Leikfæélag Kópavogs frumsýnir Síðasta partýið eftir Aðalstein Jóhannsson fimmtudaginn 12. mars.

Síðasta partýið í blokkinni hefur verið haldið. Íbúarnir eru missáttir við þá ákvörðun og upp hefst leynimakk sem fljótlega fer úr böndunum. En hver er ástæðan fyrir því að það verða ekki fleiri partý? Er það brotni sófinn, bilaði glugginn á baðherberginu eða merkingarnar á póstkössunum? Eða er það dularfulli fornleifafræðingurinn? Og hvaðan kom þessi frjósemisstytta?
Inn í atburðarásina dragast húsverðir, dyraverðir, stílistar, kaffibaristur, kaupglaðar konur og aðrir virkir og óvirkir partýpinnar sem öll eiga það sameiginlegt að vera í leit að hamingjunni í einhverju formi. Síðasta partýið er glettið, spaugsamt og sprækt leikrit.

Sjö leikarar taka þátt í sýningunni sem er leikstýrt af Gísla Birni Heimissyni.

Miðasala er á Tix.is.