Leikfélag Kópavogs sýnir leikdagskrána Trú, von og trúðleik, fimmtudaginn 8. jan. kl. 20.00 í Leikhúsinu Funalind 2. Á dagskránni eru 6 leikþættir af ýmsum toga; Leikboðinn eftir Örn Alexandersson, Bæn eftir Fernando Arrabal, Man það ekki alveg… eftir Nick Zagone, Charlie eftir Fjölni Gíslason og Jón Gunnar Garðarsson, Áttu íbúfen, ég er með svo mikla trúðverki eftir Fjölni Gíslason og Á stofunni eftir Bjarna Guðmarsson. 

Miðapantanir eru í midasala@kopleik.is. Miðaverð er 1.000 kr. Sjá nánar á www.kopleik.is.