Nú eru aðeins þrjár sýningar eftira af sýningu Hugleiks á Ó, þú aftur? eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttir og Unni Guttormsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Þær eru miðvikudaginn 27. maí, fimmtudaginn 28. maí og föstudaginn 29. maí. Að hugleikskum sið leikur tónlist stórt hlutverk í sýningunni, en höfundar hennar eru Ljótu hálfvitarnir Þorgeir Tryggvason, Eggert Hilmarsson, Sævar Sigurgeirsson og Oddur Bjarni Þorkelsson.

Hér er á ferð sérstök afmælissýning í tilefni af 25 ára starfsafmæli leikfélagsins. Hugleikur hefur getið sér orð fyrir glannalega meðferð á íslenskum menningararfi, en að þessu sinni er það hans eigin fortíð sem fær hina hugleiksku meðferð, því frumgerð leikritsins var frumsýnd fyrir rúmum tuttugu árum. Þrátt fyrir aldurinn kallast verkið ótrúlega skemmtilega á við nútímann.

Um er að ræða klassíska ástarsögu sem byggir á persónum og stefjum úr Pilti og stúlku eftir Jón Thoroddsen. Ungu elskendurnir Sigríður og Indriði verða ástfangin í sveitinni og einsetja sér að hittast í borginni að lokinni sláturtíð. Það gengur hins vegar ekki áreynslulaust fyrir sig, því þegar til borgarinnar er komið er svo ótal margt sem glepur, s.s. fjöldamótmæli, vængstífðir hrafnar, framandi skemmtistaðir, kynleg grös og alls kyns ólifnaður.  Auk þess hefur önnur sveitastúlka, Gróa, augastað á Indriða og gerir allt til þess að koma í veg fyrir að ástfangna parið nái saman. Í örvæntingu sinni heldur Sigríður til Danmerkur til að hjúkra gömlum íslenskum presti meðan Indriði fer á sjóinn þess fullviss að hann finni aldrei stúlkuna sína aftur.

Miðasalan er í höndum Þjóðleikhússins á www.leikhusid.is og í síma: 551-1200. Sýningarplan má nálgast  á vef Þjóðleikhússins sem og www.hugleikur.is.

{mos_fb_discuss:2}