Þú kemst þinn veg eftir Finnboga Þorkel Jónsson verður sýnt í Tjarnarbíói 15. október. Höfundur verksins og sjálfur Garðar Sölvi, sá sem verkið byggir á, spjalla við áhorfendur eftir sýningu.
Garðar hefur glímt við geðklofa frá unga aldri. Hann lifir í dag eftir umbunarkerfi sem hann þróaði sjálfur til að takast á við geðklofann og lífið. Í dag vegnar Garðari vel og hann flytur fyrirlestra í skólum og stofnunum um umbunarkerfið og líf sitt með geðklofa. Finnbogi Þorkell Jónsson, höfundur og leikari verksins, hefur unnið að verkinu síðast liðin tvö ár en verkið er byggt á viðtölum hans við Garðar.
Þú kemst þinn veg veitir einstaka innsýn í lífsbaráttu manns með geðsjúkdóm. Batann og bakslögin, líf á ofsahraða og líf einn dag í einu. Verkið er mannlegt, beinskeytt, heiðarlegt og fyndið.
Verkið var sýnt í Norræna húsinu fyrr á þessu ári, en verður nú sýnt í leikhúsi í fyrsta sinn.
„Gert á afar sannfærandi og fyndinn hátt.“ – Silja Aðalsteinsdóttir, TMM
Sýningartímar
Fimmtudagur 15. október, kl. 20:30
Miðvikudagur 21. október, kl. 20:30
Sunnudagur 25. október, kl. 20:30
Aðstandendur
Höfundur og leikari: Finnbogi Þorkell Jónsson
Leikstjóri og dramatúrg: Árni Kristjánsson
Tónlist: Svavar Knútur
Grafísk hönnun: Benjamín Mark Stacey
Ljósmyndir: Flores Axel Böðvarsson
Tæknimaður: Stefán Ingvar Vigfússon
Framleiðandi: Jenný Lára Arnórsdóttir