Frumsýningin í Tjarnarbíói laugardaginn 10. september kl. 20.30.
Sóley Rós er 42 ára mamma, amma, eiginkona og skúringakona.Verkið er byggt á viðtölum við raunverulega íslenska hvunndagshetju sem hefur átt lygilegt lífshlaup, hefur kynnst mótlæti og sárum missi sem hver sem er gæti kiknað undan. Sóley Rós er einstök persóna. Hún er Bjartur í Sumarhúsum, hún er Þóra í Hvammi. Meinfyndið og grátbroslegt verk um samtímann sem tekur á mikilvægum málefnum sem allir hafa skoðanir á og varða okkur öll.
„Þú veist ekkert hvernig líkaminn á mér virkar. Það stendur ekki í neinni bók.”Höfundar leikverks: María Reyndal og Sólveig Guðmundsdóttir.
Leikarar: Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson
Leikstjórn: María Reyndal
Ljósa – og sviðshönnun: Egill Ingibergsson
Myndbönd: Pierre Alain Giraud
Búningar: Margrét Einarsdóttir
Tónlist: Úlfur Eldjárn
Hár og förðun: Diego Batista
Framkvæmdastjórn: María Heba Þorkelsdóttir

Upplýsingar og miðasala.