Sýningin hlaut tilnefningu til Grímunnar sl. ár og var boðið að sýna á sænsku barnaleikhúshátíðinni BIBU í Lundi vorið 2010, þar sem hún fékk frábærar viðtökur.
Og Sindri syndir aftur til útlanda í vor þar sem sýningin hefur verið valin á dagskrá heimsþings og alþjóðlegrar sviðslistahátíðar fyrir börn og unglinga sem haldinn verður í Kaupmannahöfn og Malmö í maí n.k Á þinginu verður fjallað um reynslu barna og unglinga og þá ímynd sem menning hefur í þeirra huga, nýja strauma, gæði og fjölbreytni í sviðslistum og hvernig alþjóðleg samvinna getur miðlað reynslu og hvatt til nýsköpunar. Í tengslum við heimsþingið verður haldin leiklistarhátíð með leiksýningum frá fjölmörgum löndum. Þessi hátíð verður ein sú stærsta og mikilvægasta barna og unglingaleikhúshátíð sem haldin hefur verið.
Og nú hefur Sindra silfurfiski verið boðið á barnaleikhúshátíð í Moskvu næsta haust.
Höfundur Sindra silfurfisks er Áslaug Jónsdóttir en leikstjóri Þórhallur Sigurðsson.
Leikari sýningarinnar er Vigdís Hrefna Pálsdóttir, en 3 brúðustjórnendur stjórna sjávardýrunum og 12 leikarar ljá þeim raddir sínar.
{mos_fb_discuss:2}