29. mars opnar Rauða Skáldahúsið dyr sínar á ný til að fagna dauðasyndunum sjö. Frelsaðu og fullnægðu fýsnum þínum með ljóðlist í einrúmi á framandi málum þessa heims – og ef til vil þess næsta. Gerðu samning við Mephistopheles – seldu sálu þína fyrir syndsamlega líkamsmálningu Violet Fire. Leyfðu dansinum að duna með lifandi tónlist The Keystone Swingers og Gleðikvennanna, undir dáleiðslu fimleikara og tælandi burlesque dansara. Einkaljóðalestrar eru í boði, og lyfjaflöskur af dauðasyndunum sjö eru til sölu – ef þú leggur lífið að veði. Norn hússins er á sínum stað og spáir í spil: enginn forðast örlög sín en hún getur leiðbeint þér í gegnum nóttina.
Aðalskáld kvöldsins verður Sjón.
Glæsileg tveggja rétta máltíð byggð á dauðasyndunum er í boði fyrir sýningu í sérstökum Græðgis Pakka, sem felur einnig í sér aukalegan tíma með skemmtikröftum kvöldsins og einn einkalestur.
Umsjón ljóðskálda: Meg Matich
Leikmyndahönnun og sviðsstjóri: Jessica LoMonaco
Tónlist: The Keystone Swingers, Gleðikonurnar, Vigga Ásgeirsdóttir, Brynhildur Björnsdóttir (Bibi Bioux)
Ljósa- og hljóðhönnun: Owen Hindley
Skáld: Elías Knörr, Lommi, Ragnheiður Erla, Þorvaldur S Helgason, Ingunn Lára, Camila Hidalgo, Hlín Leifsdóttir, Kailyn Phoenix, Arthur Seefahrt og Ingimar Bjarni.
Ljósmyndun: Gísli Friðrik Ágústsson
Grafísk hönnun: Meg Matich
Myndbönd: Steinn Þorkelsson
Framkvæmdastjórn: Nanna Gunnars