Leikfélag Hveragerðis frumsýnir söngdagskrána Söngur og leikur í 70 ár, föstudaginn 13. október kl. 20.00 í Leikhúsinu Austurmörk 23, Hveragerði.

Flutt verða lög úr leikritum sem leikfélagið hefur sýnt á undanförnum árum, t.d. Saumastofunni, Þið munið hann Jörund, Þrek og tár, Línu Langsokk, Dýrunum í Hálsaskógi og fleirum. Þriggja manna hljómsveit undir stjórn Guðmundar Eiríkssonar sér um undirleik.

Söngvarar eru 15 – 20 með einsöng og kórsöng. Leikfélagið hefur fengið bíóstóla úr Austurbæjarbíói og sett í salinn þannig að nú er frábært að eiga í húsinu þægilega og skemmtilega kvöldstund og ekki skemmir fyrir að húsið hefur fengið vínveitingaleyfi.

Önnur sýning er laugardaginn 14. október.

Miðapantanir eru í síma; 863 8522 og miðaverð er 3.000 kr.