Nú fer hver að verða síðastur að sjá leikritið Logskeran eftir Magnus Dalhström í uppfærslu Leikfélags Hafnarfjarðar. Síðasta sýning er á miðvikudaginn 5. júní og hefst kl. 20.00 og er  sýnt í Gaflaraleikhúsinu. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og leikendur eru Gísli Björn Heimissson og Halldór Magnússon.

Leikritið gerist í búningsherbergi í járnsmiðju þar sem Jonni og Úlli hafa báðir tekið sér frí á miðjum degi. Ljóst verður í upphafi leikritsins að vinskapur þeirra er ekki eins og best verður á kosið og þeir rífast stanslaust. Jonni sakar Úlla um það að hafa gleymt að skrúfa fyrir gasið á logskeranum áður en hann fór en Úlli neitar því og sakar Jonna um að hafa verið að nota logskerann seinastur manna. Spennan magnast jafnt og þétt eftir því sem á verkið líður og stóra spurningin er hvort að gasið leki eða ekki.

Miðaverð er 1.500 kr. og hægt er að panta miða í síma 565 5900 og midasala@gaflaraleikhusid.is