Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir glænýtt leikverk er nefnist Vertu úti sunnudaginn 20. nóvember kl. 20.00. Verkið er byggt á þekktum þjóðsögum og þjóðsagnaminnum. Hér segir frá systkinum sem leggja á Heiðina þegar allra veðra er von, fleiri reynast vera á sveimi á sama tíma. Fólk hittist eða fer á mis og allra bíða margvísleg örlög. Níu leikarar taka þátt í sýningunni sem er í leikstjórn Grímu Kristjánsdóttur.

Sýningar eru í Leikhúsinu, Funalind 2, og hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir eru í midasala@kopleik.is eða í síma 554-1985.Nánari upplýsingar á www.kopleik.is.

{mos_fb_discuss:2}