Sýningunni er fyrst og fremst ætlað að höfða til unglinga. Um er að ræða farandsýningu en efnt er til sérstakrar hátíðarsýningar í Gerðubergi miðvikudaginn 12. nóvember n.k. kl. 17.30. Sýningin tekur 50 mínútur í flutningi og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Handritshöfundur og leikstjóri er Valgeir Skagfjörð. Leikarar eru Eggert A.Kaaber, Katrín Þorkelsdóttir og Valgeir Skagfjörð.