Leikfélagið Borg frumsýnir gamanleikinn Svefnlausi brúðguminn í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi í kvöld föstudaginn 17. febrúar kl 20:00. Leikritið er eftir þá Arnold og Back í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikstjóri er Magnús J. Magnússon.

Leik­rit­ið fjallar um Emil Borgfjörð, vel stæðan heildsala, sem rekur fóðurfyrirtæki. Hann lendir í vand­ræðum með nýja tengda­syni sem eru að koma inn í fjöl­skylduna.

Frumsýning föstudag 17.2. kl. 20.00
2. sýning sunnudag 19.2. kl. 16.00
3. sýning fimmtudag 23.2. kl. 20.00
4. sýning föstudag 24.2. kl. 20.00
5. sýning sunnudag 26.2. kl. 16.00