífleg hylling æskunnar og uppreisnar; verkið fléttar saman siðferði, kynlíf og rokk í sögu sem snertir hjartarætur.
Að sýningunni kemur glæsilegur hópur fólks bæði á sviðinu og baksviðs sem hefur unnið hörðum höndum síðastliðnar vikur: þrettán leikarar, sjö manna hljómsveit og um 20 manna baksviðsteymi sem sinnir ýmsum störfum leikhússins.
Hægt er að nálgast miða á sýninguna á tix.is.


