Svartlyng, sótsvartur gamanleikur eftir Guðmund Brynjólfsson í uppsetningu leikhópsins Gral, verður frumsýndur í Tjarnarbíói föstudaginn 21. september kl. 20.00.
Í Lagadeild Háskóla Íslands er þrískipting valdins útskýrð með þessum hætti: „Svartlyng-ættin á dómstólana, Svartlyng-ættin á stjórnarráðið og Svartlyng-ættin á löggjafarþingið.“ Hinu er sleppt, að Flokkurinn mannar öll embætti í nafni Svartlyngs-ættarinnar enda á hún Flokkinn.
Þegar dregur til tíðinda í stjórnarráðinu og ríkisstjórn Svartlynga riðar til falls ákveður hæstvirtur ráðherra Hermann Svartlyng að ráða til sín gluggaþvottamann til að sýna að það er jú allt uppi á borðum og allt gjörsamlega gegnsætt í ráðuneytinu sem hann stýrir.
En það er ekki nóg – til að tryggja að spillingin nái ekki að brjótast upp á yfirborðið verða hausar og hendur að fjúka – því Svartlyng-ættin passar upp á sitt … en ekki sína.
Svartlyng er glænýr sprenghlægilegur og blóðugur íslenskur farsi.
Svartlyng er fimmta verk GRAL en leikhópurinn hefur áður sett upp 21 manns saknað, grímuverðlaunaverkið Með horn á höfði, Endalok alheimsins og Eiðurinn og eitthvað eftir Guðberg Bergsson.
Leikarar: Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Benedikt Karl Gröndal, Þór Tulinius, Emilía Bergsdóttir og Valgerður Rúnarsdóttir.
Höfundur: Guðmundur Brynjólfsson
Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson
Leikmynda- og búningahönnun: Eva Vala Guðjónsdóttir
Ljósahönnun: Magnús Arnar Sigurðsson
Sviðshreyfingar: Valgerður Rúnarsdóttir
Framkvæmdastjórn: Sólveig Guðmundsóttir
Kynningarmál: Alexía Björg Jóhannesdóttir
Sviðstjórn: Hafliði Emil Barðason
Leikritið Svartlyng er sett upp með styrk frá Menntamálaráðuneytinu og Listamannalaunum