Þriðjudaginn 8. maí og miðvikudaginn 9. maí kl. 20.00 sýnir Stoppleikhópurinn aukasýningar á leikritinu Hústakan eftir Hrund Ólafsdóttur. Bakgrunnur verksins er búsáhaldabyltingin 2008-2009. Leikstjórn og aðlögun fyrir leiksvið er í höndum Valgeirs Skagfjörð sem jafnframt semur tónlistina. Sýnt er í Leikhúsinu við Funalind 2 í Kópavogi og eru þetta síðustu sýningarnar á Hústökunni í leikhúsinu en ætlunin er að ferðast svo með sýninguna um landið.
Í verkinu segir frá ungum manni sem fellur fyrir stúlku sem brennur af hugsjónum um betri heim. Hann fer að mæta á mótmælafundi og starfa með aðgerðarsinnum, en þegar hópurinn sest að í auðu húsi leiða atvik til þess að lögreglumaður slasast alvarlega og liggur í dái á sjúkrahúsi. Á meðan á lögreglurannsókn fer fram og unga fólkið er handtekið vegna gruns um að eiga þar hlut að máli lýsir ungi maðurinn aðdraganda þess að lögreglumaðurinn slasast. Í kjölfarið vakna upp vangaveltur um hvernig maður mótar sér skoðanir í lífinu á mönnum og málefnum.
Leikarar eru Eggert Kaaber, Ingi Hrafn Hilmarson, Katrín Þorkelsdóttir og Ólöf Jara Skagfjörð.
Sýningin tekur um 50 mínútur í flutningi.
Miðaverð 1500 kr. Miðapantanir í síma 898-7205 eða eggert@centrum.is.
{mos_fb_discuss:2}