Leikfélag Dalvíkur frumsýndi gamanleikinn Sex í sama rúmi eftir Ray Cooney og John Chapman um síðastliðna helgi. Leikstjóri er Saga Geirdal Jónsdóttir en þýðandi verksins er Karl Guðmundsson.

Leikverkið Sex í sama rúmi fjallar um þau Philip og Joanna Markham sem eru hamingjusamlega gift. Philip er útgefandi barnabóka og vinnur á neðri hæð íbúðar þeirra hjóna, ásamt félaga sínum Henry Lodge sem er kvæntur en kviklyndur mjög í hjónabandinu. Henry hefur talið Philip á að lána sér íbúðina þetta kvöld til að eiga ástafund með nýjasta viðhaldinu. Linda, eiginkona Henry veit að hann er henni ótrúr og hún biður Joanna um að lána sér sömu íbúð til að hitta þar mann sem hún ætlar að sofa hjá til að hefna sín á Henry. Alistair Spenlow er í ástarsmabandi við au-pair stúlku Markham hjónanna og þau hafa líka skipulagt ástafund á staðnum þetta kvöld. Hvað gæti farið úrskeiðis?

Hægt er að panta miða á sýninguna á vef félagsins https://ungodalvik.is/ eða í miðasölusímanum 868-9706.

Miðaverð á sýninguna er 3.900kr. Hópapantanir fyrir 10 manns eða fleiri þurfa að berast í miðasölusímann.