Freyvangsleikhúsið setur á svið gamanleikinn Tom, Dick og Harry eftir Ray Cooney og son hans Michael Cooney, í þýðingu Harðar Sigurðarsonar.
Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Frumsýnt verður 20.febrúar og sýnt verður um helgar fram í apríl.
Leikverkið segir frá hjónunum Tom og Lindu en þau eiga von á konu frá ættleiðingar skrifstofunni. Bræður Toms þeir Dick og Harry eru ekki alveg skörpustu hnífarnir í skúffunni og eru þeir með allskonar ráðabrugg og hugmyndir til þess að einfalda lífið, bæði fyrir sjálfa sig sem og fyrir Tom og Lindu. Inn í þetta fléttast svo ýmsar persónur sem flækja málin. Því má segja að það fari kannski ekki allt sem skyldi og flækjast málin fyrir Lindu og þá kannski ekki síst fyrir Tom.
Miðasala er á Tix.is og í síma 857-5598.