Tjarnarbíó opnar aftur í ágúst eftir breytingar á sal og búnaði.

Fyrsta sýning haustsins kemur frá Spáni, en það er leikhópurinn Patricia Pardo sem sýnir sirkusverkið Comissura.

Verkið er sýnt 6. og 7. ágúst kl. 20:00. Miðasala er hafin, en miðinn kostar 2500 kr.

Sirkusverkið Comissura inniheldur nærbuxnalausan loftfimleikamann í rólu, ótrúan slagverksleikara, konu þakta 20 lítrum af vaxi og ríkulegan fátækling.

Comissura er sirkusverk sem samanstendur af 7 trúðaatriðum. Það fjallar um kröfurnar sem fólk gerir til eigin líkama, um hversu óhæf við erum til að þekkja muninn á þörf og óseðjanleika, um morð og móðureðli (eða hvernig neysluþjóðfélagið lætur okkur éta upp börnin okkar), um hraðann og hvernig við töðum fyrir eigin skriðþunga, um fegurðina í ástarsorg (mikla fegurð í ástarsorg), um svartsýni sem notuð er til að hafa áhrif á áhorfendur, um afbrýðisemi og ruglinginn milli svika og rétt fólks til einkalífs.

Comissura tengir okkur við melankólíuna sem felst í að átta okkur á að við lifum í gleði, og skringilegheitin sem felast í tilveru okkar, þversögnum og blendnum tilfinningum.

Hlekkur á frekari upplýsingar, miðasölu og myndbrot úr verkinu: http://tjarnarbio.is/?id=1002