Leikfélag Seyðisfjarðar frumsýndi fimmtudaginn síðastliðinn verkið Stjórnleysingi ferst af slysförum eftir Nóbelskáldið Dario Fo. Leikstjórn var í höndum Snorra Emilssonar og Ágústar T. Magnússonar. Er þetta fyrsta uppsetning leikfélagsins síðan 2018. Leikhópurinn samanstendur af sex leikurum, blöndu af nýliðum og reynsluboltum.
Leikfélagið bætir við aukasýningu mið. 12. desember. Sýnt er í Herðubreið á Seyðisfirði.
Nánari upplýsingar má fá á Facebook-síðu félagsins.