Sýningar á barnaleikritinu Rúa og Stúa hjá Leikfélagi Kópavogs hefjast aftur nú um helgina eftir stopp vegna samkomutakmarkana.

Rúi og Stúi hafa smíðað vél sem getur allt. Hún getur búið til hluti, gert við hluti, gert afrit af hlutum og jafnvel gert nákvæma styttu af bæjarstjóranum. Eða hvað? Vélin bilar, bæjarstjórinn hverfur og dularfull kráka og enn dularfyllri stórþjófur koma öllu í uppnám. Hvað er til ráða annað en að baka sjálfur jólaköku? Fær Bergsteinn aðstoðarmaður sinn ástkæra bæjarstjóra aftur? Tekst Rúa og Stúa að gera við vélina?  

Leikfélag Kópavogs frumsýnir barnaleikritið Rúa og Stúa sunnudaginn 4 mars í Leikhúsinu í Kópavogi. Leikritið er eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson en leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Átta leikarar taka þátt í sýningunni en auk þess koma fjölmargir aðrir að uppsetningunni. Leikmynd er í höndum Norðanbáls, María Björt Ármannsdóttir sér um búninga, Vilborg Árný Valgaðrsdóttir um förðun, ljósameistari er Skúli Rúnar Hilmarsson og Hörður Sigurðarson sér um hljóð. 

Miðapantanir eru á vef félagsins.