Dagleiðin langa er magnþrungið listaverk, fallegt í hrikaleik sínum, nærgöngult og grimmt. Hér er sálrænum afleiðingum kúgunar og neyslu lýst á einstaklega áhrifamikinn hátt. Leikritið gerist á miklum átakadegi í lífi Tyrone-fjölskyldunnar, hjóna og tveggja uppkominna sona þeirra. Fjölskyldan er þrúguð af ægivaldi fjölskylduföðurins, og áfengissýki og lyfjaneysla varpa dimmum skuggum á öll samskipti. Fjórar skemmdar manneskjur sem standa máttvana gagnvart erfiðum aðstæðum kunna engin ráð betri en að ásaka hver aðra og brjóta hver aðra niður á milli þess sem þær tjá ást sína og umhyggju.
Nóbelsverðlaunahafinn Eugene O’Neill (1888-1953) er gjarnan kallaður faðir bandarískrar nútímaleikritunar og meistaraverk hans Dagleiðin langa (Long Day’s Journey into Night) hafði mikil áhrif á dramatíska leikritun á seinni hluta tuttugustu aldarinnar. O’Neill skrifaði verkið, sem er að sumu leyti sjálfsævisögulegt, á árunum 1939–41 en það var ekki frumflutt fyrr en árið 1956, nokkru eftir dauða hans, og hlaut það Pulitzer verðlaunin ári síðar.
{mos_fb_discuss:2}