Companía Patricia Pardo heimsækir Tjarnarbíó í annað sinn, nú með einlægu trúða-, sirkús- og leiksýninguna Kýrin sem hlær. Verkið fjallar um getu mannsins til að pynta og græða sár og teflir fram andstæðum heimum um misnotkun, dauða, breyskleika mannsins og sköpunargáfu.

Sameinuðu þjóðirnar skilgreina pyntingar sem sérhvern verknað þar sem fólk er gagngert beitt sársaukafullu andlegu eða líkamlegu ofbeldi í þeim tilgangi að fá frá viðkomandi eða þriðja aðila upplýsingar eða játningu til að refsa, hræða eða þvinga. Opinber embættismaður eða annar opinber aðili veldur eða veitir samþykki sitt fyrir því að sársaukanum eða þjáningunni sé valdið.

Leikhópurinn Compania Patricia Pardo var stofnaður af sviðslistamanninum og leikstjóranum Patricia Pardo. Hópurinn beitir fjölbreyttum aðferðum en vinnur aðallega með trúðaleikhús, lifandi tónlistarflutninga, einleiksformið og loftfimleika. Sviðsverk þeirra fjalla yfirleitt um breyskleika mannsins og mótsagnir. Hópurinn hefur sýnt víða, bæði í Ameríku og Evrópu. Árið 2016 kom hópurinn til Íslands og sýndi sirkús- og leiksýninguna Bardagarassar í Tjarnarbíói við góðar undirtektir.

Nánar á Tjarnarbio.is.