Síðustu vikur hefur Leikflokkur Húnaþings vestra verið að æfa leikritið Þytur í laufi – ævintýri við árbakkann.  Leikstjóri er Greta Clough og er þetta fjórða barnaleikritið sem hún leikstýrir fyrir leikflokkinn en hún hefur komið að um 20 barnaleikritum í heild.  Leikgerðin er byggð á hinni heimsþekktu sögu Kenneth Grahame en handritið var þýtt af Ingunni Snædal.
Hinn vitri og sérvitri Greifingi, vatnselskandi Rotti og hinn feimni og innhverfi Moldi þurfa að hafa sig alla við að halda í bremsuna á kærulausa og auðuga Todda þegar hans nýjasta æði heltekur hann og veldur miklum usla í sveitinni kringum ánna. Þetta er fyndið, ljúft og skemmtilegt leikrit fyrir alla fjölskylduna. Með heillandi og duttlungafullri frásögn sinni fangar „The Wind in the Willows“ kjarna ensku sveitarinnar og leggur áherslu á mikilvægi vináttu, tryggðar og mjög fallegrar tengingar við náttúruna og gleði sveitalífsins. Frábært leikrit fyrir alla fjölskylduna og ein sú huggulegasta samverustund í aðdraganda jólahátíðarinnar.

Sýnt verður í Félagsheimilinu á Hvammstanga dagana 14., 15., 16. og 17. desember 2023. Sýningartímar verða sem hér segir: 14., 15. og 16. desember kl. 19:30 17. desember kl. 14:00 Miðasala á adgangsmidi.is.