Í dansverkinu Reið stíga á svið níu flóknar skepnur. Glæsilegar, ljósar yfirlitum, holdugar, loðnar og gljáandi. Dásamlega dramatískar, skapmiklar, villtar og viðkvæmar. Þær eru með tígulegan limaburð, langan háls, sterka leggi, breið bök og mjúkar línur. Þægar en óútreiknanlegar, varar um sig, þolinmóðar og gáfaðar. Tillitssamar, kærleiksríkar, kynæsandi og kraftmiklar. Þetta eru hraustar, frjóar og geðþekkar gyðjur.

Frumsýning laugardaginn 30. ágúst kl 21.30 á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Danshöfundarnir Steinunn Ketilsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir skoða í dansverkinu Reið hvar mörkin liggja á milli konunnar og hryssunnar og hvernig þær endurspegla hvor aðra.  Samlíking konunnar og hryssunnar býður upp á margar spaugilegar myndir en getur um leið varpað ljósi á önnur og jafnvel dekkri málefni lífsins og kveikt spurningar um eðli  náttúrunnar og grunnþarfir bæði manna og skepna; kærleika, umhyggju, samstöðu, samkeppni, o.s.frv. Jafnframt varpar verkið ljósi á það sem menn og skepnur eiga sameiginlegt, hvað tekist er á um og hvernig hegðun þeirra er innan hóps sem og utan hans. Jafnframt beinir verkið sjónum að náttúrulegum sérkennum kvendýrsins og fegurðinni sem felst í því að vera kona, móðir, vinkona, systir, eiginkona eða gyðja.

Verkefnið er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu og sýnt á Reykjavík Dance Festival.

Aðstandendur:

Höfundar: Steinunn Ketilsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir | Búningar og útlit: Jóní Jónsdóttir | Tónlist: Andrea Gylfadóttir | Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason | Hljóð: Baldvin Magnússon| Dansarar: Díana Rut Kristinsdóttir, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Gígja Jónsdóttir, Halla Þórðardóttir, Saga Sigurðardóttir, Snædís Lilja Ingadóttir, Valgerður Rúnarsdóttir, Védís Kjartansdóttir