Alþjóða leiklistarstofnunin, ITI, sæmdi Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta Íslands og leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur titlinum Senndiherra leiklistarinnar í heiminum (World Theatre Ambassador) við hátíðlega athöfn í laugardag 27. September sl. í Madrid á Spáni.

Alþjóða leiklistarstofnunin, sem stofnuð var í Prag 1948, heldur nú 32. alheimsþing sitt í höfuðborg Spánar, Madrid. Hátíð var haldin við þinglok í gærkvöldi í tilefni 60 ára afmælis stofnunarinnar á þessu ári. Við þau hátíðarhöld var Vigdís sæmd titlinum, fyrst allra.

Við sama tækifæri voru einnig, í kjölfar Vigdísar, sex aðrir heimsþekktir forkólfar leiklistar víðs vegar að úr veröldinni sæmdir sama titli, en þau eru:
Ellen Stewart leikhúsfrömuður í Bandaríkjunum og stofnandi La Mama leikhússins í New York, Vaclav Havel leikskáld og fyrrum forseti Tékklands, rússneski leikstjórinn Anatoli Vassiliev, leikskáldið og nóbelsverðlaunahafinn Wole Soyinka frá Nígeríu, breska leikskáldið Arnold Wesker og indverska leikskáldið Girish Karnad.

Leiklistarsamband Íslands (LSÍ) er Íslandsdeild Alþjóða leiklistarsofnunarinnar og hefur tekið virkan þátt frá því snemma á sjöunda áratugnum.

Alþjóða leiklistarstofnunin starfar í skjóli Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og hefur skrifstofu í UNESCO-byggingunni í París.
Viðar Eggertsson leikstjóri, formaður LSÍ, hefur undanfarin sex ár setið í stjórn Alþjóða leiklistarstofnunarinnar og lét nú af störfum þar á yfirstandandi þingi. Hann var viðstaddur athöfnina þegar Vigdísi var veittur þessi mikli heiður leiklistarfólks í heiminum, ásamt Steinunni Knútsdóttur  leikstjóra, ritara LSÍ og Irmu Gunnarsdóttur danshöfundi, gjaldkera LSÍ, en þau voru fulltrúar Íslands á þinginu ásamt Hrafnhildi Hagalín leikskáldi.

{mos_fb_discuss:3}