Leikhópurinn Edda Productions frumsýnir nýtt leikverk um einn ástsælasta rithöfund þjóðarinnar, Þórberg Þórðarson í Tjarnarbíó 23. febrúar nk. Leikgerðin er unnin af hópnum upp úr viðtalsbókinni, Í kompaníi við allífið og Bréf til Sólu ásamt fleiri bókum. Skyggnst er inn í líf, leyndarmál og skáldskap Þórbergs. Við kynnumst ritlist snillingsins, hugarflugi skáldsins, dulspeki draumhugans og hlátri humoristans og ferðumst með honum í gegnum tíma og rúm og fræðumst um tilveruna og allífið.
Leikstjóri: Edda Björg Eyjólfsdóttir.
Með hlutverk fara þau; Birna Rún Eiríksdóttir, Friðrik Friðriksson, María Heba Þorkelsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson.
Tónlist og hljóðmynd: Stefán Már Magnússon.
Leikmyndahönnun: Stígur Steinþórsson.
Búningahönnun: María Th. Ólafsdóttir.
Ljósahönnun: Kjartan Darri Kristjánsson.
Ljósmyndir: Egill Gunnlaugsson
Hópurinn naut aðstoðar og visku rithöfundarins Péturs Gunnarssonar við mótun leikgerðar.