Í kvöld, mánudaginn 8. júlí, sýnir Leikfélagið Sýnir síðustu sýningu á leikgerð Guðmundar Erlingsssonar á Sjö samúræjum eftir Akira Kurosawa í Elliðaárdal. Hér er um að ræða útileiksýningu þar sem náttúra Elliðaárdalsins nýtur sín til fulls í bakgrunninum og áhorfendur eru leiddir um dalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að sér að vernda fátæka bændur fyrir ofríki grimmra ræningja. Lagt er af stað frá Félagsheimili Orkuveitunnar.

Fátækir bændur í ónefndu þorpi hafa lengi þurft að búa við ofríki ræningja sem ræna uppskeru þeirra og konum og brenna þorpið ef þeir eru óánægðir með ránsfenginn. Að lokum er bændunum nóg boðið, þeir ákveða að leita að samúræjum sem tilbúnir eru að fórna lífi sínu fyrir þurrt fleti og skál af hrísgrjónum á dag. Þeim tekst að finna sjö hugrakka samúræja en er það nóg til að verjast fjölmennum hópi ræningja?

Sýningar hefjast kl. 20. Miðaverð er 2.000 kr en 1.000 kr. fyrir börn. Engar miðapantanir, bara mæta.