Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir leikgerð af hinni ástsælu kvikmynd Stellu í orlofi næstkomandi föstudag.
Stella er Íslendingum að góðu kunn, flest kunnum við fjölmarga frasa úr myndinni utanbókar enda er kvikmyndin samofin þjóðarsálinni. Gunnar Gunnsteinsson og Leikfélag Hólmavíkur hafa nú gert leikgerð fyrir svið eftir kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur en Gunnar leikstýrir einnig sýningunni.
Sýningin er samstarfsverkefni Leikfélags Hólmavíkur og Grunn- og tónskólans á Hólmavík. Leikarar og aðstandendur sýningarinnar eru því á öllum aldri auk þess sem ungmenni sjá um lifandi tónlistarflutning.
Sýnt verður í Félagsheimilinu á Hólmavík 6. og 7. Mars, 2., 5. og 13. apríl en janframt verður farið í leikferð á Hvammstanga þann 28. mars. Leikfélagið lofar mikilli gleðisprengju.
Free entrance for those who do not speak Icelandic.