Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna (SL). Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus afnot af húsnæði en greiða útlagðan kostnað L.R. vegna vinnu þeirra í Borgarleikhúsinu“.

Samkvæmt ofangreindu er hér með auglýst eftir umsóknum leikhópa vegna leikársins 2011/2012.

Með umsókn skal senda greinargerð um verkefnið þar sem greint er skilmerkilega frá því, aðstandendum þess, framkvæmdaaðilum, listrænum stjórnendum og þátttakendum öllum ásamt vandaðri fjárhagsáætlun.  Umsóknir berist leikhússtjóra Borgarleikhússins, Listabraut 3, 103 Reykjavík eigi síðar en kl 16:00 mánudaginn 28. febrúar 2011. Einnig er hægt að senda inn umsókn með tölvupósti, merktum”Samstarf” á borgarleikhús@borgarleikhús.is

{mos_fb_discuss:3}