Latex skallahettur eru vel teygjanlegar og nokkuð eðlilegar ef þær eru vel settar á. Sníða þarf hettuna til og líma niður allan hringinn. Notið skegglím, ekki vatnsuppleysanlegt. Þegar hettan er komin á er hún förðuð og púðruð og að endingu förðuð aftur með sama lit og notaður er á andlitið. Hægt er að nota hettuna aftur og aftur ef hún er tekin varlega af og geymd á gler- eða plasthaus á milli. Skallinn kostar 5.533.-

Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is

Nánari upplýsingar um ásetningu og förðun:

https://www.grimas.nl/website/web2/index.php?onderwerp=000393aa

 

 

skalli2skalli3