Fræðsludeild Þjóðleikhússins mun standa fyrir tækninámskeiðum dagana 21. og 22. febrúar þar sem farið verður yfir helstu atriði er varða ljósa- og hljóðtækni. Námskeiðíð er ætlað ljósa- og hljóðmönnum áhugaleikhúsa, félagsmiðstöðva, framhaldsskóla og þeirra sem vinna með ljós og hljóð á öðrum vettvangi.
Þátttakendur þurfa að hafa náð 17 ára aldri og hafa eitthvað fengist við ljósa- og hljóðvinnu áður.  Námskeiðið verður kennt í Þjóðleikhúsinu og leiðbeinendur er tæknimenn Þjóðleikhússins.
Námskeiðin sem standa dagana 21. og 22. febrúar. fara fram sem hér segir:
Laugardagur 21. febrúar – Ljós – 09:30 – 12:30 og 13:30-15:00
Sunnudagur 22. febrúar – Hljóð – 09:30 – 12:30 og 13:30 -15:00

Nánari upplýsingar og skráning er á vef Þjóðleikhússins.