Power of Love er komið aftur til landsins eftir leikferð til Króatíu og Slóveníu. Sýningar hefjast að nýju í mars, dagana 23., 24., 29. og 30. mars, í
Silfurtunglinu í Austurbæ.

Sýningar hefjast allar klukkan 20:00.
Ath. Aðeins þessar 4 sýningar.

Miðasala er í Austurbæ frá 13:00-17:00 og í síma 551-4700, einnig er hægt að nálgast miða á midi.is. Miðaverð er kr. 1500.

Power of Love, hið fullkomna deit, fjallar um konu sem er að undirbúa mikilvægasta kvöld lífs síns. Hún ætlar að finna ástina og lifa hamingjusöm til æviloka. Til að ekkert fari úrskeiðis skipuleggur hún sig í þaula. Allt verður að smella þegar herrann mætir á svæðið. Hún verður að vera fullkomin.

Tónlist sömdu og útsettu Páll Ívan Pálsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir og er í lifandi flutningi höfunda.

Halldóra Malin Pétursdóttir útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2006 með BFA í leiklist. Síðan þá hefur hún m.a. sett upp einleik á Borgafirði Eystra, stofnað Leikhús Frú Normu á Egilsstöðum, eitt af þremur atvinnuleikhúsum á landsbyggðinni, auk þess að vinna til tvennra verðlauna í dansleikhússamkeppni Borgarleikhússins vorið 2006, fyrir verkið Tommi og Jenni. Nýverið stofnaði Halldóra Malin leikhópinn Brilljantín. Power of Love fyrsta verkefni hópsins.