Laugardaginn 2. desember frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar gamanleikinn Ráðskona Bakkabræðra eftir norska leikskáldið Oskar Braaten. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson og taka 12 manns þátt í sýningunni.

Leikfélag Hafnarfjarðar heldur nú í ár upp á 70 ára afmæli sitt og í tilefni af því var sýnt nýtt íslenskt verk, Hin endanlega hamingja, eftir Lárus Húnfjörð, í byrjun ársins og strax í kjölfarið ný leikgerð barnasögunnar Hodja frá Pjort eftir Ole Lund Kirkegaard. Nú í haust var hinsvegar ákveðið að setja upp vinsælasta verk félagsins frá stofnun þess. Ráðsskona Bakkabræðra var fyrst sett upp af félaginu í lok heimstyrjaldarinnar seinni og var það sýnt í Gúttó við fádæma vinsældir.

Nokkrum árum seinna var það sett upp aftur og þá var ákveðið að sýna það í Bæjarbíó sem tók mun fleirri áhorfendur en Gúttó. Enn létu vinsældirnar ekki á sér standa og ásóknin var svo mikil í miða að folk gerði sér far úr Reykjavík til að standa í biðröð í tvo, þrjá tíma. Einn sýningargestur sem fór á verkið fimm sinnum hafði á orði að leikritið væri svo fyndið að hláturtaugarnar í honum væru lamaðar eftir sýningu.

bakkabraedur.png Ráðsskona Bakkabræðra fjallar á gamansaman hátt um samskipti þeirra Gísla, Eiríks og Helga við ráðskonuna Gróu sem vill gera endaskipti á subbuskap og slæmum siðum bræðranna. Einnig koma við sögu hin tilfinninganæmi Axel og náttúrubarnið Hildur sem óhjákvæmilega dragast saman. Og eins og í öllum góðum gamanleikjum eru illmennin ekki langt undan og þau gera sínar skráveifur á gamansaman hátt. Ráðskona Bakkabræðra er verk í anda hinna bráðsmellnu dönsku gamanleikja sem skemmtu landsmönnum svo vel á fyrri hluta 20. aldar og má segja að þótt að verkið hafi ekki verið sýnt í hálfa öld hafi sterkasta minni verksins vakað áfram í Soffíu og ræningjunum í Kardemommubænum sem flestir þekkja.

Næstu sýningar á Ráðskonu Bakkabræðra verða:
Sunnud. 3. des.
föstud. 8. des.
sunnud. 10 des.

Sýningar hefjast kl: 20:00.

Sýningum fyrir jól lýkur þann 17. desember.
Hægt er að panta miða í síma 551-1850 eða 848-0475 og á netfanginu leikfelagid@simnet.is.
Sýnt er í húsnæði Leikfélags Hafnarfjarðar í Gamla Lækjarskóla sem stendur við Tjarnarbraut í Hafnarfirði.