Nú er sá tími ársins þegar leikfélögin fara að ganga frá umsóknum ýmisskonar vegna leiksýninga og þá er oftar en ekki verið að vandræðast með upptökur af sýningum. Það verður æ algengara að upptökur séu settar á vefinn í stað þess að brenna á DVD. Hinsvegar vefst fyrir mörgum hvernig best er að gera það. Við höfum útbúið síðu með góðum ráðum í þessu sambandi.