Þann 1. september sl. rann út frestur til að sækja um að fara með íslenska leiksýningu á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco sem haldin verður í ágúst 2017. Tvær umsóknir bárust og skipaði stjórn Bandalagsins því þriggja manna valnefnd sem skilaði af sér þann 10.  september.
Niðurstaða nefndarinnar er eftirfarandi:

Valnefnd vegna alþjóðlegrar leiklistarhátíðar í Mónakó árið 2017 hefur komið saman og komist að sameiginlegri niðurstöðu. 

Tvö leikfélög sóttu um með leiksýningu á hátíðina:

Leikfélag Hafnarfjarðar með Ubba kóng.
Höfundur: Alfred Jarry
Þýðing: Steingrímur Gauti Kristinsson
Tónlist og söngtextar: Eyvindur Karlsson, Þórarinn Eldjárn og Karl Ágúst Úlfsson
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.

Leikfélag Mosfellsbæjar með Mæður Íslands
Höfundar: Leikhópur, leikfélagar og leikstjóri
Leikstjóri: Agnes Wild
Tónlist: Sigrún Harðardóttir
Leikmynd og búningar: Eva Björg Harðardóttir

 Valnefnd gaf sér eftirfarandi forsendur:
1. Sýningin er innan tímamarka.
2. Sýningin hentar erlendum áhorfendum. Með því er átt við að hún sé skiljanleg fólki sem ekki skilur málið, sjónræn og byggir ekki á textaskilningi að mestu leyti. 
3. Sýningin er almennt séð góður fulltrúi íslenskrar áhugaleiklistar. 

Kemst nefndin að þeirri  niðurstöðu að mæla með Ubba kóng sem framlagi Íslands á hátíðina.  

Rök valnefndar eru þessi:
Báðar sýningar eru innan tímamarka og báðar mjög frambærilegar.

Við teljum að Mæður Íslands byggir meira á textaskilningi en Ubbi kóngur og að sýningin sé minna sjónræn. Þar hefur Ubbi kóngur vinninginn með sjónarmun. Fyrir utan að vera sjónrænni er verkið sem slíkt þekkt á alþjóðavísu.

Báðar sýningar eru mjög vel unnar og góð dæmi um metnað í  íslensku áhugaleikhúsi. 

Það að Ubbi kóngur er sjónrænni sýning með vísun í afar þekkt verk sem gefur möguleika á skilningi í alþjóðlegu samhengi. Sýningin er stór, kraftmikil og umfangsmikil þar sem sterkt verk, leikhópur, lýsing og tónlist búa til sterkar myndir til frásagnar. Þetta vegur afar þungt í niðurstöðu valnefndar.

Í valnefnd sátu: 
Guðfinna Gunnarsdóttir
Salbjörg Engilbertsdóttir
Þráinn Sigvaldason

Í framhaldinu sendir Bandalag íslenskra umsókn Leikfélag Hafnarfjarðar til Monaco, en sýningin þarf að fara í gegnum annað valferli áður en endanleg niðurstaða fæst og keppir þar við sýningar NEATA landanna sem eiga ákveðinn kvóta sýninga á hátíðinni.

Endanleg úrslit í þessu seinna vali verða kunngjörð í nóvember nk.