Bernd Ogrodnik brúðulistamaður hefur farið víða um heim með sýningu sína Umbreytingu eftir að hún var sýnd hér á landi við frábærar viðtökur á Listahátíð árið 2006.

Nú er tækifæri til að sjá sýninguna áður en hún heldur í heimsreisu!! Bernd hefur farið víða um heim með sýninguna frá 2006. Mikið hefur verið spurt eftir sýningunni og fólki hefur verið tíðrætt um þessa einstöku, töfrandi og skemmtilegu sýningu. Nú gefst einstakt tækifæri á að bera þessa sýningu augum en hún verður sýnd næstu tvær helgar í Þjóðleikhúsinu.

 

Eingöngu verður um þessa tvo sýningardaga að ræða og því um að gera að bregðast hratt við og tryggja sér miða. Sýningin sem Bernd býður upp á að þessu sinni er stytt, fjölskylduvæn útgáfa sem er ferðaútgáfa sýningarinnar. Eins og fyrr segir hefur sýningin ferðast víða um lönd og má meðal annars nefna Rússland, Hawaii, Ísrael, Þýskaland, Danmörku, Aruba, Kanada og Kóreu. Nú leggur Bernd enn eina ferðina upp í heimsreisu með sýninguna og meðal þeirra landa sem munu njóta að þessu sinni eru Tailand, Indónesía, Egyptaland og Íran. Bernd mun halda af landi brott í lok október og fyrstu sýningar verða í Þjóðleikhúsi Tailands í Bangkok í byrjun nóvember.