Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Lýðveldisleikhúsið hefur að nýju sýningar á hinni svívirðilegu skemmtun og svörtu kómedíu Síðasti dagur Sveins skotta. Tvær sýningar verða í Edinborgarhúsinu, sú fyrri föstudaginn 21. janúar og einnig daginn eftir, báðar sýningarnar hefjast kl. 20. Á sunnudag 23. janúar verður leikurinn sýndur í Félagsheimilinu á Þingeyri kl. 20. Ekki er honum þar með lokið því næst skottast hann til höfuðborgarinnar. Sýnt verður í hinu nýuppgerða leikhúsi við tjörnina, Tjarnarbíói. Aðeins verða tvær sýningar þar, sú fyrri fimmtudaginn 27. janúar og hin föstudaginn 28. janúar. Hefjast sýningarnar kl. 20. Miðasala á þær sýningar er einnig hafin á www.midi.is

Síðasti dagur Sveins skotta var frumsýndur á síðasta leikári við svívirðilega góðar viðtökur. Síðasti dagur Sveins skotta er ljóðleikur eða söngdans þar sem jafngild eru leiklist, tónlist og dans. Svört kómedía sem gerist á 17. öld og fjallar um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði þegar faðir hans Axlar-Björn var tekinn af lífi fyrir morðverk sín.

Helstu höfundar og flytjendur verksins eru: Benóný Ægisson höfundur handrits og tónlistar, Elfar Logi Hannesson leikari, Halldóra Malín Pétursdóttir leik- og söngkona, Henna Riikka Nurmi höfundur sviðshreyfinga, leikari og dansari, Steingrímur Guðmundsson höfundur tónlistar og hljóðfæraleikari og Ársæll Níelsson leikari. Þorsteinn J. Tómasson hannar lýsingu, hljóðmaður er Guðmundur Hjaltason og Marsibil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og búninga. Uppsetning verksins er styrkt af Menningarráði Vestfjarða og fyrirtækjum á Ísafirði sem eru vinveitt listum og menningu.

Miðasala á allar sýningarnar hófst á þriðjudag í nýjum miðasölusíma Kómedíuleikhússins 450 5565. Miðaverð á Síðasta dag Sveins skotta er aðeins 2.500.- kr.

{mos_fb_discuss:2}