HallgrPeturssonStoppleikhópurinn sýnir leikritið „Upp, upp“ Æskusögu Hallgríms Péturssonar eftir Valgeir Skagfjörð í Gerðubergi miðvikudaginn 6. maí kl. 19.00. Aðeins þessi eina sýning og ókeypis inn!

Leikritið segir frá uppvaxtarsögu Sr. Hallgríms Péturssonar og var skrifað í tilefni af 400 ára afmæli skáldsins.  Verkið byggir að stærstum hluta  á bókinni Heimanfylgju eftir Steinunni Jóhannesdóttur sem öðrum fremur hefur gert Hallgrími Péturssyni og konu hans Guðríði Símonardóttur skil í verkum sínum.

Verkið er sniðið að ungum áhorfendum og miðar að því að gefa grunnskólabörnum/unglingum  innsýn í lífsbaráttu Íslendinga á 17. öld og hvaða merkingu það hafði fyrir ungan dreng eins og Hallgrím Pétursson að alast upp í Skagafirði á þeim tíma. Hvaða áhrif hafði það á hann að dvelja á biskupssetrinu að Hólum í Hjaltadal og ganga í skóla á æðsta menntasetri landsins og kynnast því merka fólki sem þar bjó.

Stórviðburðir sögunnar á borð við Kötlugos, farsóttir, hamfaraveður, galdrabrennur og Tyrkjaránið settu svip sinn á uppvöxt þessa mesta stórskálds þjóðarinnar.

Leiksýningin hefur verið á faraldsfæti í vetur víða um landið og eru sýningar nú orðnar um 30 talsins.

Sýningin er ætluð áhorfendum frá 12 ára aldri og uppúr.

Handritshöfundur og leikstjóri er Valgeir Skagfjörð.

Leikarar eru Eggert A.Kaaber, Katrín Þorkelsdóttir og Valgeir Skagfjörð.

Leiktjöld: Sigurbjörg A. Eiðsdóttir.

Aðstoð við búninga: Haraldur Hrafnsson og Jónína Margrét Sævarsdóttir.

Frumsýnt var 10. október 2014.

Miðapantanir eru í síma: 898-7205

www.stoppleikhopurinn.com